Tölvumál - 01.01.2016, Side 42
42
Starfsemi Ský hefur vaxið og
dafnað vel síðustu árin. Frá árinu
2009 hefur undirrituð haldið utan
um starfsemina en nú í haust var
Hildur Rut Halblaub ráðin í hálfa
stöðu til viðbótar og bjóðum við
hana velkomna. Hún hefur verið
framkvæmdastjóra til halds og
trausts á álagstímum síðustu 2 vetur og þekkir því starfsemi félagsins
vel.
Helstu verkefni innanlands eru að halda fróðlega viðburði fyrir
félagsmenn og aðra í tengslaneti Ský og eru 23 fræðsluviðburðir í
hverjum mánuði yfir vetrartímann. Stærsti viðburðurinn er eins og áður
UTmessan sem félagið setti af stað 2011 þar sem vöntun var á stórum
óháðum tölvu og tækniviðburði sem felur í sér metnaðarfulla ráðstefnu
og sýningu á helstu tækni og nýjungum sem fyrirtæki landsins tengdum
tölvugeiranum vinna við. Megintilgangur UTmessunnar er að vekja
athygli á hve mikil gróska er í tölvu og tæknigeiranum með það
markmið að hvetja ungt fólk til að velja sér tæknigreinar sem
framtíðarstarf. UTmessan hefur vakið athygli erlendis þar sem öll
evrópulönd glíma við sama vanda en mikil vöntun er á tölvufólki um
allan heim í nánustu framtíð. Óhætt er að segja að UTmessunni hafi
verið tekið vel frá upphafi og nú er svo komið að erlendir fyrirlesar sýna
frumkvæði að því að senda inn tillögur að fyrirlestrum, erlendir gestir
farnir að mæta til landsins á UTmessuna og síðast en ekki síst eru
erlend fyrirtæki farin að sækjast eftir að vera á sýningarsvæðinu. Það er
kærkomin viðbót við gífurlega góðann og jákvæðan stuðning allra þeirra
flottu íslensku fyrirtækja og skóla sem taka þátt í UTmessunni og erum
við löngu komin að þeim tímamótum að Harpa okkar glæsilega
ráðstefnuhús hefur ekki nóg pláss til að taka á móti öllum þeim sem vilja
vera á sýningarsvæði UTmessunnar en erfitt er að finna aðra aðstöðu
þar sem ráðstefnusalir og sýningarsvæði eru á sama stað. Við leitumst
við að reyna að koma öllum fyrir en því miður hefur selst upp bæði á
ráðstefnuna og sýningarsvæðið löngu fyrir UTmessu.
Í vor var opnað vefsvæði á www.sky.is þar sem fyrstu drög að sögu
tölvuvæðingar á Íslandi fyrstu 50 árin eru birt. Það verkefni hefur verið í
gangi frá árinu 2014 en ákveðið var að taka saman söguna þar sem 50
ár voru liðin frá því að fyrsta alvöru tölvan kom til landsins. Reynt er að
stikla á stóru um það sem gerðist á þessum árum og er sögunni skipt í
fimm 10 ára tímabil. Ekki er ætlunin að telja upp öll verkefni, fyrirtæki
eða aðila sem komu að tölvuvæðingunni. Tekið er við ábendingum eða
tilbúnum örsögum um efni sem fólk telur að eigi erindi í söguna til 1.
nóvember. Fyrsta útgáfa verður sett á vefinn eftir áramótin en í bili
verður einungis um vefbirtingu að ræða en ekki er útilokað að sagan
verði prentuð sem bók seinna meir. Ef fólk lumar á skemmtilegum ljós
myndum sem passa við söguna þætti okkur vænt um að fá þær sendar
á sky@sky.is en það verða að vera myndir sem fullt leyfi er til að birta.
Ýmis önnur verkefni eru í gangi hjá félaginu fyrir utan að halda viðburði.
Tímaritið Tölvumál hefur verið gefið út frá árinu 1976, árlega á prenti en
vikulega er birt ný grein í Vefútgáfu Tölvumála á forsíðu www.sky.is. Þar
geta allir sent inn greinar og pistla en þeir mega vera um hvaða efni sem
er tengdu tölvu eða tæknimálum. Árlega veitir félagið Upplýsinga
tækni verðlaun Ský og á aðalfundum félagsins eru heiðursfélagar
tilnefndir þegar tilefni er til.
