Tölvumál - 01.01.2016, Page 35
35
ÞARF AÐ META ALLT VERKEFNIÐ?
Ef það á að gera áætlanir og mæla framvindu verður að hafa eitthvað til
að mæla. Gott er að stilla verkhlutunum upp þannig að þeir séu stórir í
upphafi og hægt að meta þá grófar. Þá hluta sem á að byrja á er hægt
að brjóta niður í minni hluta og hittast og meta þá fyrst. Heildarmatið
getur því tekið breytingum ef að verkhlutar eru brotnir niður. Til þess að
gera þetta getur verið gott að gera skýrar greinarmun á stærra matinu
og því ítarlegra.
Til dæmis má gera stærra matið með stærðunum Stórt, Miðlungs og
Lítið og síðan þegar farið er að meta þá vinnu sem er verið að fara í er
hægt að fara í punktana. Þá er öllum ljóst að ef að hluti er metinn á Stórt
þá á eftir að brjóta það meira niður. Þannig er hægt að byrja vinnuna á
því sem er búið að brjóta meira niður í minni hluta og hittast svo
reglulega og halda áfram að fá skýrari mynd.
HVENÆR Á AÐ SPILA PLANNING POKER
Hvenær sem þörf er á að meta einhvern hluta. Ef eitthvað er ómetið í
verkefninu er tilefni til að hittast og spila. Gott getur verið að hittast
regulega og fara yfir það sem er ómetið eða næst á dagskrá og kalla
fram umræður og hugmyndir.
Planning Poker er verkfæri sem nauðsynlegt er að vita hvenær og
hvernig á að nota. Það er hægt að finna aðrar leiðir til að meta og kalla
fram sameiginlegan skilning og því er gott að nota það sem hentar
hverju sinni.
Þó að takmarkið sé að meta verkefni þá eru samskiptin eitt það
mikilvægasta sem leikurinn kallar fram. Staður þar sem óhindruð
samskipti og hugmyndir fá hljómgrunn eru ómetanlegur ávinningur
þess að spila leikinn.
Plannig Poker má spila til að meta hvers konar verkefni og er hægt að
spila með alls kyns spilum, fingrum á höndum, benda á númer á blaði
eða nota hugbúnað sem líkir eftir spilum. Það er samt alltaf skemmtilegra
að sitja saman á fundi sem er kallaður Planning Poker með spil milli
fingranna og halda þeim leyndum (eins og í póker) þangað til að allir
sýna og eiga góðar samræður um væntanleg verkefni.
HVAR FÆ ÉG PLANNIG POKER SPIL?
Agilenetið hefur útbúið og látið prenta spil sem hægt er að nálgast með
því að hafa samband við félagið á heimasíðu félagsins; agilenetid.is.