Aðventfréttir - nov. 2017, Side 8

Aðventfréttir - nov. 2017, Side 8
Kenningin um réttlætingu fyrir trú einvörðungu, er “helgidómur siðbótarinnar”. Þegar Marteinn Lúter skildi hið stórkostlega loforð um réttlætingu syndarans fyrir traust á hinum krossfesta Kristi, var sem siðbótarmaðurinn hefði þegar gengið inn í himnaríki. Sem munkur, prestur og guðfræðiprófessor, hafði Lúter árum saman reynt að skilja setningu Páls: “Réttlæti Guðs opinberast í [fagnaðarerindinu]” (Róm. 1.17). Daga og nætur hverfðust hugsanir hans um þetta orðasamband. Hann sagðist sjálfur hata orðatiltækið “réttlæti Guðs” því hann skildi það heimspekilega, samkvæmt kirkjufeðrunum og kennimönnunum, sem réttlætið, sem Guð krefst, en syndararnir geta ekki uppfyllt og falla því undir dóm Guðs. Fundurinn í turninum 1545, ári fyrir andlát sitt, leit þessi fyrrum Ágústínuarmúnkur og síðar siðbótarmaður, yfir vendipunktinn í lífi sínu, trú og háttu. Þessi viðsnúningur var umbylting í þeim skilningi að “réttlæti Guðs” er ekki krafa heldur gjöf: hið hlutlausa réttlæti sem Guð eignar hverjum þeim sem trúir á Krist. Samkvæmt Lúter uppgötvaði hann þetta í turnherbergi Svarta klaustursins í Wittenberg: “Heilagur Andi opinberaði mér ritningarnar í þessum turni.” 2 Biblíuleg réttlæting ““Bjarga mér í réttlæti þínu“ (Sálm 31.1). Þegar í Gamla testamenntinu er réttlæti Guðs, það réttlæti sem frelsar heldur því fram að hann sé réttlátur frammi fyrir Guði, verða á afdrifarík mistök, því jafnvel Sálmaskáldið í Gamla testamentinu veit að “enginn sem lifir er réttlátur” fyrir Guði (Sálm 143.2). Ef nokkur vill vera “réttlátur” frammi fyrir Guði, þá þarf hann réttlæti Guðs. Þess vegna segir Sálmaskáldið: “Bjarga mér í réttlæti þínu” (Sálm 31.1; 71.2). Þetta réttlæti er fyrst og fremst frelsandi réttlæti, hjálpræði, en ekki refsandi réttvísi. Í ljósi Nýja testamentisins, þá þýðir þetta að sá Guð sem ber sekt og dóm hins illa heims (Jóh 1.29), greiðir fyrir þá sekt í dóminum sem tekur líf hins réttláta, syndlausa Sonar Hans á krossinum. Vegna þessarar sömu fórnar, getur Hann fyrirgefið hinum óréttlátu, tekið við þeim, komið að hjá þeim nýrri hugsun og nýju lífi, og gefið þeim von um nýja, réttláta veröld (2 Pét 3.13). Aðeins þeir sem hafna þessari gjöf munu falla undir dóm vegna eigin misgjörða (Heb 10.29-30). syndara. Þegar Abraham tók við loforðinu um framtíðar afkomendur (1. Mós 15.5), þá var hann ekki “ofurmannlegur”, heldur syndari, eins og við öll. En þar sem hann treysti loforði Guðs, reiknaði Guð það honum til réttlætis (6. vers). Þetta þýðir að Guð leit á Abraham sem “réttlátan” vegna trúartrausts hans. Alveg eins og “ranglátur” maður í Biblíunni er ekki trúleysingi í skilningi nútímans, heldur almennur “syndari” (Sálm 1.1; Oskv 11.31), eins er hinn “réttláti” ekki “hinn syndlausi”, heldur hinn “trúaði” (sjá Hab 2.4). Af þessu dró Páll postuli því þá ályktun að jafnvel undir Gamla sáttmálanum réttlættist fólk ekki fyrir verk heldur fyrir trú (Róm 4.6-8). Svo sá sem “réttlætir”, sem “lýsir réttlátan”, eða “telur til réttlátra”, er Guð einn: “Guð er réttlæti vort” (Jer. 23.6). Þannig er réttlæti Biblíunnar trúarlegt, en ekki siðferðislegt eða stjórnmálalegt hugtak. Fólk sem fylgir lögum lands eða yfirvalda, sem hlýðir bókstaf lagana, telst ekkert einsdæmi í heiminum. En einstaklingi, sem M Á N U D A G U R B Æ N A V I K A N frelsunar Grundvöllur okkar 8 Aðventfréttir | Nóvember 2017

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.