Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Page 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Page 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020 mér mikið. Svo leið ár og þá fór ég til hennar í fimm vikur og svo leið aftur ár og þá flutti ég hingað,“ segir Ljóni og hefur hann búið hér síðan, fyrir utan tvö ár þegar hann var í meist- aranámi í Svíþjóð. Spurður um nafnið Ljóni segist hann hafa lengi verið kallaður því nafni. „Það var hún Birna sem byrjaði að kalla mig Ljóna. Nú heiti ég Ljóni. Ég sótti um að fá nafnið samþykkt í fyrra, en ég hét áður Étienne Léon Poisson en millinafnið breyttist í Ljóna. Ég vildi ólmur fá nafn sem beygist rétt. Ég vildi geta fallbeygt mitt eigið nafn. Svo finnst mér nafnið flott og ég er alltaf kallaður Ljóni.“ Aldrei aftur heim Þegar Ljóni flutti hingað alkominn nítján ára gamall lá leiðin beint í háskólann en Ljóni kom hingað á styrk frá Þjóðræknisfélagi Íslendinga í Kanada og hóf nám í íslensku í Háskóla Ís- lands. Ekki íslensku fyrir útlendinga, því það var allt of létt fyrir unga manninn sem hafði þá kennt sjálfum sér íslensku í tíu ár. „Ég kom hingað og vissi að ég myndi aldrei flytja heim aftur, en ég þurfti að fara heim á sumrin. Ég sótti um undanþágu fyrir að þurfa ekki að fara í íslensku fyrir útlendinga, því styrkurinn var ætlaður þeim sem myndu fara í það nám. En ég kom hingað 24. ágúst 2008 og tók öll prófin fjórum dögum seinna og náði öllu og fékk leyfi til að fara beint í íslensku. Sem ég sá svo eftir, því þar voru aðallega kenndar bókmenntir. Ég hef engan áhuga á bókmenntum. Ég hef áhuga á hljóðfræði, hljóðkerfisfræði og málgerðarfræði. En við þurftum að lesa fimm bindi af sögu íslenskra bókmennta og mér fannst allir heita sömu nöfnunum. Ég var alveg týndur en ég náði þessu. Þetta var mjög erfitt, að læra um drótt- kvæði og bragarhætti en ég fékk aðeins að hátta náminu eins og ég vildi. Ég fékk að taka finnskunámskeið. Ég var reyndar orðinn reip- rennandi í finnsku áður.“ Blaðamaður hváir. Ef finnska og íslenska ættu barn Hvenær lærðir þú finnsku? „Ég byrjaði að læra finnsku kannski tveim- ur, þremur árum eftir að ég byrjaði að læra ís- lensku. Ég fór í gegnum öll Norðurlandamálin. Íslenskan var fyrst, svo sænska, norska og svo finnskan og þaðan fór ég yfir í samísku. Ég bjó í Svíþjóð þannig að ég tala sænskuna og ég tala samískuna og finnsku kann ég mjög vel. En ég fæ aldrei að tala hana. Það eru fáir Finnar á Íslandi og þeir eru ekki mjög skraf- hreifnir,“ segir hann og brosir. „Íslenska er hjartamálið mitt. Það er ekki móðurmálið mitt en það er tungumál lífs míns. Ég fór í gegnum táningsárin að hluta til á ís- lensku og öll fullorðinsárin eru á íslensku. Finnskan er „frústreraða“ málið mitt því ég hef enga tengingu við Finna og ég myndi segja að ég væri með blæti fyrir samísku. Það er falleg- asta og áhugaverðasta tungumálið! Það er akk- úrat eins og ef finnska og íslenska hefðu átt barn saman,“ segir hann og blaðamaður getur varla ímyndað sér hvers konar bastarður það væri. En Ljóni sannfærir hann um að varla sé til fegurri tunga en samíska og segir einnig finnsku vera afar fallegt tungumál. „Hún er svo hrein. Eins og vel smurð vél. Þar er allt reglulegt og allt skýrt. Þar er allt svart-hvítt. Stundum þegar maður hlustar á finnsku hljómar það næstum eins og vélmenni sé að tala. Ég fíla það og finnst það sjarmer- andi. Það er gaman að tala þannig,“ segir hann og gefur blaðamanni dæmi af setningu og hvernig hún hljómar. Aðeins