Tölvumál - 01.01.2016, Page 42

Tölvumál - 01.01.2016, Page 42
42 Starfsemi Ský hefur vaxið og dafnað vel síðustu árin. Frá árinu 2009 hefur undirrituð haldið utan um starfsemina en nú í haust var Hildur Rut Halblaub ráðin í hálfa stöðu til viðbótar og bjóðum við hana velkomna. Hún hefur verið framkvæmdastjóra til halds og trausts á álagstímum síðustu 2 vetur og þekkir því starfsemi félagsins vel. Helstu verkefni innanlands eru að halda fróðlega viðburði fyrir félagsmenn og aðra í tengslaneti Ský og eru 2­3 fræðsluviðburðir í hverjum mánuði yfir vetrartímann. Stærsti viðburðurinn er eins og áður UTmessan sem félagið setti af stað 2011 þar sem vöntun var á stórum óháðum tölvu­ og tækniviðburði sem felur í sér metnaðarfulla ráðstefnu og sýningu á helstu tækni og nýjungum sem fyrirtæki landsins tengdum tölvugeiranum vinna við. Megintilgangur UTmessunnar er að vekja athygli á hve mikil gróska er í tölvu­ og tæknigeiranum með það markmið að hvetja ungt fólk til að velja sér tæknigreinar sem framtíðarstarf. UTmessan hefur vakið athygli erlendis þar sem öll evrópulönd glíma við sama vanda en mikil vöntun er á tölvufólki um allan heim í nánustu framtíð. Óhætt er að segja að UTmessunni hafi verið tekið vel frá upphafi og nú er svo komið að erlendir fyrirlesar sýna frumkvæði að því að senda inn tillögur að fyrirlestrum, erlendir gestir farnir að mæta til landsins á UTmessuna og síðast en ekki síst eru erlend fyrirtæki farin að sækjast eftir að vera á sýningarsvæðinu. Það er kærkomin viðbót við gífurlega góðann og jákvæðan stuðning allra þeirra flottu íslensku fyrirtækja og skóla sem taka þátt í UTmessunni og erum við löngu komin að þeim tímamótum að Harpa okkar glæsilega ráðstefnuhús hefur ekki nóg pláss til að taka á móti öllum þeim sem vilja vera á sýningarsvæði UTmessunnar en erfitt er að finna aðra aðstöðu þar sem ráðstefnusalir og sýningarsvæði eru á sama stað. Við leitumst við að reyna að koma öllum fyrir en því miður hefur selst upp bæði á ráðstefnuna og sýningarsvæðið löngu fyrir UTmessu. Í vor var opnað vefsvæði á www.sky.is þar sem fyrstu drög að sögu tölvuvæðingar á Íslandi fyrstu 50 árin eru birt. Það verkefni hefur verið í gangi frá árinu 2014 en ákveðið var að taka saman söguna þar sem 50 ár voru liðin frá því að fyrsta alvöru tölvan kom til landsins. Reynt er að stikla á stóru um það sem gerðist á þessum árum og er sögunni skipt í fimm 10 ára tímabil. Ekki er ætlunin að telja upp öll verkefni, fyrirtæki eða aðila sem komu að tölvuvæðingunni. Tekið er við ábendingum eða tilbúnum örsögum um efni sem fólk telur að eigi erindi í söguna til 1. nóvember. Fyrsta útgáfa verður sett á vefinn eftir áramótin en í bili verður einungis um vefbirtingu að ræða en ekki er útilokað að sagan verði prentuð sem bók seinna meir. Ef fólk lumar á skemmtilegum ljós­ myndum sem passa við söguna þætti okkur vænt um að fá þær sendar á sky@sky.is en það verða að vera myndir sem fullt leyfi er til að birta. Ýmis önnur verkefni eru í gangi hjá félaginu fyrir utan að halda viðburði. Tímaritið Tölvumál hefur verið gefið út frá árinu 1976, árlega á prenti en vikulega er birt ný grein í Vefútgáfu Tölvumála á forsíðu www.sky.is. Þar geta allir sent inn greinar og pistla en þeir mega vera um hvaða efni sem er tengdu tölvu­ eða tæknimálum. Árlega veitir félagið Upplýsinga­ tækni verðlaun Ský og á aðalfundum félagsins eru heiðursfélagar tilnefndir þegar tilefni er til. Ský er aðili að evrópsku samtökunum CEPIS en það er félag með öllum