Tölvumál - 01.01.2016, Síða 26

Tölvumál - 01.01.2016, Síða 26
26 Stöðug aukning hefur verið í flugumferð síðastliðna áratugi og eru spár sammála um að ekkert lát verði á þeirri aukningu í nánustu framtíð. Rannsóknir hafa sýnt að það sem gæti einna helst haldið aftur af þeirri þróun sé takmarkað framboð af hæfum flugumferðastjórum til starfa við flugumferðastjórn. Um er að ræða verulega krefjandi starf sem kallar á aukna eftirspurn eftir einstaklingum með sérstaka hæfni. Til að mæta þessarri eftirspurn væri hægt að leggja áherslu á að fjölga flugumferðastjórum, finna leiðir til að auka afkastagetu þeirra eða auka afkastagetu kerfisins í heild sinni. Á sama tíma er vert að hafa í huga mikilvægi þess að viðhalda þarf ströngum öryggisviðmiðum. Rannsóknir okkar hafa það að markmiði að þróa mæli sem fylgist með flugumferðastjórum í starfi og gefur til kynna þegar of mikið vinnuálag er til staðar til að hann geti leyst úr ástandinu á öruggan og fullnægjandi hátt. Hingað til hefur fjöldi flugvéla á umsjónarsvæði verið sú mælieining sem notuð hefur verið til að mæla vinnuálag og áætla nauðsynlegan fjölda flugumferðastjóra fyrir vaktir. Hins vegar segir fjöldinn bara hálfa söguna þar sem ekki er tekið tillit til afstöðu þeirra gagnvart hvor öðrum og hversu mikil afskipti þarf að hafa af þeim. VINNUÁLAG FLUGUMFERÐASTJÓRA Dregin er upp mynd af vinnuálagi flugumferðstjóra í mynd 1, og er líkanið lykkja með afturvirkniáhrifum þar sem útmerkið hefur áhrif á innmerkið, þ.e. aðgerðir flugumferðastjóra hafa áhrif á ástand flugsvæðis hans sem hafa svo hugsanlega áhrif til breytingar á seinni tíma ákvarðanir flugumferðastjórans. Staða flugsvæðis á hverjum tímapunkti gefur til kynna það flækjustig sem flugumferðastjórinn þarf að takast á við. Þetta flækjustig veldur vinnuálagi sem skiptist annars vegar í verkefnaálag og hins vegar hugrænt álag. Verkefnaálag tekur til þess verkefnis sem liggur fyrir óháð því hver leysir það. Um verkefnaálag er oftast hægt að nálgast mælanlegar upplýsingar til að nýta í vinnuálagsmæli. Hugrænt vinnuálag (e. cognitive workload) er vandasamara hugtak og tekur til þeirra huglægu (e. subjective) þátta sem viðkemur manneskjunni sem leysir verkefnin. Um er að ræða mannlega þáttinn sem er mjög einstaklingsbundinn og tekur til m.a. aldurs, reynslu, líkamlegs ástands, persónuleika og hæfileika viðkomandi. Flugumferðastjórinn sinnir starfi sínu með því að hafa eftirlit með stöðu umferðar og tekur svo í kjölfarið ákvörðun sem hefur áhrif á stöðu svæðis. Niðurstaðan gæti verið sú að aðgerða sé ekki þörf og að nægjanlegt sé að fylgjast með hvort mál leysast af sjálfu sér. Ef flugumferðarstjórinn er hins vegar undir miklu vinnuálagi gæti komið til þess að hann taki ákvörðun í samræmi við það álag á kostnað þess hversu nauðsynleg aðgerðin hefði verð. Mikið álag getur þar af leiðandi leitt til annarrar ákvörðunar en ella hefði verið tekin. VINNUÁLAGSMÆLIR Til að hanna sjálfvirkan mæli fyrir vinnuálag þurfa þær færibreytur sem gefa best til kynna slíkt álag að vera þekktar. Því þarf að fara fram rannsóknarvinna til að greina þær breytur sem hafa ekki verið skilgreindar áður eða ekki er hægt að nálgast á mælanalegu formi. Sumar breytur er einfalt að nálgast, t.d. upplýsingar úr rekstarkerfum flugumferðastjóra sem gefa rauntímaupplýsingar um þær flugvélar sem eru á umráðasvæði hvers og eins. Þessu til viðbótar eru til staðar upplýsingar um veðurfar og áæltanir um flugleiðir sem byggja má á að einhverju leyti. Hér vandast hins vegar málið enda þarf að gæta þess að eftirlit og mælingar á flugumferðastjórum hafi ekki truflandi áhrif á störf þeirra og þar með eru útilokaðar margar af þeim aðferðum þar sem tengja þarf einstakling við einhverskonar mæli, s.s. blóðþrýstingsmæli eða heilarafrit (EEG). Því þarf að nota aðrar leiðir til að mæla hið huglæga starf sem fer fram við flugumferðastjórn. Tilraunir hafa verið fram­ kvæmdar þar sem atferli flugumferðastjóra hefur verið rannsakað m.t.t. vinnuálags og er þar fylgst með þeim að störfum og viðbrögð þeirra rannsökuð. Sjáfsmatspróf og frammistaða við lausn á viðbótarverkefnum á sama tíma og unnið er, gefa einnig vísbendingar en eru ekki til þess fallin að vera hluti af sjálfvirkum mæli. Okkar nálgun er að fylgjast með hugræna þætti vinnuálagsins með því að vakta talsamskipti flugumferðastjóra. Flugumferðarstjórar eru við störf sín í stöðugum samskiptum við flugmenn og nærliggjandi flugumferðarsvæði og ætti eftirlit af þessu tagi því ekki að hafa áhrif á, eða fela í sér nokkurt inngrip inn í, þeirra daglegu störf. Raddgreining er framkvæmd þannig að fyrst fer fram einkennaval úr rödd með aðferðum merkjafræði og raddmerkin eru því næst flokkuð með mynstur­ greiningar aðferðum (e. pattern recognition methods). Til að sameina alla þessa þætti er einna helst mikilvægt að nýta vel þá hröðu þróun sem orðið hefur í afkastagetu tölvukerfa í dag ásamt því að þróa sífellt skilvirkari reiknirit til að létta útreikninga. Rannsóknir á hugrænu vinnuálagi (e. cognitive workload) benda til þess að breyting á hugrænu álagi hafi áhrif á röddina og að hægt sé að greina þau áhrif og flokka. Eftir frekari rannsóknir á þessu sviði mun fara fram greining á því hvaða breytur innihalda helstu upplýsingarnar og hver ákjósanlegasta samsetning þeirra kunni að vera. Þegar besta SKÝJUM OFAR Eydís Huld Magnúsdóttir, doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík Yfirlit yfir vinnuálag flugumferðastjóra á hverjum tímapunkti

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.