Málfríður - 15.09.1999, Side 22

Málfríður - 15.09.1999, Side 22
Hugmyndabanki: „Alle Wege nach Berlin6í Agústa Elín Ingþórsdóttir Sú meginhug- mynd sem ég hafði að leiðar- ljósi við undir- búningsvinnu mína var að nemendur fengju tilfinn- ingu fyrir borg- inni. 22 I marsmánuði þessa árs var ég um tveggja vikna skeið við æfingakennslu í Mennta- skólanunr við Hamrahlíð. Kenndi ég meðal annars þýska 203 þar sem fjallað var um Berlín í einum kafla kennslubókarinn- ar Themen neu 1. Þar sem ég hafði búið í Berlín fyrir fall múrsins var það ögrandi viðfangsefni að reyna að miðla broti af því sem sú borg hefur upp á að bjóða á áhuga- verðan og lifandi hátt til nemenda. Að taka nemendur með mér í ævintýri á göngu- för. Segja má að ég hafi tekist á við þetta efni sem nokkurs konar þema, þema sem hægt væri að útfæra á ýmsa vegu með nemendum á lengri tíma en þeim tveim vikum sem æfingatímabilið stóð yfir. Nemendur gætu t.d. unnið í hópvinnu að möppu eða plakati um borgina. Sú meginhugmynd sem ég hafði að leiðarljósi við undirbúningsvinnu mína var að nemendur fengju tilfinningu fyrir borginni, sögu hennar og íbúum fýrr og nú, sögufrægum stöðum og byggingum. Að örva öll skilningarvit þeirra til að taka á móti nýjum fróðleik og nýta sér það sem þau vissu fýrir, til að úr skapaðist bæði lip- ur og menntandi samleikur. Yfirmarkmið Berlínarþemans voru því þau að nemendur kynntust heimsborginni Berlín og fengju innsýn í valda þætti menningar hennar og sögu. Undirmark- miðin voru tengd efni kennslubókarinnar sem ég leyfði mér að krydda eins og efni stóðu til í það og það skiptið. Mér fannst mjög mikilvægt að koma með mikið af heimatilbúnu efni til að glæða kennsluna auknu lífi, til að fá stafi kennslubókarinn- ar til að „hoppa upp úr bókunum“ og færa námsefnið nær nemendum. Hvort tveggja taldi ég vænlegt til að vekja áhuga hjá nemendum og tengja lesefni raun- veruleikanum. Þetta viðbótarefni sótti ég í smiðju Internetsins og þýska menningar- setursins, auk þess að glugga í ýmsar ljóða- bækur. Fylgir hér stutt lýsing á umfjöllun minni. Það skal tekið fram að efni það, sem ég vann sjálf og þallaði um, var tengt efni kennslubókar. 1. dagur: • Nemendur spurðir hvað þeir viti um Berlín, stikkorð skissuð á töflu. • Fræðslumynd sýnd um Berlín (fáanleg hjá þýska menningarsetrinu) — rætt saman um valin atriði á myndbandi. Kveikja til að vekja áhuga hjá nemend- um og tengja lesefni raunveruleikanum með sjónrænni upplifun. • Hér notaði ég einnig myndefni fengið af Internetinu sem ég prentaði beint yfir á glærur1; t.d. af Herta Berlin fótbolta- leikvanginum, þar sem Islendingurinn Eyjólfur Sverrisson leikur, til að fá fleiri nemendur en þá sem yfirleitt voru vilj- ugastir til að svara og tjá sig. 2. dagur: • Kveikja: Glæra með mynd af hljóm- sveitinni Rammstein sett á myndvarpa (rnynd fengin af geisladiski eða Inter- netinu) — nemendur spurðir hvort þeir kannist við þá sem á myndinni eru — umræður. • I því framhaldi má nota t.d. textann „Engel“ (ekki eru allir textar hljóm- sveitarinnar boðlegir hvað innihald varðar) til að þjálfa nemendur í að setja inn forsetningar. Hér er því hægt að tengja tvennt saman, þ.e. að nota tónlist til að vekja áhuga nemenda, í þessu til- felli á því sem frá Berlín kemur, en hljómsveitarmeðlimir koma flestir frá fýrrverandi austurhluta Berlínar, og þjálfa nemendur í málfræðiatriðum. • Fyrst fengu nemendur textann (fýlgir geisladisknum en er einnig hægt að nálgast á Internetinu) án forsetninga og áttu að setja inn rétta forsetningu. Síðan var farið yfir verkefnið sameiginlega á

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.