Ský er aðili að evrópsku samtökunum CEPIS en það er félag með öllum
tölvufélögum í Evrópu. Þar starfa nokkrir faghópar og höfum við verið
virk innan Women in ICT, Education in ICT og Ethics in ICT. Þar höfum
við lagt fram tillögur og verkefni sem Evrópusambandið hefur oftar en
ekki tekið áfram í sitt starf en öll þessi málefni eru heit í fleiri löndum en
hér á Íslandi. Forritun sem skyldufag í grunnskólum er t.d. eitt af því sem
öll löndin eru að berjast fyrir og því ekki séríslenskt að pressa á
menntayfirvöld með það.
Eitt af þeim verkefnum sem við tengjumst í gegnum CEPIS er að halda
í apríl ár hvert „Girls in ICT Day“ og höfum við verið þátttakendur í því á
Íslandi með Háskólanum í Reykjavík og fleiri aðilum síðustu ár. Þar er
einn eftirmiðdagur tekinn í að bjóða stelpum í ákveðnum árgangi að
mæta á stutt námskeið tengd tölvunarfræðum og svo fara þær í
heimsókn og leysa skemmtileg verkefni hjá tölvufyrirtækjum í Reykjavík.
Nú í apríl voru 400 stelpur í 9. bekk úr 21 skóla með og 18 fyrirtæki sem
tóku þátt í deginum sem tókst vel í alla staði.
Í fyrra tókum við í fyrsta sinn þátt í alþjóðlegu verkefni sem heitir
BEBRAS „International Challenge on Informatics and Computational
Thinking“ (bebras þýðir bifur, enska heitið beaver) en það miðar að því
að árlega keyra öll lönd í heiminum í eina viku verkefni þar sem krakkar
á aldrinum 618 ára leysa þrautir á vef sem eru uppbyggðar eins og
forritun, þ.e. þrautir sem fá krakka til að hugsa eins og þau væru að
forrita en þrautirnar eru ekki forritun sem slík. Síðasta ár tóku 14 skólar
á Íslandi þátt, 475 nemendur og gaman að segja frá því að verkefnið
tókst vel og stelpurnar sem tóku þátt fleiri en strákarnir enda tölvugeirinn
einn af þeim geirum sem hentar báðum kynjum. Vikuna 7. – 11. nóvem
ber verður BEBRAS áskorunin 2016 og geta allir skólar sem vilja skráð
sig í gegnum www.bebras.is.
Í haust tókum við þátt í xHugvit verkefninu með Samtökum iðnaðarins
en það miðar að því að vekja athygli á hugverkageiranum með það að
markmiði að fá það málefni inn í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar.
Mikið og gott starf sem unnið var hjá þeim sem stóðu að verkefninu og
nú er bara að bíða og sjá hvernig til tókst en kosningar til Alþingis fara
fram 29. október.
Félagið vinnur náið með ráðuneytum og fyrirtækjum landsins og er Ský
með fulltrúa í stjórn Persónuverndar skv. lögum en auk þess eru
félagsmenn oft kallaðir til verkefna svo sem vinnuhóp um landsumgjörð
og fleira í þeim dúr. Það er mikilvægt að halda fagmennsku félagsins
áfram enda er Ský óháð „nonprofit“ félag stofnað árið 1968 og hefur
síðan þá verið í forsvari og fararbroddi sem málsvari allra þeirra sem
vinna að eða hafa áhuga á tölvumálum. Langar mig að þakka
sérstaklega þeim sem taka þátt fyrir hönd félagsins í verkefnunum því
oftar en ekki er um ólaunað starf að ræða.
Að lokum er vert að nefna að stjórnir faghópa, orðanefnd og ritnefnd
vinna ötull starf sem heldur félaginu gangandi og mikill hugur í fólki. Allt
starf Ský er unnið undir dyggri stjórn félagsins en þar er úrvalslið sem er
mjög vel tengt í tölvugeirann og stútfullt af skemmtilegum hugmyndum
um félagsstarfið.
Hér sjáið þið mynd af þeim sem skipa stjórnina.
Ég hvet ykkur til að vera í sambandi ef eitthvað er og einnig að tengjast
Ský á Facebook, LinkedIn og Twitter í gegnum forsíðu sky.is og taka
þátt í umræðum þar. Sjáumst á viðburðum í vetur.
FRÉTTIR AF STARFSEMI SKÝ
Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský
Stjórn Ský 2016-2017