Fréttablaðið - 20.01.2021, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.01.2021, Blaðsíða 4
Enginn úr núverandi þingliði er talinn líklegur til að hætta. Það sem þátttakendur uppskera: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Hugrekki til að rétta upp hönd og taka þátt í umræðum • Leiðir til að kynnast nýju fólki, bæta samskipti og styrkja sambönd • Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif • Betra skipulag og skýrari markmið • Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun Námskeið hefjast: 10 til 12 ára 23. jan. 10.00-13.00 8 skipti á laugardögum 10 til 12 ára 10. feb. 17.00-20.00 8 skipti með viku millibili 13 til 15 ára 19. jan. 17.00-20.30 8 skipti með viku millibili 13 til 15 ára 8. feb. 17.00-20.30 8 skipti með viku millibili 16 til 19 ára 21. jan. 18.00-22.00 8 skipti með viku millibili 16 til 19 ára LIVE ONLINE 1. feb. kl 18.00-21.00 8 skipti vika á milli 20 til 25 ára 20. jan. 18.00-22.00 8 skipti með viku millibili 20 til 25 ára 11. feb. 18.00-22.00 8 skipti með viku millibili 20 til 25 ára 4. feb. LIVE ONLINE Kl 18.00-21.00 með viku millibili Ég á auðveldara með að kynnast krökkum Skráning á dale.is eða 555 7080 Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk Copyright © 2020 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Youth_Ad_121620 JAFNRÉT TISMÁL Samstarfsverk­ efnið Kynin og vinnustaðurinn var kynnt í Háskóla Íslands í gær. Um er að ræða könnun þar sem staða, upplifun og líðan starfsfólks í fyrir­ tækjum verður skoðuð og hvort þar megi greina mun eftir kyni. Að verk­ efninu koma Viðskiptaráð, Empow­ er, Gallup og Háskóli Íslands. „Ef horft er á kynjahlutfall stjórn­ enda á vinnumarkaði þá sést að það hallar mjög á konur þar,“ segir Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, stofnandi og meðeigandi Empower. „Tölurnar endurspegla til dæmis ekki braut­ skráningar úr háskóla en þar hafa konur verið að útskrifast jafnmarg­ ar ef ekki f leiri en karlar í einhver tuttugu ár.“ Verkefnið fer fram með tvenns konar móti. Annars vegar verður spurningalisti lagður fyrir starfsfólk í um 200 fyrirtækjum sem eiga aðild að Viðskiptaráði. Þar verður líðan og upplifun fólks af vinnustöðum skoðuð með sérstöku tilliti til kyns. Þá verður staða kynjanna í stjórn­ unarlögum fyrirtækjanna einnig tekin saman til þess að miðla því hvort og þá hvernig halli á eftir kynjum. „Við erum að skoða þrjú lög – forstjóra, framkvæmdastjórn og millistjórnendur,“ segir Þórey. „Við vildum hafa einn stað þar sem allir geti skoðað hvernig kynjaskiptingin sé í stjórnunarlögum á Íslandi og hver þróunin er á milli ára.“ Verkefnið mun fara fram árlega svo hægt verði að sjá hvort breyting­ ar eigi sér stað til lengri tíma litið. „Ég hef bjargfasta trú á því að þegar við byrjum að greina þetta og sjáum hvað er að, þá muni þetta vonandi breytast til batnaðar,“ segir Þórey. „Það sem við þekkjum, því getum við breytt.“ Þótt enginn tímarammi sé á verk­ efninu segir Þórey að þetta sé lang­ tímaverkefni sem verði útvíkkað eftir því sem á líður til að skoða aðrar breytur sem hafa áhrif á fjölbreytni. „Ein augljós breyta í framtíðar­ sýninni er til dæmis að kanna þessa þætti út frá uppruna. Markmiðið er að vinnustaðamenningin ýti undir fjölbreytni þannig að við hámörkum vellíðan og árangur teyma.“ Niðurstöður verkefnisins verða kynntar á opnum fundi í maí og með kynningarátaki. „Ég býst ekki við neinu öðru en að þetta fái góð viðbrögð,“ segir Þórey. „Ég hef séð það í starfi mínu hjá Empower að það er mikill áhugi fyrir að auka fjölbreytileika. Fólk er farið að gera miklu meiri kröfur um vinnustaðinn sinn í dag en áður.