Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Side 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Side 13
vard Magerøy, textafræðingur og prófessor í ís- lensku við Háskólann í Ósló. „Hann var Sigurður Nordal þeirra Norðmanna; ein- staklega þurr maður og bréfaskipti okkar voru ákaflega þurr en elskuleg,“ rifjar Geir upp en þetta varð til þess að Magerøy dró saman í tvo kassa fágæti sem hann sendi í Reykholt og voru kassarnir undir rúmi þeirra hjóna næstu árin. „Í raun og veru,“ áréttar Dagný. Ævintýramaðurinn og rithöfundurinn Thor Heyerdahl sýndi málinu líka mikinn áhuga, eins Arild Haaland, bókmenntafræðingur og heim- spekingur í Björgvin. „Haaland var mjög skemmtilegur og sérvitur maður. Hann vélrit- aði til dæmis öll sín bréf á næfurþunnan papp- ír,“ segir Dagný og Geir bætir við að bréfin hafi stundum verið ein tippexklessa, enda maðurinn örlyndur. „Konsúll Íslands í Björgvin, Arne Holm, og rektor Björgvinjarháskóla, Ole Didrik Leirum, voru okkur miklir árnaðarmenn austur þar.“ Geir stendur nú upp til að leita að bók eftir Haaland en finnur hana ekki í fljótu bragði í hillunum í nýju stofunni. „Dagný, erum við strax byrjuð að týna bókum?“ Hann leitar áfram um leið og hann segir mér að Haaland hafi haft orð á því að hann hefði að- gang að styrkjum sem hann gæti ráðstafað til verkefna að eigin vild. „Þeir peningar kostuðu vinnuloftið í gestaíbúð Snorrastofu,“ upplýsir Dagný. „Sumir af þessum mönnum komu svo oft að ég var farin að skrifa hjá mér hvaða veit- ingar við buðum upp á, svo þeir fengju ekki allt- af það sama.“ Lítill áhugi hér heima Að sögn hjónanna áttu þessar hugmyndir miklu meiri hljómgrunn í Noregi en hér heima. „Meira að segja Svíar höfðu meiri áhuga en Ís- lendingar. Þökk sé útvarpsmanninum fræga Sture Neslund sem var á öllum stórviðburðum hér á þessum tíma og kynnti þessar hugmyndir ytra meðan íslenska pressan sýndi þessu engan áhuga og eiginlega bara dónaskap,“ segir Dagný og bætir við að nú þyki öllum yndislegt að koma í Reykholt og ýmsir spyrji hvort hægt sé að kaupa hér hús. Enn leitar Geir að bók Arilds Haalands. Klór- ar sér í höfðinu. Pétur Sigurgeirsson biskup tók Pálsstung- una að Reykholtskirkju og Snorrastofu á hvíta- sunnu 1988. Dagný rifjar upp að brjálað veður hafi verið um allt land en ekki bærðist hár á höfði í Reykholti. „Það blakti varla biskupskápan,“ segir hún. „Við vorum í algjör- um lognpolli hér.“ Haukur Júlíusson á Hvanneyri tók grunninn og kirkjan var steypt öll upp á staðnum. Hann gaf ríflegan afslátt af sinni vinnu og Geir segir það í raun hafa verið uppskriftina. Margir hafi verið boðnir og búnir að leggja hönd á plóg. Gamall maður rétti honum tíu þúsund kall á bensínstöð og sá var ekki einu sinni úr sókninni. „Getur þú ekki komið þessu fyrir í vegg?