Tölvumál - 01.01.2016, Page 22
UTmessan 2016
Upplýsingatæknimessan var haldin í sjötta sinn 4. og 5. febrúar
2016 í Hörpu í formi ráðstefnu og sýningar á föstudegi fyrir fagfólk í
upplýsingatækni og sýningu og örkynningum sem var opin öllum á
laugardegi. Upplýsingatækniverðlaun Ský voru einnig veitt á UTmessunni.
Hvað er UTmessan og fyrir hverja?
UTmessan er einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum og hefur verið
haldin árlega frá árinu 2011. Tilgangurinn er ekki síst til að sýna
almenningi hversu stór og umfangsmikil þessi grein er orðin hér á landi.
Á UTmessuna mæta öll helstu tölvu og tæknifyrirtæki landsins og taka
þátt með einum eða öðrum hætti og hvetja þannig fólk til að kynna sér
um hvað tölvuiðnaðurinn snýst.
Á UTmessunni sést fjölbreytileiki upplýsingatækninnar og þar sést svart
á hvítu að allir hafa möguleika á að starfa í tölvugeiranum. Starfssviðið er
bæði breitt og fjölbreytt og hentar bæði konum og körlum. Tilgangur
UTmessunnar er að sjá aukin fjölda ungs fólks velja sér tölvugeirann sem
framtíðarstarfsvettvang. Einnig viljum vekja áhuga almennings á
upplýsingatækni og mikilvægi hennar á öllum sviðum daglegs lífs.
Að UTmessunni 2016 stóð Skýrslutæknifélagið í samstarfi við
Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, og Samtök iðnaðarins með
dyggum stuðningi Platinum styrktaraðilanna Sensa, Nýherja, Opinna
kerfa og Gagnaveitu Reykjavíkur.
Yfir 1.000 manns voru á ráðstefnu UTmessunnar á föstudeginum og var
það mál manna að gæði ráðstefnunnar hafi verið framar vonum. Yfir 50
fyrirlestrar voru í boði á 10 þemalínum ráðstefnunnar og endaði
ráðstefnudagurinn með fróðlegum erlendum lykilfyrirlestrum í Eldborg.
Yfir 10 þúsund manns mættu á opið hús á laugardeginum og var
stemming mjög góð. Ungir sem aldnir gengu um og fengu að sjá nýjustu
tækni. Hönnunarkeppni iðn og vélaverkfræðinema HÍ laðaði marga að
ásamt glæsilegu sýningarrými háskólanna í Norðurljósum og Silfurbergi.
Mikið var um að vera í sýningarbásum fyrirtækjanna sem skörtuðu sínu
fegursta á messunni. Gaman var að sjá fjölbreytileika gesta sem kíktu á
UTmessuna þennan dag og það er óhætt að segja að UTmessan hefur
stimplað sig inn hjá Íslendingum og lítur út fyrir að viðburðinn muni vaxa
og dafna enn meira á næstu árum. Undirbúningur fyrir næstu UTmessu
er hafinn og er það von okkar að enn fleiri taki þátt í henni og við getum
þannig sýnt Íslendingum hve mikill hugur er í fólki í UT geiranum.
22