Lögmannablaðið - 2019, Page 19
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 19
fyrir eða orðið vitni að einelti. Vert er að hafa í huga að
slíkt hátterni getur í sumum tilvikum verið refsivert, en er
í öllum tilvikum siðferðislega ámælisvert.
Eftir því sem best er vitað eru ekki til sambærilegar kannanir
innan starfsstétta hér á landi og því erfitt að segja til um
hvar lögmenn standa í samanburði við aðrar stéttir. Hægt
er þó að líta til Alþjóðasambands lögmannafélaga (e.
International Bar Association, IBA) sem gerði sambærilega
könnun árið 2018 en sú könnun var þó öllu viðameiri en sú
sem hér hefur verið lýst. Könnun IBA náði til tæplega 7.000
félagsmanna í 135 löndum. Helstu niðurstöður þeirrar
könnunar voru jafnvel enn alvarlegri en að framan er lýst.
Í niðurstöðukafla þeirrar könnunar segir meðal annars:
The shoemaker’s son, according to the proverb, often goes
barefoot. And so it is that the legal profession – predicated on
upholding the law, maintaining the highest ethical standards
and advising other professions on doing the same – is rife with
bullying and sexual harassment. Such conduct is illegal in
many jurisdictions, contrary to professional obligations, and
immoral. Yet, as highlighted by this global survey – the largest of
its kind – bullying and sexual harassment affect a significant
portion of the legal workforce. From overbearing supervision to
physical violence, and from sexist slurs to sexual assault, the
nature of the conduct varies widely. But these incidents are
unified by a single factor: such conduct is unacceptable in the
modern legal workplace.1
Vinnuhópurinn tekur undir þessi ummæli vinnuhóps IBA.
Vinnuhópnum var af hálfu stjórnar Lögmannafélagsins
falið að leggja fyrir félagsmenn fyrrgreinda skoðanakönnun
og vinna úr niðurstöðunum og eftir þörfum gera tillögur
um nauðsynlegar breytingar t.a.m. á lögmannalögum og
eftir atvikum siðareglum lögmanna. Einnig að skoða gerð
tillagna um leiðbeiningar til vinnuveitenda um hvernig
bregðast skuli við meintum brotum og úrræði sem stæðu
þolendum til boða. Unnið er að gerð skýrslu af hálfu
hópsins sem væntanlega verður skilað til stjórnar LMFÍ
á nýju ári.
f.h. vinnuhóps LMFÍ
Þyrí Steingrímsdóttir lögmaður
1 https://www.telegraph.co.uk/news/2019/05/15/lawyers-risk-hypocrisy-metoo-scandal-third-women-profession/
Sjá má könnunina í heild sinni á heimasíðu Lögmannafélags Íslands www.lmfi.is.