Lögmannablaðið - 2019, Page 21
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 21
flutt. Þess ber að geta að í undantekningartilvikum er
málflutningur í almennri deild (Chambers stigi) og hefur
það einu sinni gerst í máli er varðar íslenska ríkið. Dómi
undirdeildar má reyna að skjóta til yfirdeildar og gangi
málið þangað er almennt munnlegur málflutningur.
Þegar dómstóllinn tilkynnir aðilum að mál verði munnlega
flutt sendir hann þeim um leið spurningar en þá opnast
málið upp á nýtt þannig að Grand Chamber getur tekið
málið fyrir á öðrum forsendum. Í kjölfarið ber aðilum
að skila enn einni greinargerðinni en til viðbótar þarf
að undirbúa málflutninginn. Fanney segir að þau hafi
öll fjögur í teyminu unnið að undirbúningnum og mikill
tími hafi farið í hann. Fyrir málflutninginn hafi forseti
réttarins boðað málflytjendur á skrifstofu forsetans, þar sem
hann hafi heilsað upp á þau og farið stuttlega yfir skipulag
málflutningsins. Stemningin í þeirri heimsókn hafi verið
svipuð því þegar forseti Hæstaréttar hafi kallað hana á
fund að loknum prófmálum. Dómsalurinn sjálfur hafi svo
verið þétt setinn af frönskum dómurum og rússneskum
lögfræðingum sem voru mættir til þess að fylgjast með og
kynna sér dómstólinn. Auk þess sitja dómarar til viðbótar
í salnum sem varamenn ef eitthvað kemur upp á hjá
dómurunum sem sátu málið. Þeir geta þá tekið þátt í dómi
enda hafa þeir þá setið allan málflutninginn.
Fanney hóf störf á Mörkinni lögmannsstofu að loknu
laganámi, þar sem hún starfaði í þrjú ár. Hún segir að
það hafi því verið nokkuð skrítið að sjá Gest Jónsson og
Ragnar Hall sitja í salnum þegar hún var þangað komin
til þess að flytja mál ríkisins gegn þeim persónulega. Þeir
hafi þó verið mjög léttir og sýnt því skilning.
Dómsalurinn er töluvert minni en hann virðist á upptökum
og það kom Fanneyju á óvart hversu nálægt dómur unum
lögmenn standa í málflutningnum. Þá er allur mál flutn-
ingur fyrir yfirdeildinni tekinn upp í hljóði og mynd og er
aðgengilegur á heimasíðu dómstólsins. Fanney segir það
hafa truflað örlítið í fyrstu enda séu íslenskir málflytjendur
ekki vanir því. Ræðutími var takmarkaður við þrjátíu
FANNEY SEGIR AÐ ÁLAG Í ÞESSUM MÁLAFLOKKI
HAFI AUKIST VERULEGA HIN SÍÐARI ÁR. HÚN
LÝSIR FERLINU ÞANNIG AÐ KÆRUR ÞURFI AÐ
KOMAST Í GEGNUM „FYRSTU SÍU“ DÓMSTÓLSINS
ÁÐUR EN DÓMSTÓLLINN ÓSKAR EFTIR
ATHUGASEMDUM FRÁ RÍKINU.
Guðrún Sesselja Arnardóttir, Fanney Rós Þorsteinsdóttir, María Thejll og Einar Karl Hallvarðsson að loknum málflutningi.