Lögmannablaðið - 2019, Qupperneq 11
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 11
í úrskurði nefndarinnar í máli nr. 26/2017, að frádregnum
innborgunum. Gerðu kærendur aukinheldur þá kröfu
„að nefndin úrskurði með aðfararhæfum hætti um
greiðsluskyldu [kærða]“.
Lauk málinu með úrskurði nefndarinnar, á þann veg
að kærði skyldi greiða félagi lögmannsins (sem gefið
hafði út hinn umþrætta reikning) fjárhæð sem svaraði
til þess endurgjalds sem ákveðið var með úrskurði í máli
nefndarinnar nr. 26/2017, að frádreginni innborgun
kærða.
Af framangreindum úrskurði og þeirri framkvæmd
úrskurðarnefndarinnar sem áður var vikið að, leiðir sú
áminning fyrir lögmenn, að vilji þeir nýta sér heimild 6.
mgr. 28. gr. laga um lögmenn, um fullnustuhæfi úrskurða
úrskurðarnefndar, er mikilvægt að þeir hugi sjálfir að
því að leggja erindi fyrir úrskurðarnefnd. Hvorki virðist
nægjanlegt í þeim efnum að umbjóðandi lögmanns hafi
vísað máli til nefndarinnar né að lögmaður geri grein fyrir
kröfu í greinargerð eða skriflegum athugasemdum við kæru
til nefndarinnar. Fyrir slíkum málatilbúnaði er ekki heimild.
Rétt að vekja athygli á því, að heimild til þess að bera
mál undir úrskurðarnefndina samkvæmt 1. mgr. 26. gr.
lögmannalaga, er bundin því skilyrði að ágreiningur sé
um rétt lögmanns til endurgjalds eða um fjárhæð þess
endurgjalds. Ekki virðist nægjanlegt að krafa lögmanns fáist
ekki greidd. Þá er áskilið að erindi vegna þessa sé vísað til
nefndarinnar áður en eitt ár er liðið frá því að kostur var
á að koma því á framfæri.
L’OR LUCENTE
HYLKJAVÉL
Nýlagað kaffi í hverjum bolla
L’ or Lucente er fullkomin fyrir smærri fyrirtæki, skrifstofur
og fundarherbergi. Vélin er fallega hönnuð og auðveld í notkun.
Ætluð fyrir 10-25 manns.
Vertu með kaffið í áskrift og þú færð vélina lánaða endurgjaldslaust.
Kannaðu málið hjá Fyrirtækjaþjónustu Ölgerðarinnar
í síma 412 8100 eða í vefverslun.olgerdin.is