Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020
B
réfritari hefur eins og sumir aðrir
gerst sekur um að nota þau tækifæri
sem honum hafa gefist til að formæla
kórónuveirunni (plebbalegt að kalla
hana covid-19). Kannski er það gert í
krafti þess að hún nái ekki til manns
eins og Jón sterki í tilviki Skugga-Sveins. Fyrir 58 ár-
um mátti sjá Útilegumennina í Háskólabíói og eru
tveir Ólafar minnisstæðastir. Ólafur bróðir og Ólafur
Ragnar. En það er háskaleikur að veðja á að nú séu
flestir að verða hólpnir. Á meðan hún gengur laus er
rétt að fara að öllu með gát. Veirufólinu er varla of-
verk að seilast lengra en tvo metra í vondum tilgangi
enda komin alla leið frá Kína. Og ekki öruggt að
grímur, spritt, sápurnar og heita vatnið dugi. Seinast
náði hún gamla forseta Fraklands, d’Estaing sem
orðinn var 94 ára, en virtist sprækur og spengilegur
fram undir það síðasta. Kom hingað sem fjármála-
ráðherra í fylgd með Pompidou til að hitta Nixon for-
seta Bandaríkjanna.
Svör vantar
Þeir sem segja fréttir trúðu því fyrir löngu að fjöl-
mennasta þjóð veraldar, og býr æði þétt að auki, hafi
komist betur frá veirunni, sem þaðan kom, en hinir
sem þurftu að flytja hana til sín þúsundir kílómetra
og sæta mörgum millilendingum, „til að fá notið
hennar“, eins og karlinn orðaði það í viðtalinu.
Þótt óþarft sé að draga svona fullyrðingar í efa, þá
vantar enn verulega upp á að upplýst sé hvernig þeir
fóru að því að kæfa veiruna þar eystra.
Fróðleikurinn getur varla verið leyndarmál enda
æskilegt fyrir heiminn allan að hinn hluti mannkyns
geti leikið afrekið eftir.
Eða telja spekingar og fræðingar og jafnvel þeir
sem eru taldir vera hvort tveggja að sú krýnda verði
síðasta veiran sem kemur frá Kína? Og einnig er eðli-
legt að spyrja: Af hverju koma veirur reglubundið frá
Kína og svo aðrar utan áætlunar eins og þessi?
Hún var ekki með öllu ill
En þótt sjálfsagt sé að halda áfram að hallmæla veir-
unni, þá er oftar nefnt að sumt sem af henni hefur
leitt sé skárra en sýndist í fyrstu. Vegakerfið hefur
hvílt sig, sem er gott. Náttúran er ekki í augnablikinu
troðin jafn miskunnarlaust niður og verið hafði þessi
örfáu ár eftir að krónan okkar ákvað að koma okkur á
lappir með því að skófla hingað förmum af þeim
ferðamönnum sem hvað minnst gefa af sér „per
stykki“, svo vitnað sé í annan karl í öðru viðtali.
Vonum við að framsæknir feministar fyrirgefi að
hlé sé tekið í tilvitnum í kerlinguna, þá sömu sem um
aldir var höfð fyrir því helsta sem barst frá bæ til
bæjar. Án „kerlingarinnar“ hefði næstum ekkert
frést hér nema erlendir atburðir sem voru nærri árs
gamlir og jafnvel eldri og opinberar tilkynningar um
að einhver hefði verið hýddur.
Er reyndar talið að þær fréttir sem „kerlingin
sagði“ hafi undantekningarlítið verið byggðar á mun
áreiðanlegri heimildum en þeim sem ríkið telur sér
nauðsynlegt að miðla núna með fimm milljarða styrk.
Kerling, hver sem hún var, þurfti að gá að sínu rykti.
Á því valt viðurgerningurinn.
Allt önnur
Þeir sem bera blak af íslensku fréttakerlingunni telja
hafið yfir allan vafa að hún hafi verið allt önnur Ella
en Mí Tú sem fangelsaði Weinstein, þann sem fjár-
magnaði bandaríska demókrata í sínum landshluta
svo myndarlega á meðan næði gafst til þess frá öðr-
um önnum fagurkerans. Hefur ekkert komið fram
sem bendir til þess að vinir hans viðurkenni að sökn-
uður hrjái þá, þótt umhendis geti verið fyrir Obama,
Biden, Hillary og svo ekki sé talað um Harris, að
finna sér eins notalegan og örlátan gestgjafa í fram-
tíðinni og þessi var.
