Lögmannablaðið - 15.12.1997, Side 25

Lögmannablaðið - 15.12.1997, Side 25
þetta atriði snertir. Hvenær má og hvenær má ekki stefna ráðherra sem úrskurðað heíúr í stjórnsýslu- máli til ógildingar á þeim úrskurði? Það er spurningin. Að síðustu má spyrja hvort þessi niðurstaða Hæstaréttar um tak- mörkun á aðgengi borgaranna að dómstólum til að láta reyna á úr- lausnir stjórnsýslunnar standist full- komlega 6. gr. Mannréttindasátt- mála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Ég held að réttlætiskennd borgar- anna kynni að vera pínulítið mis- boðið. Þessi dómur er merkilegur fyrir fleiri hluta sakir. 2. Næst víkur dómstóllinn að réttarstöðunni gagnvart Dala- byggð. Fyrst er tekið á því að áfrýj- anda hefði verið tækt að fara í við- urkenningarmál um réttindi sín til dýrahalds. Síðan víkur rétturinn að því að svo hafi ekki verið staðið að máli heldur krafist ógildingar stjórnsýsluákvarðana sem títt- nefndur ráðherra og Dalabyggð hefðu tekið í tilefni af málavafstri fjögurra manna. Fyrst svona væri staðið að verki hjá áfrýjandanum hefði verið réttarfarsnauðsyn á því að þessir menn ættu aðild að dómsmáli um þessar ákvarðanir annað hvort sóknar- eða varnar- meginn. Fyrst það var ekki gert taldi Hæstiréttur 2. mgr. 18. gr. einkamálalaga leiða til þeirrar nið- urstöðu að visa bæri málinu frá gagnvart Dalabyggð. Afstaða réttarins hvað þetta atriði snertir er að minni hyggju rökrétt- ari en umfjöllunin um aðild um- hverfisráðherra. Áfrýjanda stóð greið leið að réttarfarslögum til þess að fá leyst úr sínum vanda án þess að blanda málefnum fjór- menningana þar inn í. Hún gat höfðað viðurkenningarmál en gerði ekki. Það er í sjálfu sér rök- rétt að allir þeir sem aðild eiga að stjórnsýslumáli eigi líka aðild að dómsmáli er lýtur að gildi þess stjórnsýslumáls. Hins vegar finnst mér dálítið sér- stætt í forsendum dómstólsins þeg- ar það er lagt að jöfnu hvort þess- ir menn ættu aðild sóknarmeginn eða varnarmeginn í málinu. Það að þeir eigi ekki aðild að stefnu eða þeim hafi ekki verið stefnt er and- stætt 2. mgr. 18. gr. einkamálalaga. Ég held að þessi aðstaða hljóti að vera réttarfarslegt fágæti ef svo má að orði komast; samaðild hefði verið nauðsynleg annað hvort varnar- eða sóknarmeginn. Svo sérstætt sem það hljómar kristallar þessi niðurstaða Hæsta- réttar vel rök áfrýjanda fyrir því að úrskurður umhverfisráðherra og ákvörðun Dalabyggðar standist ekki. Dómstóllinn gerir í raun sömu kröfu til hennar og hún byggði á gagnvart stjórnsýsluhöf- unum þ.e. málefnum bújarðar hennar yrði ekki ráðið til lykta án fulltingis þeirra sem hagsmuna höfðu að gæta. Það eru gömul sannindi að lengi má lesa eitthvað hagstætt fyrir alla málsaðila úr niðurstöðu dómsmáls. Augsýnilega eiriri sá miaasti á markaðaum GF 788 rúmast hæglega í brjóstvasanum rétt eins og gleraugun enda vegur hann aðeins 135 g með rafhlöðunni. Rafhlaða endist í 3 klst. með stöðugri notkun eða 60 klst. í biðstöðu 99 nöfn ískammvalsminni ERICSSON 3 10 númera endurvalsminni Innbyggð klukka og vekjari SMS skilaboðasending og viðtaka Verð 59.980r stgr. PÓSTUR OG SÍMI Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800 ■ Söludeíld Kringlunni, sími 550 6690 Þjónustumiðstöð i Kirkjustræti, sími 800 7000 • Póst- og símstöðvar um land allt

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.