einu sinni hefur Ljóni komið til Finn- lands. „Ég var í Finnlandi í viku árið 2011 en talaði ekki mikið. Það vildi enginn tala við mig,“ segir hann og skellilhlær. Vildi verða vísindamaður Ljóni kláraði BA-gráðu í íslensku og kenndi með námi útlendingum íslensku hjá Mími. „Það var ótrúlega gefandi og ég sakna þess. Það var svo gaman að taka kannski eitthvað eitt fyrir, eins og viðtengingarhátt þátíðar og reyna að útskýra það þannig að þau skildu. Og ég tel mig hafa mjög góðan skilning á öllu svona og ég elska málfræði. Ég elskaði að kenna, en ákvað svo að fara aftur í nám og valdi lífefnafræði. Ég hafði alltaf áhuga á vísindum og vildi leggja mig fram við að skilja þau í al- vörunni. Og verða vísindamaður,“ segir Ljóni. „Þá þurfti ég að læra stærðfræði á íslensku í fyrsta skipti og það var martröð því ég er ekki góður í stærðfræði og ég fíla hana ekki,“ segir hann. „En mér fannst mjög spennandi að fara í gegnum raunvísindanám á íslensku því þá lærði ég um allt mögulegt á íslensku; alls kyns hugtök um líkamann og plöntur. Orðin eru miklu gagnsæjari á íslensku heldur en ensku,“ segir hann en Ljóni kláraði BS-próf árið 2016. Á námsárunum öðlaðist hann svo íslenskan ríkisborgararétt og gat því farið frítt í fram- haldsnám til Svíþjóðar. Lífrænar efnasmíðar spennandi „Ég fór til Linköping vegna þess að þar var eini háskólinn á Norðurlöndum sem kenndi líf- rænar efnasmíðar sem ég hafði áhuga á. Ég fattaði mjög snemma í náminu að ég hafði mestan áhuga á lífrænni efnafræði og innan hennar eru efnasmíðar það sem ég vildi sér- hæfa mig í. Það er sá hluti efnafræðinnar þar sem fólk er inni á rannsóknarstofu að búa til nýjar sameindir,“ segir Ljóni og blaðamaður kinkar kolli en skilur ekki mikið. Ljóni kveikir á skilningsleysinu og útskýrir það betur: „Það samsvarar því að vera kokkur. Maður hannar bestu leið til að búa til sameind. Ég fékk að vinna með eiturlyf, sem ég hef mjög mikinn áhuga á. Ég vann lokaverkefni mitt í samstarfi við réttarmeinalögregluna sem var ótrúlega spennandi,“ segir hann og segist hafa viljað vera lengur í Svíþjóð en erfitt reyndist að finna þar vinnu. Stuttu áður en hann flutti til Svíþjóðar kynnstist hann sambýliskonu sinni, Júlíu Kristjánsdóttur, ávallt kölluð Úa, en hún er deildarstjóri á leikskóla fyrir háskólanema og í mastersnámi. „Við kynntumst á Tinder,“ segir hann og hlær. Ekki bara glærir vökvar Í dag vinnur Ljóni hjá Alvotech og nýtur sín vel þar. Þar vinnur hann í rannsóknarstofu við lyfjaprófanir. „Ég fæ sýni, preppa þau og set í tæki, keyri og túlka gögn. Okkar lyf eru prótein og ég skoða aðallega hvort þau brotna niður í litlar agnir eða loða saman. Þannig að ég er efnagreiningafræðingur og þetta verður allt- af skemmtilegra og skemmtilegra því sem ég er farinn að skilja þetta betur. Það tekur langan tíma að skilja hvernig lyfjafyrirtæki virkar; við erum hér um fimm hundruð manns. Það er lítill tími til að kynnast á milli deilda og hér er mikið álag. En nú er ég far- inn að skilja betur stóra samhengið og sé hvaða gagn er að minni vinnu. Þetta eru al- vöru vísindi og ég tek þátt í þeim. Án minnar vinnu, og auðvitað gæti maður komið í minn stað, gætum við ekki búið til þessi lyf sem fólk þarfnast. Það gefur þessu enn meiri merkingu að vita að þetta eru ekki bara glærir vökvar í ílátum. Það er mjög auðvelt að gleyma því.