“ Ann- ar eldri maður úr sveitinni gaf andvirði kálfanna sinna og svona mætti lengi telja. Jónas heitinn Kristjánsson, forstöðumaður Árnastofnunar, kom strax til liðs við hugmyndina, eins nafni hans, Árnason, sem gaf hagnaðinn af söng- bókum sínum, Meira til söngs, sem Geir finnur eins og skot í bókasafninu í stofunni. Guð- mundur G. Hagalín og frú Unnur gáfu Snorra- stofu allt bókasafn sitt. Konungur svaf á leiðinni Þegar hornsteinninn var lagður að kirkjunni ár- ið 1988 komu bæði Vigdís Finnbogadóttir, for- seti Íslands, og Ólafur Noregskonungur í Reyk- holt. Dagný segir vel hafa legið á kóngi, sem myndaði margt sem á vegi hans varð á pínulitla myndavél. Þá var vegarkafli heim að Reykholti malbikaður af þessu tilefni sem kom sér vel fyr- ir heimamenn. Konungur kom hins vegar með þyrlu. Árni Sæberg ljósmyndari, sem slegist hefur í hópinn, rifjar upp að hámenntaður leið- sögumaður hafi verið ráðinn til að greina kon- ungi frá því sem fyrir augu bar. Þær upplýs- ingar fóru þó fyrir ofan garð og neðan því hans hátign svaf svefni hinna réttlátu langleiðina frá Reykjavík í Reykholt. Konungur kom færandi hendi, með eina milljón norskra króna frá norsku þjóðinni, eftir að Niels Dahl sendiherra og Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra höfðu beitt sér í málinu. „Ríkisstjórn Íslands, undir forsæti Dav- íðs Oddssonar, lét heldur ekki sitt eftir liggja. Studdi rækilega við bakið á okkur,“ segir Geir. Haldiði að hann hafi ekki loksins fundið bók- ina hans Arilds Haalands og leggur hana sigri hrósandi á borðið fyrir framan mig. Mikið verk og digurt. Presturinn fær sér sæti. Nýja kirkjan í Reykholti var vígð 28. júlí 1996. Pétur Sigurgeirsson biskup glímdi þá við veikindi og kom ekki á Reykholtshátíð fyrr en mörgum árum síðar. „Þá flutti hann mergjaða ræðu sem ég man orðrétt,“ segir Geir. „Hann hóf pál, sem hann hafði notað við stunguna, á loft og mælti: „Að hugsa sér að þessi veika hönd skyldi hefja svo mikið verk.“ Það mætti vel vera yfirskrift fyrir þetta ævintýri okkar hjóna hérna á staðnum.“ Geir er afar hlýtt til Péturs heitins biskups. „Pétur er þeim mun merkari sem maður hugsar meira um þann þýða og blíða mann.“ Aðstaðan mikið notuð Þegar þau komu fyrst í Reykholt kenndi Dagný við skólann. „Við komum á föstudegi og ég byrj- aði á mánudegi.“ Síðar fór hún í nám í dönsku og bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Þegar sóknin, Reykholtsdals- og Hálsahreppur og Búnaðarfélagið stofnuðu einkahlutafélagið Heimskringlu ehf. til að annast gestamóttöku og tónleikahald í kirkjunni tók Dagný að sér að annast daglegan rekstur. „Ég tók við þessu verkefni fyrir fyrstu sýninguna 14. júlí 1996, þannig að það féll í minn hlut að opna þessa byggingu. Ég varð svo framkvæmdastjóri Heimskringlu ehf. í ársbyrjun 1997. Til að byrja með voru það aðallega við Geir og börnin okkar að brölta þetta, taka á móti gestum, reka versl- unina og fleira, en 2005 var Heimskringla ehf, sett til hliðar og Snorrastofa tók við verkefn- unum og ég var ráðin móttökustjóri Snorra- stofu.“ Að sögn Dagnýjar er aðstaðan í Reykholti vel og mikið notuð, ekki síst af fólki heima í héraði. Hún segir hana meðal annars hafa fyllt upp í tómarúm fyrir þá sem ekki sækja böllin og þess háttar samkomur. „Margir yrðu sáttir við að hafa svona mikla hlutfallslega aðsókn.“ Séra Geir Waage og Dagný Emilsdóttir í innri stofunni á nýju heimili sínu í Reykholti. ’Hann hóf pál, sem hannhafði notað við stunguna, áloft og mælti: „Að hugsa sér aðþessi veika hönd skyldi hefja svo mikið verk.“ Það mætti vel vera yfirskrift fyrir þetta ævintýri okkar hjóna hérna á staðnum. Hjónin Dagný og séra Geir flytja búslóðina inn á nýtt heimili í Reykholti. 13.12. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.