Lögmannablaðið - 2019, Qupperneq 33
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19 33
sinn sýndi hæfileika sína sem gamanleikari í stuttmynd sem
sýnd var á árshátíð okkar fyrir allmörgum árum. Þennan
leik endurtók hann síðan árlega og eftirá að hyggja held ég
að grínið hjá honum hafi falist í því að gera góðlátlegt grín
að sjálfum sér. Karakterinn sem hann lék hét bara Hákon.
Að leiðarlokum vil ég þakka Hákoni samfylgdina. Stærsta
sameiginlega samverustund okkar var er við stóðum sem
svaramenn í brúðkaupi dóttur minnar og sonar hans árið
2010. Saman eigum við þrjá afastráka sem eiga eftir að
sakna afa Hákonar eins og við öll.
Blessuð sé minning málflytjandans Hákonar Árnasonar.
Árni Vilhjálmsson
Hákon Árnason hæstaréttarlögmaður lést hinn 24. október
sl. Hákon fæddist hinn 5. júní 1939 og var því 80 ára er
hann lést. Hann sat í stjórn Lögmannafélags Íslands
1977-1979 og 1986-1989, þar af sem formaður 1988-1989.
Hákon naut ávallt mikillar virðingar innan félagsins og
var kjörinn heiðursfélagi Lögmannafélags Íslands árið
2011. Þá var hann góð fyrirmynd annarra lögmanna, jafnt í
lögmannsstörfum sínum sem og í góðum lögmannsháttum.
Hákon Árnason átti langan og glæsilegan starfsferil og
þótti einn af allra bestu málflytjendum hér á landi síðustu
áratugina. Lögmannafélag Íslands þakkar samfylgdina í
gegnum árin og sendir sínar innilegustu samúðarkveðjur
til eiginkonu, barna og barnabarna. Blessuð sé minning
Hákonar Árnasonar.
F.h. Lögmannafélags Íslands
Berglind Svavarsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Ásar – þýðingar og túlkun slf
Eftirfarandi þýðendur og túlkar starfa innan vébanda
Ása – þýðinga og túlkunar slf:
Ellen Ingvadóttir, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi
Bjarni Gunnarsson, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi
Niels Rask Vendelbjerg, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi
Jóhann Guðnason, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi
Matthías M. Kristiansen, þýðandi
Gísli S. Ásgeirsson, þýðandi
Almennar og löggiltar þýðingar, dóm- og ráðstefnutúlkun, textaráðgjöf.
Ásar – þýðingar og túlkun slf » Skipholti 50b » sími: 562-6588 » netf: ellening@simnet.is
Gleðileg jól