Málfríður - 15.09.1999, Qupperneq 18

Málfríður - 15.09.1999, Qupperneq 18
Vel heppnað enskukennaranámskeið í Bath Laufey R. Bjarnadóttir Dagana 8,—18. júní sl. dvaldist ég ásamt 23 öðrum íslenskum enskukennurum í Bath í Englandi og tók þar þátt í námskeiði við háskólann (University of Bath). Flest bjuggum við á heimavist á háskólasvæð- inu og líkaði það vel, herbergi voru góð, ^ með eldunaraðstöðu, og stutt var að fara „í skólann" . Námskeiðið var skipulagt sérstaklega fyrir okkur og hafði Félag enskukennara á Islandi veg og vanda af undirbúningi þess í samvinnu við kennara enskudeildar há- skólans í Bath. I broddi fylkingar var frá- farandi formaður félagsins, Gerður Guð- mundsdóttir. Námskeiðið bar yfirskriftina Bringing Culture into the Classroom og fjall- aði um breska menningu og leiðir til að tengja hana kennslunni. Við vorum í skólanum frá kl. 9—12:30 og eftir hádegið var farið í skoðunarferðir þrjá daga í viku. I kennslustundum var fjallað um ýmsar hliðar breskrar menning- ar með áherslu á Bath og svæðið þar í kring. Meðal annars hélt ferðamálafulltrúi Bath erindi um ríkjandi viðhorf í ferða- þjónustu í borginni, þar sem áhersla er lögð á að varðveita umhverfið og merka staði sem þó eru gerðir aðlaðandi fyrir ferðamenn. Einnig má nefna ágætan fyrir- lestur um breska skólakerfið og viðhorf breskra stjórnmálamanna til skólamála á undanfornum árum, og auk þess kynnti fræðslufulltrúi frá háskólanum í Bath möguleika til framhaldsnáms við skólann. Eitt af því sem mér þótti áhugavert í umfjöllun um enska málnotkun var það sem á ensku er nefnt „political correct- ness“ eða „non-discriminatory language use“ (viðeigandi orðaval eða fordómalaus málnotkun). Með því að nota þessi hug- tök er hvatt til málnotkunar þar sem bor- in er virðing fyrir fólki af mismunandi þjóðerni og trúarbrögðum, litarhætti og kynferði, og þess gætt að særa ekki minni- hlutahópa, til dæmis samkynhneigða og fatlaða. Ekki eru þó allir sammála um hversu langt þessi kurteisi skuli ganga og þykir sumum nóg um. Samkvæmt þessu þykir ekki lengur heppilegt að tala um headmaster eða headmistress, heldur þykir Greinarhöfundur ásamt Guðnýju Pálsdótur, nýkjörnum formanni Félags enskukennara á Islandi, við heitu böðin t Bath. 18

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.