Víðförli - 15.07.1985, Qupperneq 6

Víðförli - 15.07.1985, Qupperneq 6
Útbruni, slokknun (Burn-out) er sjúkdómur dugmesta fólksins. Varnaöarorö Hann er einkum áberandi meðal kirkjulegra starfsmanna, fólks í félagsþjónustu og heilsugæslu. Hann skapast af vonbrigöum, þreytu og tilfinningu þess aö hafa mistekist og leggst sérstak- tll KirKjunnar: \e.Qa á þaö fólk sem haföi hærri væntingar en raunveruleikinn leyföi aö yröu aö veruleika. Taliö er aö 17% kanadískra presta séu „útbrunnir". Svo sagöi í forsíöugrein í vorhefti tímarits kanadísku kirkjunnar. Trúlega eru aðstæöur eitthvaö svipaöar á íslandi sem í Kanada. t»ví birtir Víöförli útdrátt úr greininni ef veröa mætti til umhugs- unar. „Besta fólkiö brennur út” Hvaö er útbruni? Sjúkdómurinn hefur tvö stig. Á fyrra stigi finna menn til linnulausrar þreytu, þeir eru líkamlega úttaugaöir og sofna gjarnan á ólíklegustu stööum. Þeir eru færir um aö gegna starfi sínu af færni og um- hyggju, en þeir hafa glatað glóðinni, kraftinum og áhugan- um fyrir starfinu. Vandamálið er aö þetta eru bestu og sam- viskusömustu prestarnir. Þeir hafa einfaldlega gefið of mikiö af sjálfum sér og of lengi. Síð- ara stigið lýsir sér þannig aö andleg og sálarleg samhæfing er í rústum auk líkamsþreyt- unnar og einstaklingurinn gefst upp oft með alvarlegum afleiöingum fyrir hann og fjöl- skyldu hans. Endurhæfing getur oröið mjög erfið. Hverjar eru orsakir út- brunans? 1. Starfinu er aldrei lokið. Presturinn er á vakt 24 tíma sólarhrings og hefur tak- markaða möguleika aö sleppa úr prestshlutverkinu og vera hann sjálfur. 2. Presturinn þarf sífellt aö vera öörum styrkur á erfið- um stundum og slíkt kostar meiri orku en menn gera sér grein fyrir. 3. Sífelld samskipti við kröfu- hart og oftlega brenglaö fólk á öllum tímum sólarhrings. 4. Margþættar væntingar frá sóknarbörnum um starf prestsins sem hann getur aldrei uppfyllt. 5. Krafan til prestsins að vera siðferðilegur leiðtogi og lifa fyrirmyndar („heilögu") lífi. Hvernig þróast útbrun- inn? Þarna skapast vítahringur. Presturinn hefur hlotið köllun frá Quöi og tekið þá ákvöröun aö verja lífi sínu til þess að þjóna honum og náunganum. Fljótlega uppgötvar hann í prestsstarfinu, aö þar er meiri neyö og þarfir en hann getur sinnt. Hugsjónin knýr hann hinsvegar áfram aö takast á viö verkefnin og hann hefur þá til- finningu aö honum ætti að tak- ast þetta. Heilsan fer þá smám saman aö gefa sig og fjölskyldutengslin veröa bágari. Slagorðiö er „Reyndu betur" og þaö felur í sér aö menn gefi meiri tíma, orku en þeir eiga til starfans og þaö verður aöeins tekið af vara- sjóðum og af þeim tíma sem verja skyldi til hvíldar, upp- byggingar og skemmtunar meö fjölskyldunni. Kirkjan sem stofnun tekur allan frítima frá þessum þjónum sínum. Þegar ekki tekst að vinna verkefnin, skapast þaö viðhorf hjá einstaklingnum, aö það sé honum aö kenna, hann dugi ekki, hann sé vandamálið og þá byrjar hann aö leggja sverðið i eigiö hjarta. Hjálparleysiö og lágvær ör- væntingin leiða síðan til bitur- leika gagnvart sóknarbörnun- um sem gera ailar þessar óyfir- stíganlegu kröfur. Pá bætist við sektarkennd, og hún leikur menn grátt. Presturinn hugsar sem svo: Hvernig get ég forakt- aö þetta sama fólk sem ég hef verið kallaöur til aö þjóna? Það hlýtur aö vera eitthvað aö mér, ef ég væri duglegri og sam- viskusamari, gæti ég staöiö mig betur. Þannig heldur vítahringurinn áfram, hann leiðir frá hrifningu til deyfðar síðan til vonbrigða, biturleika og sinnuleysis og loks uppgjafar. 6 - VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.