Tölvumál - 01.01.2016, Qupperneq 22

Tölvumál - 01.01.2016, Qupperneq 22
UTmessan 2016 Upplýsingatæknimessan var haldin í sjötta sinn 4. og 5. febrúar 2016 í Hörpu í formi ráðstefnu og sýningar á föstudegi fyrir fagfólk í upplýsingatækni og sýningu og örkynningum sem var opin öllum á laugardegi. Upplýsingatækniverðlaun Ský voru einnig veitt á UTmessunni. Hvað er UTmessan og fyrir hverja? UTmessan er einn stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum og hefur verið haldin árlega frá árinu 2011. Tilgangurinn er ekki síst til að sýna almenningi hversu stór og umfangsmikil þessi grein er orðin hér á landi. Á UTmessuna mæta öll helstu tölvu­ og tæknifyrirtæki landsins og taka þátt með einum eða öðrum hætti og hvetja þannig fólk til að kynna sér um hvað tölvuiðnaðurinn snýst. Á UTmessunni sést fjölbreytileiki upplýsingatækninnar og þar sést svart á hvítu að allir hafa möguleika á að starfa í tölvugeiranum. Starfssviðið er bæði breitt og fjölbreytt og hentar bæði konum og körlum. Tilgangur UTmessunnar er að sjá aukin fjölda ungs fólks velja sér tölvugeirann sem framtíðarstarfsvettvang. Einnig viljum vekja áhuga almennings á upplýsingatækni og mikilvægi hennar á öllum sviðum daglegs lífs. Að UTmessunni 2016 stóð Skýrslutæknifélagið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, og Samtök iðnaðarins með dyggum stuðningi Platinum styrktaraðilanna Sensa, Nýherja, Opinna kerfa og Gagnaveitu Reykjavíkur. Yfir 1.000 manns voru á ráðstefnu UTmessunnar á föstudeginum og var það mál manna að gæði ráðstefnunnar hafi verið framar vonum. Yfir 50 fyrirlestrar voru í boði á 10 þemalínum ráðstefnunnar og endaði ráðstefnudagurinn með fróðlegum erlendum lykilfyrirlestrum í Eldborg. Yfir 10 þúsund manns mættu á opið hús á laugardeginum og var stemming mjög góð. Ungir sem aldnir gengu um og fengu að sjá nýjustu tækni. Hönnunarkeppni iðn­ og vélaverkfræðinema HÍ laðaði marga að ásamt glæsilegu sýningarrými háskólanna í Norðurljósum og Silfurbergi. Mikið var um að vera í sýningarbásum fyrirtækjanna sem skörtuðu sínu fegursta á messunni. Gaman var að sjá fjölbreytileika gesta sem kíktu á UTmessuna þennan dag og það er óhætt að segja að UTmessan hefur stimplað sig inn hjá Íslendingum og lítur út fyrir að viðburðinn muni vaxa og dafna enn meira á næstu árum. Undirbúningur fyrir næstu UTmessu er hafinn og er það von okkar að enn fleiri taki þátt í henni og við getum þannig sýnt Íslendingum hve mikill hugur er í fólki í UT geiranum. 22

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.