Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Side 10
VIÐTAL
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020
mér mikið. Svo leið ár og þá fór ég til hennar í
fimm vikur og svo leið aftur ár og þá flutti ég
hingað,“ segir Ljóni og hefur hann búið hér
síðan, fyrir utan tvö ár þegar hann var í meist-
aranámi í Svíþjóð.
Spurður um nafnið Ljóni segist hann hafa
lengi verið kallaður því nafni.
„Það var hún Birna sem byrjaði að kalla mig
Ljóna. Nú heiti ég Ljóni. Ég sótti um að fá
nafnið samþykkt í fyrra, en ég hét áður
Étienne Léon Poisson en millinafnið breyttist í
Ljóna. Ég vildi ólmur fá nafn sem beygist rétt.
Ég vildi geta fallbeygt mitt eigið nafn. Svo
finnst mér nafnið flott og ég er alltaf kallaður
Ljóni.“
Aldrei aftur heim
Þegar Ljóni flutti hingað alkominn nítján ára
gamall lá leiðin beint í háskólann en Ljóni kom
hingað á styrk frá Þjóðræknisfélagi Íslendinga
í Kanada og hóf nám í íslensku í Háskóla Ís-
lands. Ekki íslensku fyrir útlendinga, því það
var allt of létt fyrir unga manninn sem hafði þá
kennt sjálfum sér íslensku í tíu ár.
„Ég kom hingað og vissi að ég myndi aldrei
flytja heim aftur, en ég þurfti að fara heim á
sumrin. Ég sótti um undanþágu fyrir að þurfa
ekki að fara í íslensku fyrir útlendinga, því
styrkurinn var ætlaður þeim sem myndu fara í
það nám. En ég kom hingað 24. ágúst 2008 og
tók öll prófin fjórum dögum seinna og náði
öllu og fékk leyfi til að fara beint í íslensku.
Sem ég sá svo eftir, því þar voru aðallega
kenndar bókmenntir. Ég hef engan áhuga á
bókmenntum. Ég hef áhuga á hljóðfræði,
hljóðkerfisfræði og málgerðarfræði. En við
þurftum að lesa fimm bindi af sögu íslenskra
bókmennta og mér fannst allir heita sömu
nöfnunum. Ég var alveg týndur en ég náði
þessu. Þetta var mjög erfitt, að læra um drótt-
kvæði og bragarhætti en ég fékk aðeins að
hátta náminu eins og ég vildi. Ég fékk að taka
finnskunámskeið. Ég var reyndar orðinn reip-
rennandi í finnsku áður.“
Blaðamaður hváir.
Ef finnska og íslenska ættu barn
Hvenær lærðir þú finnsku?
„Ég byrjaði að læra finnsku kannski tveim-
ur, þremur árum eftir að ég byrjaði að læra ís-
lensku. Ég fór í gegnum öll Norðurlandamálin.
Íslenskan var fyrst, svo sænska, norska og svo
finnskan og þaðan fór ég yfir í samísku. Ég bjó
í Svíþjóð þannig að ég tala sænskuna og ég
tala samískuna og finnsku kann ég mjög vel.
En ég fæ aldrei að tala hana. Það eru fáir
Finnar á Íslandi og þeir eru ekki mjög skraf-
hreifnir,“ segir hann og brosir.
„Íslenska er hjartamálið mitt. Það er ekki
móðurmálið mitt en það er tungumál lífs míns.
Ég fór í gegnum táningsárin að hluta til á ís-
lensku og öll fullorðinsárin eru á íslensku.
Finnskan er „frústreraða“ málið mitt því ég hef
enga tengingu við Finna og ég myndi segja að
ég væri með blæti fyrir samísku. Það er falleg-
asta og áhugaverðasta tungumálið! Það er akk-
úrat eins og ef finnska og íslenska hefðu átt barn
saman,“ segir hann og blaðamaður getur varla
ímyndað sér hvers konar bastarður það væri.
En Ljóni sannfærir hann um að varla sé til
fegurri tunga en samíska og segir einnig
finnsku vera afar fallegt tungumál.
„Hún er svo hrein. Eins og vel smurð vél.
Þar er allt reglulegt og allt skýrt. Þar er allt
svart-hvítt. Stundum þegar maður hlustar á
finnsku hljómar það næstum eins og vélmenni
sé að tala. Ég fíla það og finnst það sjarmer-
andi. Það er gaman að tala þannig,“ segir hann
og gefur blaðamanni dæmi af setningu og
hvernig hún hljómar.
Aðeins einu sinni hefur Ljóni komið til Finn-
lands.
