Lögmannablaðið - 2019, Síða 6

Lögmannablaðið - 2019, Síða 6
6 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 SIÐAREGLUR LÖGMANNA Siðareglur lögmanna (Codex Ethicus) fela í sér skilgreiningu á því hvað teljist góðir lögmannshættir en jafnframt er þar kveðið á um skyldur lögmanna gagnvart skjólstæðingum sínum og hvernig lögmenn skuli haga samskiptum sínum innbyrðis og við dómstóla og gagnaðila. Okkur lögmönnum er hollt að rifja þessi ákvæði reglulega upp og verður hér tæpt á nokkrum atriðum. Í I. kafla siðareglnanna er fjallað um góða lögmannshætti almennt. Samkvæmt 2. gr. skal lögmaður gæta heiðurs lögmannastéttarinnar, jafnt í lögmannsstörfum sínum sem öðrum. Samkvæmt 4. gr. má lögmaður ekki ljá þeim nafn sitt eða lögmannsaðstoð, er stunda vilja lögmannsstörf, en hafa ekki til þess rétt að lögum. Þá má lögmaður á engan hátt stuðla að því, að þeir er ekki hafa lögmannsréttindi, fái unnið verk, sem skulu lögum eða venju samkvæmt aðeins unnin af lögmanni. II. kafli fjallar um skyldur lögmanns gagnvart skjólstæðingi sínum. Þar kemur fram í 3. mgr. 8. gr. að lögmaður skuli ekki taka að sér verkefni, sem hann veit eða má vita að hann er ekki fær um að sinna af kunnáttu og fagmennsku, nema verkið sé unnið í samstarfi við hæfan lögmann á viðkomandi sviði. Þá á lögmaður ekki að taka að sér verkefni fyrir skjólstæðing sem hann veit ekki hver er. Um samskipti lögmanna og dómstóla er fjallað í III. kafla og kemur fram í 19. gr. að lögmaður skuli sýna dómstólum fulla tillitssemi og virðingu í ræðu, riti og framkomu. Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. er lögmanni óheimilt að leggja fram í dómi sáttatillögur gagnaðila, lagðar fram utan réttar nema með samþykki hans. Í IV. kafla er að finna ákvæði um samskipti lögmanna innbyrðis. Þar kemur fram í 25. gr. að lögmenn skuli hafa góða samvinnu sín á milli og sýna hver öðrum fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu. Samkvæmt 26. gr. má lögmaður ekki snúa sér beint til aðila um málefni, sem annar lögmaður fer með, án hans samþykkis, nema brýn nauðsyn krefji. Ávallt skal þá viðkomandi lögmanni þegar um það tilkynnt. Tekið er fram í 28. gr. að ef lögmanni er falið verkefni, sem annar lögmaður hefur áður sinnt, skuli hann ekki hefja vinnu við það fyrr en hann hefur fullvissað sig um að hagsmunagæslu fyrri lögmannsins sé lokið eða verði lokið án tafar. Lögmanni sé þó heimilt að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að firra aðila réttarspjöllum. Þá kemur fram í 33. gr. að lögmanni sé óheimilt að áskilja sér úr hendi annars lögmanns eða annars aðila sérstaka þóknun fyrir að vísa skjólstæðingi til lögmannsins. Lögmanni er einnig óheimilt að greiða öðrum aðila sérstaka þóknun fyrir að láta hann vísa skjólstæðingnum til sín. Fjallað er um lögmannsskrifstofu, auglýsingar o.fl. í VI. kafla siðareglnanna. Samkvæmt 38. gr. ber lögmaður persónulega ábyrgð á lögmannsstörfum sínum og fulltrúa sinna. Við firmanafn lögmannsskrifstofu skal ávallt tilgreina fullt nafn og starfstitil þess eða þeirra lögmanna sem hana eiga og ábyrgð bera á lögmannsstörfum hennar. Firmanafn lögmannsskrifstofu má ekki gefa í skyn að þar sé veitt nein önnur þjónusta en lögmanns- og fasteignaþjónusta. Lögmaður skal tilkynna stjórn LMFÍ hverjir séu eigendur félags um rekstur lögmannsstofu. Skal lögmaður sérstaklega gæta þess að óheimilt er að stunda lögmannsstörf nema á skrifstofu, sem rekin er af lögmanni, sbr. 19. gr. laga um lögmenn nr. 77/1998, nema undanþága hafi verið veitt samkvæmt 12. gr. laganna. Í 39. gr. segir að lögmanni sé óheimilt að tilkynna til dómstóla eða auglýsa aðra fulltrúa en þá sem eru starfandi á lögmannsskrifstofu hans. Skylt sé lögmanni að tilkynna fulltrúa sína til skrifstofu félagsins og gæta að öðru leyti skyldna samkvæmt 11. gr. laga um lögmenn. Þá segir í 43. gr. að stjórn félagsins hafi eftirlit með því að reglum þessum sé fylgt. BERGLIND SVAVARSDÓTTIR LÖGMAÐUR FORMAÐUR

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.