tölvufélögum í Evrópu. Þar starfa nokkrir faghópar og höfum við verið virk innan Women in ICT, Education in ICT og Ethics in ICT. Þar höfum við lagt fram tillögur og verkefni sem Evrópusambandið hefur oftar en ekki tekið áfram í sitt starf en öll þessi málefni eru heit í fleiri löndum en hér á Íslandi. Forritun sem skyldufag í grunnskólum er t.d. eitt af því sem öll löndin eru að berjast fyrir og því ekki séríslenskt að pressa á menntayfirvöld með það. Eitt af þeim verkefnum sem við tengjumst í gegnum CEPIS er að halda í apríl ár hvert „Girls in ICT Day“ og höfum við verið þátttakendur í því á Íslandi með Háskólanum í Reykjavík og fleiri aðilum síðustu ár. Þar er einn eftirmiðdagur tekinn í að bjóða stelpum í ákveðnum árgangi að mæta á stutt námskeið tengd tölvunarfræðum og svo fara þær í heimsókn og leysa skemmtileg verkefni hjá tölvufyrirtækjum í Reykjavík. Nú í apríl voru 400 stelpur í 9. bekk úr 21 skóla með og 18 fyrirtæki sem tóku þátt í deginum sem tókst vel í alla staði. Í fyrra tókum við í fyrsta sinn þátt í alþjóðlegu verkefni sem heitir BEBRAS „International Challenge on Informatics and Computational Thinking“ (bebras þýðir bifur, enska heitið beaver) en það miðar að því að árlega keyra öll lönd í heiminum í eina viku verkefni þar sem krakkar á aldrinum 6­18 ára leysa þrautir á vef sem eru uppbyggðar eins og forritun, þ.e. þrautir sem fá krakka til að hugsa eins og þau væru að forrita en þrautirnar eru ekki forritun sem slík. Síðasta ár tóku 14 skólar á Íslandi þátt, 475 nemendur og gaman að segja frá því að verkefnið tókst vel og stelpurnar sem tóku þátt fleiri en strákarnir enda tölvugeirinn einn af þeim geirum sem hentar báðum kynjum. Vikuna 7. – 11. nóvem­ ber verður BEBRAS áskorunin 2016 og geta allir skólar sem vilja skráð sig í gegnum www.bebras.is. Í haust tókum við þátt í xHugvit verkefninu með Samtökum iðnaðarins en það miðar að því að vekja athygli á hugverkageiranum með það að markmiði að fá það málefni inn í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Mikið og gott starf sem unnið var hjá þeim sem stóðu að verkefninu og nú er bara að bíða og sjá hvernig til tókst en kosningar til Alþingis fara fram 29. október. Félagið vinnur náið með ráðuneytum og fyrirtækjum landsins og er Ský með fulltrúa í stjórn Persónuverndar skv. lögum en auk þess eru félagsmenn oft kallaðir til verkefna svo sem vinnuhóp um landsumgjörð og fleira í þeim dúr. Það er mikilvægt að halda fagmennsku félagsins áfram enda er Ský óháð „non­profit“ félag stofnað árið 1968 og hefur síðan þá verið í forsvari og fararbroddi sem málsvari allra þeirra sem vinna að eða hafa áhuga á tölvumálum. Langar mig að þakka sérstaklega þeim sem taka þátt fyrir hönd félagsins í verkefnunum því oftar en ekki er um ólaunað starf að ræða. Að lokum er vert að nefna að stjórnir faghópa, orðanefnd og ritnefnd vinna ötull starf sem heldur félaginu gangandi og mikill hugur í fólki. Allt starf Ský er unnið undir dyggri stjórn félagsins en þar er úrvalslið sem er mjög vel tengt í tölvugeirann og stútfullt af skemmtilegum hugmyndum um félagsstarfið. Hér sjáið þið mynd af þeim sem skipa stjórnina. Ég hvet ykkur til að vera í sambandi ef eitthvað er og einnig að tengjast Ský á Facebook, LinkedIn og Twitter í gegnum forsíðu sky.is og taka þátt í umræðum þar. Sjáumst á viðburðum í vetur. FRÉTTIR AF STARFSEMI SKÝ Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský Stjórn Ský 2016-2017

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.