„Ég var í Finnlandi í viku árið 2011 en talaði
ekki mikið. Það vildi enginn tala við mig,“ segir
hann og skellilhlær.
Vildi verða vísindamaður
Ljóni kláraði BA-gráðu í íslensku og kenndi
með námi útlendingum íslensku hjá Mími.
„Það var ótrúlega gefandi og ég sakna þess.
Það var svo gaman að taka kannski eitthvað
eitt fyrir, eins og viðtengingarhátt þátíðar og
reyna að útskýra það þannig að þau skildu. Og
ég tel mig hafa mjög góðan skilning á öllu
svona og ég elska málfræði. Ég elskaði að
kenna, en ákvað svo að fara aftur í nám og valdi
lífefnafræði. Ég hafði alltaf áhuga á vísindum
og vildi leggja mig fram við að skilja þau í al-
vörunni. Og verða vísindamaður,“ segir Ljóni.
„Þá þurfti ég að læra stærðfræði á íslensku í
fyrsta skipti og það var martröð því ég er ekki
góður í stærðfræði og ég fíla hana ekki,“ segir
hann.
„En mér fannst mjög spennandi að fara í
gegnum raunvísindanám á íslensku því þá
lærði ég um allt mögulegt á íslensku; alls kyns
hugtök um líkamann og plöntur. Orðin eru
miklu gagnsæjari á íslensku heldur en ensku,“
segir hann en Ljóni kláraði BS-próf árið 2016.
Á námsárunum öðlaðist hann svo íslenskan
ríkisborgararétt og gat því farið frítt í fram-
haldsnám til Svíþjóðar.
Lífrænar efnasmíðar spennandi
„Ég fór til Linköping vegna þess að þar var
eini háskólinn á Norðurlöndum sem kenndi líf-
rænar efnasmíðar sem ég hafði áhuga á. Ég
fattaði mjög snemma í náminu að ég hafði
mestan áhuga á lífrænni efnafræði og innan
hennar eru efnasmíðar það sem ég vildi sér-
hæfa mig í. Það er sá hluti efnafræðinnar þar
sem fólk er inni á rannsóknarstofu að búa til
nýjar sameindir,“ segir Ljóni og blaðamaður
kinkar kolli en skilur ekki mikið. Ljóni kveikir
á skilningsleysinu og útskýrir það betur:
„Það samsvarar því að vera kokkur. Maður
hannar bestu leið til að búa til sameind. Ég
fékk að vinna með eiturlyf, sem ég hef mjög
mikinn áhuga á. Ég vann lokaverkefni mitt í
samstarfi við réttarmeinalögregluna sem var
ótrúlega spennandi,“ segir hann og segist hafa
viljað vera lengur í Svíþjóð en erfitt reyndist
að finna þar vinnu.
Stuttu áður en hann flutti til Svíþjóðar
kynnstist hann sambýliskonu sinni, Júlíu
Kristjánsdóttur, ávallt kölluð Úa, en hún er
deildarstjóri á leikskóla fyrir háskólanema og í
mastersnámi.
„Við kynntumst á Tinder,“ segir hann og
hlær.
Ekki bara glærir vökvar
Í dag vinnur Ljóni hjá Alvotech og nýtur sín
vel þar. Þar vinnur hann í rannsóknarstofu við
lyfjaprófanir.
„Ég fæ sýni, preppa þau og set í tæki,
keyri og túlka gögn. Okkar lyf eru prótein og
ég skoða aðallega hvort þau brotna niður í
litlar agnir eða loða saman. Þannig að ég er
efnagreiningafræðingur og þetta verður allt-
af skemmtilegra og skemmtilegra því sem ég
er farinn að skilja þetta betur. Það tekur
langan tíma að skilja hvernig lyfjafyrirtæki
virkar; við erum hér um fimm hundruð
manns. Það er lítill tími til að kynnast á milli
deilda og hér er mikið álag. En nú er ég far-
inn að skilja betur stóra samhengið og sé
hvaða gagn er að minni vinnu. Þetta eru al-
vöru vísindi og ég tek þátt í þeim. Án minnar
vinnu, og auðvitað gæti maður komið í minn
stað, gætum við ekki búið til þessi lyf sem
fólk þarfnast. Það gefur þessu enn meiri
merkingu að vita að þetta eru ekki bara
glærir vökvar í ílátum. Það er mjög auðvelt
að gleyma því.“
Vildi aðlagast hundrað prósent
Ljóni segir Íslendinga hafa langflesta tekið sér
strax vel, enda talaði hann málið það vel að
sumir sem hann hitti trúðu ekki að hann væri
útlendingur og báðu hann jafnvel um að sýna
sér vegabréfið sitt.
