Lögmannablaðið - 2019, Side 17
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 17
LÖGMENN
OG #METOO
Í öðru lagi var spurt um kynbundna áreitni, sem er hegðun
sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk
viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að
miðsbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru
ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða
móðgandi fyrir viðkomandi. Það voru 28,8% sem svöruðu
spurningunni játandi um hvort þeir/þær hefðu upplifað
slíka hegðun eða orðið vitni að slíkri hegðun í starfi sínu
sem lögmaður. Af þeim höfðu 86% ekki sagt neinum frá.
Í þriðja lagi var spurt um kynferðisleg áreitni, sem er hvers
kyns hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður
og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu
viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi,
fjandsamlegrar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi
aðstæðna. Hegðunin getur verið munnleg, táknræn eða
líkamleg. Það voru 22,28% sem svöruðu spurningunni
játandi um hvort þeir/þær hefðu orðið fyrir eða orðið
vitni að slíkri hegðun í starfi sínu sem lögmaður, og voru
já-svarendur bæði karlar og konur en konur þó ívið fleiri.
Af þeim sem svöruðu játandi höfðu 80,5% ekki sagt neinum
frá áreitinu.
Í fjórða lagi var spurt um einelti, sem er síendurtekin
hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan
hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr,
móðga, særa eða ógna viðkomandi eða valda honum ótta.
Skoðanaágreiningur t.d. vegna ólíkra hagsmuna fellur
ekki hér undir. Það voru 26% sem svöruðu spurningunni
játandi. Af þeim höfðu 68% ekki sagt neinum frá eineltinu.
Það er álit vinnuhópsins að niðurstaða könnunarinnar
sé alvarlegt umhugsunarefni fyrir lögmenn. Hópurinn
telur það með öllu óásættanlegt að tæplega þriðjungur
lögmanna hafi orðið fyrir eða orðið vitni að kynbundinni
áreitni á vinnustað sínum og tæplega fjórðungur hafi orðið
fyrir eða orðið vitni að kynferðislegri áreitni. Það er einnig
óásættanlegt að ríflega fjórðungur lögmanna hafi orðið
HÓPURINN TELUR ÞAÐ MEÐ ÖLLU
ÓÁSÆTTANLEGT AÐ TÆPLEGA ÞRIÐJUNGUR
LÖGMANNA HAFI ORÐIÐ FYRIR EÐA ORÐIÐ
VITNI AÐ KYNBUNDINNI ÁREITNI Á VINNUSTAÐ
SÍNUM OG TÆPLEGA FJÓRÐUNGUR HAFI ORÐIÐ
FYRIR EÐA ORÐIÐ VITNI AÐ KYNFERÐISLEGRI
ÁREITNI.