Tölvumál - 01.01.2016, Side 26
26
Stöðug aukning hefur verið í flugumferð síðastliðna áratugi og eru spár
sammála um að ekkert lát verði á þeirri aukningu í nánustu framtíð.
Rannsóknir hafa sýnt að það sem gæti einna helst haldið aftur af þeirri
þróun sé takmarkað framboð af hæfum flugumferðastjórum til starfa við
flugumferðastjórn. Um er að ræða verulega krefjandi starf sem kallar á
aukna eftirspurn eftir einstaklingum með sérstaka hæfni. Til að mæta
þessarri eftirspurn væri hægt að leggja áherslu á að fjölga
flugumferðastjórum, finna leiðir til að auka afkastagetu þeirra eða auka
afkastagetu kerfisins í heild sinni. Á sama tíma er vert að hafa í huga
mikilvægi þess að viðhalda þarf ströngum öryggisviðmiðum.
Rannsóknir okkar hafa það að markmiði að þróa mæli sem fylgist með
flugumferðastjórum í starfi og gefur til kynna þegar of mikið vinnuálag er
til staðar til að hann geti leyst úr ástandinu á öruggan og fullnægjandi
hátt. Hingað til hefur fjöldi flugvéla á umsjónarsvæði verið sú mælieining
sem notuð hefur verið til að mæla vinnuálag og áætla nauðsynlegan
fjölda flugumferðastjóra fyrir vaktir. Hins vegar segir fjöldinn bara hálfa
söguna þar sem ekki er tekið tillit til afstöðu þeirra gagnvart hvor öðrum
og hversu mikil afskipti þarf að hafa af þeim.
VINNUÁLAG FLUGUMFERÐASTJÓRA
Dregin er upp mynd af vinnuálagi flugumferðstjóra í mynd 1, og er
líkanið lykkja með afturvirkniáhrifum þar sem útmerkið hefur áhrif á
innmerkið, þ.e. aðgerðir flugumferðastjóra hafa áhrif á ástand flugsvæðis
hans sem hafa svo hugsanlega áhrif til breytingar á seinni tíma
ákvarðanir flugumferðastjórans. Staða flugsvæðis á hverjum tímapunkti
gefur til kynna það flækjustig sem flugumferðastjórinn þarf að takast á
við. Þetta flækjustig veldur vinnuálagi sem skiptist annars vegar í
verkefnaálag og hins vegar hugrænt álag.
Verkefnaálag tekur til þess verkefnis sem liggur fyrir óháð því hver leysir
það. Um verkefnaálag er oftast hægt að nálgast mælanlegar upplýsingar
til að nýta í vinnuálagsmæli. Hugrænt vinnuálag (e. cognitive workload)
er vandasamara hugtak og tekur til þeirra huglægu (e. subjective) þátta
sem viðkemur manneskjunni sem leysir verkefnin. Um er að ræða
mannlega þáttinn sem er mjög einstaklingsbundinn og tekur til m.a.
aldurs, reynslu, líkamlegs ástands, persónuleika og hæfileika
viðkomandi. Flugumferðastjórinn sinnir starfi sínu með því að hafa eftirlit
með stöðu umferðar og tekur svo í kjölfarið ákvörðun sem hefur áhrif á
stöðu svæðis. Niðurstaðan gæti verið sú að aðgerða sé ekki þörf og að
nægjanlegt sé að fylgjast með hvort mál leysast af sjálfu sér. Ef
flugumferðarstjórinn er hins vegar undir miklu vinnuálagi gæti komið til
þess að hann taki ákvörðun í samræmi við það álag á kostnað þess
hversu nauðsynleg aðgerðin hefði verð. Mikið álag getur þar af leiðandi
leitt til annarrar ákvörðunar en ella hefði verið tekin.
VINNUÁLAGSMÆLIR
Til að hanna sjálfvirkan mæli fyrir vinnuálag þurfa þær færibreytur sem
gefa best til kynna slíkt álag að vera þekktar. Því þarf að fara fram
rannsóknarvinna til að greina þær breytur sem hafa ekki verið
skilgreindar áður eða ekki er hægt að nálgast á mælanalegu formi.
Sumar breytur er einfalt að nálgast, t.d. upplýsingar úr rekstarkerfum
flugumferðastjóra sem gefa rauntímaupplýsingar um þær flugvélar sem
eru á umráðasvæði hvers og eins. Þessu til viðbótar eru til staðar
upplýsingar um veðurfar og áæltanir um flugleiðir sem byggja má á að
einhverju leyti. Hér vandast hins vegar málið enda þarf að gæta þess að
eftirlit og mælingar á flugumferðastjórum hafi ekki truflandi áhrif á störf
þeirra og þar með eru útilokaðar margar af þeim aðferðum þar sem
tengja þarf einstakling við einhverskonar mæli, s.s. blóðþrýstingsmæli
eða heilarafrit (EEG). Því þarf að nota aðrar leiðir til að mæla hið huglæga
starf sem fer fram við flugumferðastjórn. Tilraunir hafa verið fram
kvæmdar þar sem atferli flugumferðastjóra hefur verið rannsakað m.t.t.
vinnuálags og er þar fylgst með þeim að störfum og viðbrögð þeirra
rannsökuð. Sjáfsmatspróf og frammistaða við lausn á viðbótarverkefnum
á sama tíma og unnið er, gefa einnig vísbendingar en eru ekki til þess
fallin að vera hluti af sjálfvirkum mæli.
Okkar nálgun er að fylgjast með hugræna þætti vinnuálagsins með því
að vakta talsamskipti flugumferðastjóra. Flugumferðarstjórar eru við
störf sín í stöðugum samskiptum við flugmenn og nærliggjandi
flugumferðarsvæði og ætti eftirlit af þessu tagi því ekki að hafa áhrif á,
eða fela í sér nokkurt inngrip inn í, þeirra daglegu störf. Raddgreining er
framkvæmd þannig að fyrst fer fram einkennaval úr rödd með aðferðum
merkjafræði og raddmerkin eru því næst flokkuð með mynstur
greiningar aðferðum (e. pattern recognition methods). Til að sameina
alla þessa þætti er einna helst mikilvægt að nýta vel þá hröðu þróun
sem orðið hefur í afkastagetu tölvukerfa í dag ásamt því að þróa sífellt
skilvirkari reiknirit til að létta útreikninga.
Rannsóknir á hugrænu vinnuálagi (e. cognitive workload) benda til þess
að breyting á hugrænu álagi hafi áhrif á röddina og að hægt sé að
greina þau áhrif og flokka. Eftir frekari rannsóknir á þessu sviði mun fara
fram greining á því hvaða breytur innihalda helstu upplýsingarnar og
hver ákjósanlegasta samsetning þeirra kunni að vera. Þegar besta
SKÝJUM OFAR
Eydís Huld Magnúsdóttir, doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík
Yfirlit yfir vinnuálag flugumferðastjóra á hverjum tímapunkti