“ arnartomas@frettabladid.is Stórtæk könnun á stöðu og líðan kynja á vinnustöðum Kynin og vinnustaðurinn er nýtt samstarfsverkefni þar sem staða og upplifun fólks af vinnustöðum verður skoðuð með tilliti til kyns. Verkefnið mun fara fram árlega svo hægt verði að sjá til lengri tíma litið hvort breytingar séu að eiga sér stað innan vinnustaða. Umfangið verður svo víkkað með tímanum. Að samstarfsverkefninu koma Empower, Háskóli Íslands, Gallup og Viðskiptaráð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fólk er farið að gera miklu meiri kröfur um vinnustaðinn sinn í dag en áður. Þórey Vilhjálms- dóttir Proppé, stofnandi og meðeigandi Empower STJÓRNMÁL Töluverð spenna ríkir um framboðslista Miðf lokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosn­ ingar og talið er að í það minnsta tveir muni bítast um oddvitasætið í prófkjöri. Birgir Þórarinsson leiddi f lokkinn árið 2017 en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Karl Gauti Hjaltason, sem kom úr Flokki fólksins, hug á að leiða list­ ann. Fleiri eru sagðir áhugasamir um framboð, þá helst Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir, varaformaður kjördæmisfélagsins, og Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúi í Árborg. Enginn úr núverandi þingliði hefur lýst því yfir að ætla að hætta á þingi og enginn er talinn líklegur til þess. Flokkurinn þarf að ná um 15 prósenta kosningu til að halda öllum sínum níu mönnum. Öruggt er talið að formaðurinn Sigmundur Davíð leiði í Norðaust­ urkjördæmi en barátta gæti orðið um annað sætið. Þar situr nú Anna Kolbrún Árnadóttir en henni gæti borist samkeppni frá hinum þing­ eyska varaþingmanni Þorgrími Sigmundssyni. Gert er ráð fyrir að aðalfundur verði í febrúar eða mars og þá verði valið í kjörnefnd. Tveir þingmenn hafa þegar til­ kynnt um framboð, Þorsteinn Sæmundsson og Ólafur Ísleifsson, báðir í Reykjavíkurkjördæmunum. Ekki er gert ráð fyrir öðru en að Gunnar Bragi Sveinsson sækist áfram eftir oddvitasæti í Suðvestur­ kjördæminu. Innan úr f lokknum heyrast óánægjuraddir um skort á konum og yngra fólki til að leiða listana, sérstaklega á höfuðborgarsvæð­ inu, sem eru þó ekki enn meitlaðir í stein. Hefur nafn Nönnu Margrétar Sigmundsdóttur, systur formanns­ ins, verið nefnt til að leiða einn af listunum. Einnig hefur verið skorað á Vigdísi Hauksdóttur að færa sig aftur í landsmálin en hún hefur sagst vilja leiða lista Miðflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Í Norðvesturkjördæmi er gert ráð fyrir uppstillingu og er ferlið komið lengst af stað þar. Ólíklegt er talið annað en að þingmennirnir Berg­ þór Ólason og Sigurður Páll Jónsson verði í tveimur efstu sætunum. – khg Stefnir í oddvitaslag á Suðurlandi fyrir komandi kosningar STJÓRNMÁL Ráðuneyti og undir­ stofnanir þeirra vörðu minnst 270 milljónum króna í upplýsinga­ fulltrúa í fyrra. Þetta kemur fram í svörum ráðuneyta við fyrir­ spurnum Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Miðflokksins. Ekki eru komin svör frá fjármálaráðuneyti og umhverfisráðuneyti. „Ég hef velt því lengi fyrir mér hvort það þurfi í raun að vera með upplýs­ ingafulltrúa í öllum ráðuneytum og mörgum stofnunum, mér er ekki alveg ljóst hvað þeir gera,“ segir Þorsteinn. Hyggst hann leggjast yfir svörin og kanna hvort grundvöllur sé fyrir frekari fyrirspurnum. Segir hann þetta snúast um forgangsröðun í ríkisrekstri. „Það væri hægt að reka litla ríkisstofnun fyrir það fé sem rennur í þetta.“ – ab Hægt að reka ríkisstofnun fyrir fjármagnið Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins STJÓRNMÁL Heilbrigðisráðuneytið hefur synjað beiðni Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Mið­ f lokksins, um aðgang að samn­ ingum íslenska ríkisins við lyfja­ framleiðendur um kaup á bóluefni við COVID­19. „Það er hreint með ólíkindum en auðvitað mun ég fylgja því eftir,“ segir Gunnar Bragi. Ráðuneytið segir erindið falla undir takmarkanir á upplýsinga­ rétti, hefur honum verið bent á að leita til úrskurðarnefndar um upp­ lýsingamál. „Sem þjóðkjörinn þing­ maður tel ég mig eiga rétt á að fá þessar upplýsingar,“ segir hann. – ab Synja beiðni um samninga 2 0 . J A N Ú A R 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.