Málfríður - 15.09.1999, Blaðsíða 3
Ritstj órnarrabb
Tölvunotkun í tungumálakennslu skipar
stóran sess í Málfríði að þessu sinni. Bryn-
hildur A. Ragnarsdóttir ríður á vaðið og skrif-
ar áhugaverða grein um tilraunaverkefni í
sænsku- og norskukennslu. Hér er um að
ræða tungumálavef fyrir nemendur og útskýrir
Brynhildur uppbyggingu vefsins og kennslu-
umhverfi og tíundar einnig kosti og galla
slíkrar fjarkennslu.
Þórhildur Rúnarsdóttir skrifar grein um
Internetnotkun í tungumálakennslu. Þar fjallar
hún um hvernig hægt er að nota Internetið í
þýskukennslu. Hrafnhildur Tyggvadóttir segir
frá námskeiði fyrir frönskukennara þar sem
fjallað var um hvernig hægt væri að láta nem-
endur vinna eigin vefsíður.
Laufey R. Bjarnadóttir segir frá vel heppn-
uðu enskukennaranámskeiði í Bath um
menningamiðlun í enskukennslu. Hugmynda-
bankinn í umsjá Agústu Elínar Ingþórsdóttur
kemur einnig inn á menningarmiðlun. Þar ber
Internetið aftur á góma og er Berlín þema
verkefnisins.
Orðaforðahorn Auðar Torfadóttur er á
sínum stað, en í þetta sinn hefur Auður fengið
Margo Renner til að sjá um það. Jórunn
Tómasdóttir segir frá námskeiði sem hún sótti
í Frakklandi þar sem einnig var fjallað um
tölvunotkun í tungumálakennslu.
Rétt er að ljúk þessu ritstjórnarrabbi með
því að minna lesendur á alþjóðlega ráðstefnu
STIL sem haldin verður árið 2000 um mark-
mið, viðfangsefni, kennsluhætti og árangur af
kennslu erlendra tungumála. Einkunnarorð
ráðstefnunnar eru: Fjöltyngi er ^ölkynngi. I
blaðinu er jafnframt auglýst eftir fyrirlesurum
á ráðstefnuna og hvetjum við alla sem telja sig
hafa eitthvað fram að færa á þessum vettvangi
að bregðast vel við og gefa kost á sér.
Ritnefndin óskar ykkur gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Forsíða:
Sigrún Hreinsdóttir, nemandi í Ölduselsskóla
í Breiðholti.
Efnisyfirlit
Brynhildur A. Ragnarsdóttir:
Norsku og sænskukennsla á neti.
Tilraunaverkefni................................ 4
Þórhildur Rúnarsdóttir:
Internet í tungumálakennslu..................... 8
Hrafnhildur Tryggvadóttir:
Krækjur í þágu ritunnar —
„l’hypertexte au service de l’écriture".......15
Laufey R. Bjarnadóttir:
Vel heppnað enskukennaranámskeið í Bath. . 18
Orðaforðahorn Auðar Tofadóttur:
„Greek and Latin Word Elements in Learning
Vocabulary“ eftir Margo Renner................20
Hugmyndabanki:
„Alle Wege nach Berlin" eftir Agústu Elínu
Ingólfsdóttur.................................22
Jórunn Tómasdóttir:
Sumarnámskeið í Frakklandi....................29
Málfríður,
tímarit samtaka tungumálakennara,
2. tbl. 1999.
Utgefandi:
Samtök tungumálakennara á
Islandi.
Abyrgðarmaður:
Auður Torfadóttir
Ritnefnd:
Asmundur Guðmundsson
Guðbjörg Tómasdóttir
Ingunn Garðarsdóttir
Kristín Jóhannesdóttir
Steinunn Einarsdóttir
Prófarkalestur:
Gunnar Skarphéðinsson
Umbrot, prentun og bókband:
Steinholt ehf.
HeimiHsfang Málfríðar:
Pósthólf 8247
128 Reykjavík.
3