Málfríður - 15.09.1999, Qupperneq 7
Verkaskipting:
Gry Ek Gunnarsson hefur haft veg og
vanda af inntaki vefsins í heild og semur
verkefnin í norsku með aðstoð frá Björg
Juhlin og Brynhild Mathisen. Að auki
annast hún umsjón með tilraunakennslu
og uppbyggingu vefsins. Ingegerd Narby
semur verkefnin í sænsku með aðstoð frá
Petru Högnas, Sigrúnu Hallbeck og Elisa-
beth Alm. Af hálfu Menntanetsins hafa
Þorvaldur Pálmason og Jóna Pálsdóttir
annast það sem að útliti vefsins snýr, ásamt
ráðgjöf í því sem lýtur að kennslufræði
fjarnámsins og undirrituð hefur haft verk-
efnisstjórn með höndum.
Samstarfshópurinn bindur vonir við að
þessi nýbreytni í kennsluháttum muni
verða til þess að efla norsku- og sænsku-
kennslu innan íslensks skólakerfis og auka
trú manna á að nýir miðlar verði til þess
að jafna aðstöðu nemenda í ýmsum grein-
um og á ýmsum skólastigum án tillits til
búsetu.
Brynhildur A. Ragnarsdóttir
har@ismennt.is
Nordisk sprogkonsulent
Nordens hus Tel: +354 562 0167
101 1S Fax: +354 552 6416
m\
» .........*
Við auglýsum eftir fyrirlesurum
Frá 21 -24. júní, sumariS 2000 mun STÍL, samtök tungumála-
kennara á Islandi standa fyrir ráSstefnu á vegum norrænu-baltísku
deildar alþjóðasambands tungumálakennara.
Einkunnarorð ráðstefnunnar eru: Fjöltyngi er fjölkynngi.
Fyrirlestrar þurfa að fara fram á ensku. Fyrirlesari þarf að halda
fyrirlestur fyrir hádegi og standa fyrir málstofu síðdegis.
STÍL auglýsir hér með eftir fólki sem hefur áhuga á að halda fyrir-
lestur um efni sem tengist einkunnarorðum ráðstefnunnar.
Þeir sem hafa áhuga vinsamlega sendi tillögur til Jórunnar
Tómasdóttur, Vatnsholti 5c, 230 Keflavík. Geta skal nafns, starfs,
menntunar, starfsreynslu, titils á efni sem fjalla skal um, lýsingu á
innihaldi og efnistökum (ein síða A-4).