“ Vildi aðlagast hundrað prósent Ljóni segir Íslendinga hafa langflesta tekið sér strax vel, enda talaði hann málið það vel að sumir sem hann hitti trúðu ekki að hann væri útlendingur og báðu hann jafnvel um að sýna sér vegabréfið sitt. „Ég kunni málfræðina og beygði rétt en auðvitað var margt í byrjun sem ég vissi ekki. En ef maður talar góða íslensku er maður Ís- lendingur. Ég segi stundum „þið“. Ég er Ís- lendingur en kannski ekki alveg íslenskur. Mig vantar hér fyrstu fimmtán, tuttugu árin. Ég á enga íslenska barnæsku.“ Þú talar alveg eins og Íslendingur! „Á góðum degi. Það var alltaf planið. Ég vildi alltaf verða Íslendingur og geta aðlagast hundrað prósent. Ég vildi ekki vera öðruvísi en aðrir hér. Það gerist alveg að ég segi eitt- hvað vitlaust eða nota vitlaust fall. Það gerist helst ef ég er þreyttur eða tala við yfirmenn. Það er alltaf martröð. Ég er viss um að yf- irmaður minn heldur að það sé eitthvað að mér, því ég er alltaf svo stressaður að tala við hana,“ segir hann og hlær. Draumurinn að búa í Samalandi Ertu alveg sestur að hérna? „Sko, draumur minn er að flytja til Samalands. Landslagið þar er eiginlega alveg eins og á há- lendi Íslands. Ég nærist á þessu tungumáli og menningunni, en þetta eru frumbyggjar þannig að það er allt gjörólíkt okkar menningarheimi. Það er verið að brjóta mannréttindi þar á hverj- um degi og ég finn mikið til með Sömum. Ég væri til í að kenna þar eða taka þátt í endurlífgun málsins. Það þarf fólk með málvísindakunnáttu og sem kann að útskýra málfræðina og sem get- ur búið til kennsluefni. Þetta er mjög lítið tungu- mál, en það eru 85.000 Samar í fjórum löndum og minna en helmingur þeirra talar samísku, en það eru níu samísk tungumál. Ég tala bara norður- samísku, sem er það tungumál sem flestir Samar tala,“ segir Ljóni og segir um 30.000 manns tala það tungumál. „Planið er að flytja þangað áður en ég verð fertugur en við ætlum fyrst að reyna að eign- ast barn,“ segir hann og segist vera búinn að sannfæra Júlíu um að það sé góð hugmynd að flytja þangað um hríð. Ljóna dreymir um að aðlagast samísku sam- félagi jafn vel og hann hefur aðlagast íslensku samfélagi. Hann hefur þó aldrei komið þangað þótt hann tali málið reiprennandi. „Ég lærði málfræðina og las svo allt sem ég gat.“ Er ekki kalt þarna? „Jú, en ég elska kulda! Mér finnst aldrei nógu kalt hérna. Ég er með blæti fyrir mjög hlýjum jökkum,“ segir hann og hlær. Mér líður best hér Við förum að slá botninn í samtalið enda komið að kvöldmatartíma. Óhætt er að segja að spjallið við þennan einstaka mann hafi verið bæði skemmtilegt og fræðandi. Og þó Ljóni hafi fæðst í Quebec er hann sannarlega Íslendingur. „Ég á heima hér. Ég er skrítinn heima í Que- bec; þar er ekki lengur mitt fólk. Ég fann eitt sinn mjög gamla íslenska orðabók þar sem Que- bec var þýtt sem Hvíbekkur og ég bjó þá til nýtt orð og lít á mig sem Hvíbekkverja fram til árs- ins 2005 en þá byrjuðu tengslin mín við Quebec að rofna. Ég rækta ekki mikil tengsl við mína gömlu vini þar. Líf mitt er tvískipt,“ segir Ljóni. „Ég sem fullorðin manneskja er Íslendingur og mér líður best hér.“ Ljóni kann vel við sig á köldum norður- slóðum. Draumur hans er að prófa að búa í Samalandi en hann talar norður- samísku reiprennandi, þótt hann hafi aldrei komið þangað. Ljóni talar einnig fullkomna finnsku en hefur aðeins einu sinni dvalið í Finnlandi í viku. Morgunblaðið/Ásdís ’Íslenska er hjartamálið mitt.Það er ekki móðurmálið mitten það er tungumál lífs míns. Ég fór í gegnum táningsárin að hluta til á íslensku og öll fullorðinsárin eru á íslensku.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.