„Ég kunni málfræðina og beygði rétt en
auðvitað var margt í byrjun sem ég vissi ekki.
En ef maður talar góða íslensku er maður Ís-
lendingur. Ég segi stundum „þið“. Ég er Ís-
lendingur en kannski ekki alveg íslenskur. Mig
vantar hér fyrstu fimmtán, tuttugu árin. Ég á
enga íslenska barnæsku.“
Þú talar alveg eins og Íslendingur!
„Á góðum degi. Það var alltaf planið. Ég
vildi alltaf verða Íslendingur og geta aðlagast
hundrað prósent. Ég vildi ekki vera öðruvísi
en aðrir hér. Það gerist alveg að ég segi eitt-
hvað vitlaust eða nota vitlaust fall. Það gerist
helst ef ég er þreyttur eða tala við yfirmenn.
Það er alltaf martröð. Ég er viss um að yf-
irmaður minn heldur að það sé eitthvað að
mér, því ég er alltaf svo stressaður að tala við
hana,“ segir hann og hlær.
Draumurinn að búa í Samalandi
Ertu alveg sestur að hérna?
„Sko, draumur minn er að flytja til Samalands.
Landslagið þar er eiginlega alveg eins og á há-
lendi Íslands. Ég nærist á þessu tungumáli og
menningunni, en þetta eru frumbyggjar þannig
að það er allt gjörólíkt okkar menningarheimi.
Það er verið að brjóta mannréttindi þar á hverj-
um degi og ég finn mikið til með Sömum. Ég
væri til í að kenna þar eða taka þátt í endurlífgun
málsins. Það þarf fólk með málvísindakunnáttu
og sem kann að útskýra málfræðina og sem get-
ur búið til kennsluefni. Þetta er mjög lítið tungu-
mál, en það eru 85.000 Samar í fjórum löndum og
minna en helmingur þeirra talar samísku, en það
eru níu samísk tungumál. Ég tala bara norður-
samísku, sem er það tungumál sem flestir Samar
tala,“ segir Ljóni og segir um 30.000 manns tala
það tungumál.
„Planið er að flytja þangað áður en ég verð
fertugur en við ætlum fyrst að reyna að eign-
ast barn,“ segir hann og segist vera búinn að
sannfæra Júlíu um að það sé góð hugmynd að
flytja þangað um hríð.
Ljóna dreymir um að aðlagast samísku sam-
félagi jafn vel og hann hefur aðlagast íslensku
samfélagi. Hann hefur þó aldrei komið þangað
þótt hann tali málið reiprennandi.
„Ég lærði málfræðina og las svo allt sem ég
gat.“
Er ekki kalt þarna?
„Jú, en ég elska kulda! Mér finnst aldrei
nógu kalt hérna. Ég er með blæti fyrir mjög
hlýjum jökkum,“ segir hann og hlær.
Mér líður best hér
Við förum að slá botninn í samtalið enda komið
að kvöldmatartíma. Óhætt er að segja að
spjallið við þennan einstaka mann hafi verið
bæði skemmtilegt og fræðandi. Og þó Ljóni
hafi fæðst í Quebec er hann sannarlega
Íslendingur.
„Ég á heima hér. Ég er skrítinn heima í Que-
bec; þar er ekki lengur mitt fólk. Ég fann eitt
sinn mjög gamla íslenska orðabók þar sem Que-
bec var þýtt sem Hvíbekkur og ég bjó þá til nýtt
orð og lít á mig sem Hvíbekkverja fram til árs-
ins 2005 en þá byrjuðu tengslin mín við Quebec
að rofna. Ég rækta ekki mikil tengsl við mína
gömlu vini þar. Líf mitt er tvískipt,“ segir Ljóni.
„Ég sem fullorðin manneskja er Íslendingur
og mér líður best hér.“
Ljóni kann vel við sig á köldum norður-
slóðum. Draumur hans er að prófa að
búa í Samalandi en hann talar norður-
samísku reiprennandi, þótt hann hafi
aldrei komið þangað. Ljóni talar einnig
fullkomna finnsku en hefur aðeins einu
sinni dvalið í Finnlandi í viku.
Morgunblaðið/Ásdís
’Íslenska er hjartamálið mitt.Það er ekki móðurmálið mitten það er tungumál lífs míns. Ég fór í gegnum táningsárin að
hluta til á íslensku og öll
fullorðinsárin eru á íslensku.