Hvenær sem þetta góða fólk knúði dyra hjá Wein-
stein voru gulldyrnar opnaðar, sem er snúnara nú
eins og um vin þeirra hefur verið búið.
En síðan Weinstein hallaði aftur núverandi hliði
sínu hefur lítið heyrst frá Mí Tú og segir það sjálfsagt
eins og Bush sagði um sitt stríð: „Mission Accompl-
ished.“ Frá þeirri stundu hefur Írak færst hernaðar-
lega undir klerkastjórnina í Íran og verður slík för
talin nokkuð greið leið úr öskunni í eldinn. En það er
önnur saga.
Veiran bætir og kætir
En svo enn sé vikið að árangri veirunnar og hvernig
hún hefur með ógnandi framgöngu sinni stuðlað að
því að þeir sem eru að forðast hana hafi haft nokkuð
upp úr því krafsi, sem ekki var séð fyrir. Sölutölur
sýna að í stað þess að fara á mannamót er sýslað
heima við og smáleg viðhaldsvinna kláruð og mörgum
öðrum eftirlegukindum komið í hús. Það bætir eigna-
stöðuna án þess að glenna hana út á framtali. Því hef-
ur verið haldið á lofti af sérfræðingum í raunasögum
að fjölskyldur hafi lítt þolað breyttan rytma tilver-
unnar og að kynnast nánustu fjölskyldu sinni nánar
en til stóð. Mælingar á slíku nema þeir af tilkynn-
ingum til lögreglu eða barnaverndar.
Jákvæðu þættirnir sem fylgja aukinni samveru
flestra eru ekki tilkynntir og sérfræðingar telja því
að þeir séu í raun ekki til í skilningi vísindanna.
Enda kemur þeim þetta ekkert við. Það væri bein-
línis skemmdarverk að byrja að rannsaka eðlilega til-
veru venjulegs fólks.
Það er þekkt að vín er fyrirtaks meðreiðarsveinn á
góðra vina fundi, ef það gegnir ekki aðalhlutverki
þar.
Og einnig hitt að margur, sem ekki er illa háður
áfengi, getur helst ekki komið því niður nema sætur
sopinn sé hluti af samverustund með öðrum. Bréfrit-
ari heyrði nýlega sagt á þessa leið: „Ég áttaði mig
skyndilega á því að ég hef ekki dreypt á áfengi í hálft
ár. Ég tók enga ákvörðun um það. Sjálfsagt hef ég
stöku sinnum étið bæði sérrí og koníak í súpu, sósum
og konfektmola án þess að taka eftir því. En kost-
urinn við óviljandi bindindi er að át á slíku er hvergi
bannað, nema slíkt setji einstakling á hliðina.
Og ég sem hafði í mörg ár lofað konunni megrun
hrasaði svo um baðviktina og sá að garmurinn ég
hafði lést um sex kíló án þess að hafa fyrir því og án
þess að frétta af því fyrr en þá.“
En þótt bent sé á mildandi hlið á veiruheimsstyrj-
öld, til að treysta baráttuþrekið, þá bíða menn veiru-
loka með sífellt meiri óþreyju. Og sannfæringin er sú
að nú sé örugglega stutt í þau. Það er því lítið mál að
bíta á jaxlinn og bera höfuð hátt með grímuna. Og þá
gerum við það.
Þeir brugðust sem síst skyldu
Fjölmiðlar vestanhafs hafa farið skelfilega illa út úr
Trumps tíma þar. Jafnvel fjölmiðill eins og NYT sem
fór jafnan lítt leynt með það að hann hallaði sér til
Veiran ósýnilega og
veruleikinn ljóti sem
er að verða sýnilegur
’
En blaðran sprakk. Hvellurinn varð
mikill. Nú er komið á daginn að FBI hef-
ur verið í tvö ár að rannsaka mútur og pen-
ingaþvætti og skattsvik sem varða risa-
fjárhæðir þar sem Hunter Biden er
höfuðpaurinn ásamt Jim Biden, bróður Bid-
ens varaforseta og, eftir því sem best er vitað,
væntanlegs forseta.
Reykjavíkurbréf11.12.20