Málfríður - 15.09.1999, Qupperneq 12

Málfríður - 15.09.1999, Qupperneq 12
Mikið er af skemmtilegum verkefnum og leikjum á vefn- um sem æfa marga þætti málakennsl- unnar. 12 þýskukennslu. Hægt er að fmna efni um þýska tónlist og tónlistarfólk og jafnvel hlusta á einhver lög á síðunni. Einnig eru margir skólar með heimasíðu sem birta m.a. skólatímarit og aðrar upplýsingar um félagslíf í skólanum, en þær gæti verið at- hyglisvert að skoða og gera samanburð á heimaskólanum. Fyrir þetta viðfangsefni er hægt að finna hvað sem er á vefnum og auðvelt að spila það eftir því sem nemend- ur hafa áhuga á. Orðaforði. Orðaforðaæfmgar eru í miklu magni á vefnum en því miður margar sem ekki eru gagnvirkar og eru frekar einhæfar og leiðinlegar. Þær fylgja oft lesefninu eins og í prentuðu kennsluefni, en ég vildi sjá meira af orðaforðaæfingum með myndum og krækjum (hypertext). Eitthvað er af krossgátum á vefnum fýrir byijendur í mál- inu. Þær æfingar gætu alveg eins verið í kennslubókunum, nema á vefnum er hægt að fá hjálp með fyrsta stafinn eða orðið og hægt er að gera krossgátuna aftur og aftur. Internetverkefni fyrir tungu- málakennslu. Mikið er af skemmtilegum verkefnum og leikjum á vefnum sem æfa marga þætti málakennslunnar. Þessi verkefni eru bæði hugmyndir frá einstaka kennurum og til- búin kennsluverkefni frá skólum eða stofnunum út um allan heim. Þau lífga upp á kennsluna, eru tilbreyting frá kennslubókunum en geta líka tengst því efni sem þar er og þær nýta möguleika vefsins til hins ýtrasta. Hér eru nokkur dæmi um verkefni: Ferðalag: í þessu verkefni eru nokkrar þýskar borg- ir valdar sem áfangastaðir. Ykkar verkefni er að safna staðreyndum um borgina og segja bekkjarfélögum ykkar hvað hægt er að upplifa þar. Ytri skilyrði: Hópvinna 4-5 í hverjum hóp. Lengd: um 3 vikur, vinna í skólanum og heimavinna. Aðferð: • Myndið hópa. • Kynnið ykkur hvaða borgir eru í boði og veljið eina úr. • Kannið staðinn, þið getið t.d. svarað eftirfarandi spurningum: hvar liggur staðurinn? I hvaða héraði (Bundes- landi)? Er fljót, fjall o.fl nálægt borg- inni? Skoðið staðinn á korti (sem hægt er að sjá finna á vefnum). Hve stór er borgin? Hve margir íbúar eru í borg- inni? Hvað er hægt að skoða í borg- inni? Veljið 3—4 staði sem vert er að skoða, og þið getið sagt félögum ykkar frá. Eitthvað fleira athyglisvert... • Fyrirlestur í bekknum eða fýrir aðra hópa. Skrifleg skil til kennara, stutt. (Sbr. Jánen, Johannes. LernNetz Deutsch: Tourist in deutschen Stádten.: http://www.sko linter- net.telia.se/TIS/tyska/tourist.htm ) Einnig væri hægt að skipuleggja ferð um erlent land, ákveða hvaða staði á að heim- sækja og kynna þá, ákveða hvernig er hægt að komast á milli staða, t.d. er hægt að fara á heimsíðu Deutsche Bahn og kynna sér ferðir lestanna. Mörg hótel eða farfuglaheimili eru með heimasíður og hægt væri að ákveða gististaði á ferðalag- inu ogjafnvel skoða veitingahús,bari,leik- hús o.fl. í hverri borg. (Sbr. Frischherz, Bruno og Lenz, Peter: Deutsch lernen mit dem WWW: 10 Lernideen. Úr: Fremdsprache Deutsch, Sondernummer 1996). Áhugamál. Hægt er að vekja áhuga nemenda á málinu með því að höfða til áhugamála þeirra, vandamálið við verkefni tengd áhugamálum er að þau eru mis- munandi og æfingin fellur um sjálfa .sig ef viðfangsefni sem nemendur hafa engan áhuga á eru valin. Hér eru dæmi um tvö verkefni sem höfða til mismunandi áhuga- mála ungs fólks: Kvikmyndir: 1. Hvaða kvikmyndir er verið að sýna í Þýskalandi og hveijar eru væntanlegar? 2. Berið saman hvaða myndir eru í kvik- myndahúsum í heimalandinu annars

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.