Tölvumál - 01.01.2016, Qupperneq 28

Tölvumál - 01.01.2016, Qupperneq 28
28 Í grein sem höfundur skrifaði fyrir Ský fyrr á árinu var komið inn á þann vanda sem blasir við þar sem mikill fjöldi stakra beina (routera) fyrir þráðlaus net, til dæmis í fjölbýlishúsum, er á litlu svæði auk erfiðrar dreifingar með „skuggum“. Við skulum fylgja þessu eftir og skoða með forhönnun tillögur að lausnum. Á heimilum kemur hver íbúðaeigandi á laggirnar sínu eigin þráðlausa neti með notkun beina sem fjarskiptafyrirtækin láta í té og flestir geta sent það sem kallað er „dual band“, sem eru tvenn tíðnibönd, 2,4 GHz og 5 GHz. Það sem fæstir notendur vita er að neðra tíðnibandið hefur aðeins þrjár rásir og því þarf ekki mikið til svo að sömu rásirnar verði endurteknar á sama sendingasvæðinu. Auk þess er sendistyrkur beinanna iðulega nægur til að merkið berist milli íbúða og ef rásir lenda saman byrja vandræði að skjóta upp kollinum í formi hægagangs. Stundum er bandbreidd beinanna stillt þannig að þeir nota ekki bara eina rás heldur tvær af þremur og það getur valdið enn meiri vandræðum. Þó 5 GHz tíðnibandið sé talin lausn við rása skorti gæti gengið á þann kost ef bandbreidd beinanna er stillt til að ná yfir nokkrar rásir. Síðan heyrist að notendur reyni að laga erfiða dreif ingu með því auka við sendiaflið umfram það sem evrópskar reglur leyfa, og áhrifin verða til þess að enn meiri rásasamsláttur gæti átt sér stað. Auk vandans við rásanotkun og miklar líkur á samslætti sýnir reynslan að traustbyggt íslenskt húsnæði er hamlandi fyrir dreifingu þráðlausra neta svo beita þarf öðrum lausnum en treysta á útsendingu frá einum beini inni á heimili. Rammgerðir milliveggir og álmur og tvær eða fleiri hæðir spila þar inn í. Staðsetning tækjanna er lykilatriði fyrir þjónustuna en ekki eru til útreikningar á þráðlausum fjarskiptum innan húsa og hegðun þráðlausra neta því ófyrirséð og ekkert vitað fyrirfram um bestu staðsetningu sendanna. Þetta er atriði sem ætti alltaf að huga að við nýbyggingar. Samhliða þessu vex umferðin og þar sem áður var hægt að búa við tilfallandi rásasamslátt verður það ómögulegt ástand þegar miðlæg sókn í gögn verður reglan og umferð stöðug. SAMEIGINLEG DREIFIKERFI Það er því nokkuð ljóst að til lengri tíma litið verður ekki hægt að búa við slíkt ástand og þörf á að stokka upp spilin og taka málin með þráðlausa netdreifingu í fjölbýli heilstætt fyrir og húsnæðishönnun ætti alltaf að taka það með í reikninginn. Notkun núna er þegar mikil inni á heimilum í formi ýmissa notendatækja eins og fartölva og snjallsíma en meira af búnaði er að koma inn sem hægt er að tengja við þráðlaus net. Sjónvarpstæki og tilheyrandi reið á vaðið en hversdagslegar græjur eins og ísskápar eru núna að slást í hópinn og svo má áfram telja. Þegar litið er á stöðuna eins og henni er lýst að framan má sjá hliðstæðu í móttöku á sjónvarpi. Fljótlega upp úr 1960, þegar almenningur fór að nýta sér tæknina, voru loftnetalagnir í fjölbýlishúsum lítt þekkt fyrirbæri og málin leyst með ýmsu móti en það blasti við að best væri að búa til sameiginlegt dreifikerfi sem næði til allra íbúðanna og allar götur síðan hefur það verið lausnin. Ekki þarf að hugsa til þess hvaða glundroði hefði orðið ef hver og einn íbúi hefði leyst málið með eigin lögn og loftneti. Sameiginleg flutningskerfi af ýmsu tagi er því venjan í fjölbýlishúsum og þráðlaus fjarskipti gætu farið í þann farveg, líkt og sjónvarp gerði í eina tíð. Með því væri bæði hægt að tryggja gæði í formi greiðrar umferðar vegna bættrar rásanotkunar og hægt að hanna dreifingu um húsnæðið þannig að útbreiðslan væri nánast án skuggasvæða. Það eru auðvitað ýmis ljón á veginum varðandi samanburðinn milli sjónvarps og gagnafjarskipta og listinn þar langur og ekki hlaupið að því að hanna inn í eldra húsnæði. Kannski er skírskotun til hótellausna nærtækust, en orð eru til alls fyrst og hér á eftir eru tvær hugmyndir sem gætu verið innan þessa ramma að hanna sameiginlegt þráðlaust net í fjölbýlishús. HÚSNÆÐISHÖNNUN Reginmunur er á milli íbúða­ og atvinnuhúsnæðis varðandi hegðun þráðlausra neta. Atvinnuhúsnæði í dag er iðulega með opnum rýmum þar sem nokkur fjöldi fólks starfar saman og einkaskrifstofur eru mikið til liðin tíð. Einn aðgangsstaður (access punktur) í hverju opnu rými hefur því greiða leið að mörgum notendum og stærri vinnustaðir eru með mörgum aðgangsstöðum sem vinna saman og stilla rásir og afl innbyrðis til að besta notkun hverju sinni. Íbúðahúsnæði er hólfað niður í lokuð rými og það kemur niður á sendisviði þráðlausu netanna. Að auki eru beinar heimilanna stök sjálfstæð tæki og ef bæta þarf dreifinguna er það nokkur fyrirhöfn. Staðsetning beinanna ræðst af því hvar símalögn, og í seinni tíð ljósleiðaralögn kemur inn í rýmin. SAMANBURÐUR MILLI LAUSNA Í dæmunum hér á eftir er hluti af þriggja hæða fjölbýlishúsi tekinn fyrir. Með forhönnun má sjá áhrif af ýmsum möguleikum og lausnum á því að koma upp sameiginlegu þráðlausu neti. Þetta tiltekna hús var byggt árið 1970 og veggir eru ýmist járnbentir burðarveggir, sem hafa talsverða deyfingu en þar eru einnig léttari veggir sem þráðlaust merki á greiðari leið í gegnum. Dæmin nota þrjá stigaganga en sá sem er lengst til hægri á myndunum hefur þá sérstöðu að aðgengi er í þrjár íbúðir frá hverjum stigapalli en inn í tvær frá hinum. Uppröðun herbergjanna gerir því aðrar kröfur á dreifingu þráðlausa netsins en í íbúðunum í miðjunni og vinstra megin. SAMEIGINLEGT ÞRÁÐLAUST NET Í FJÖLBÝLISHÚSI Einar H. Reynis, rekstrar­ og rafiðnfræðingur hjá Verkís og fyrrverandi ritstjóri Tölvumála.

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.