Víðförli - 01.11.2004, Qupperneq 6
6
VÍÐFÖRLI
23. ÁRG. 3. TBL.
JPV útgáfa gefur út Biblíuna
í nýrri þýðingu
Hið íslenska Biblíufélag og JPV útgáfa undirrituðu ný-
lega samning þess efnis að JPV útgáfa taki að sér útgáfu
og dreifingu á nýrri þýðingu á Biblíunni.
„Með þessari undirritun er brotið blað í sögu Hins ís-
lenska Biblíufélags sem er elsta félag á íslandi og hefur séð
um útgáfu og dreifingu á Biblíunni frá stofnun," sagði bisk-
up íslands og forseti Biblíufélagsins, Karl Sigurbjörnsson,
við undirritun samningsins. Hann þakkaði stjórn félagsins
ötulan stuðning við þýðingarverkið sem fer fram undir
stjórn Dr. Guðrúnar Kvaran, og ríkisstjórninni fjárhagslegan
stuðning.
„Það er draumur sérhvers útgefanda að fá að gefa út
Biblíuna og mesta áskorun sem ég hef tekist á við á 30 ára
útgáfuferli," sagði Jóhann Páll Valdimarsson, stjórnarfor-
maður og útgáfustjóri JPV útgáfu.
Unnið hefur verið að þýðingunni í vel á annan áratug.
Þetta verður ellefta útgáfa Biblíunnar á íslensku. Hún var
síðast gefin út 1981 en þá var ekki um nýja þýðingu að
ræða þó að þýðingin hafi verið talsvert endurskoðuð.
Þá verða apókrýfurit Gamla testamentisins aftur prentuð
með Biblíunni en þau fylgdu íslenskum útgáfum Biblíunnar
fram á miðja 19. öld. Stefnt er að því að gefa út Biblíuna í
september 2006.
JPV útgáfa tekur jafnframt við dreifingum og sölumálum
núverandi útgáfu um næstu áramót.
Biblíufélagið hefur séð um útgáfu og dreifingu Biblíunn-
ar allt frá stofnun þess árið 1815. í tilkynningu frá félaginu
og JPV útgáfu eru ástæður þessara breytinga tilgreindar:
„Útgáfa nýrrar þýðingar Biblíunnar er viðamikið verkefni.
Kristið fólk og
þvertrúarleg
samskipti
Á vefnum www.kirkjan.is/annall/truarbrogd er að
finna skjal sem þar sem kynntar eru leiðbeiningar um
samskipti kristins fólks við fólk af öðrum trúarbrögðum.
Hér er um að ræða skjal sem er afrakstur tveggja þinga
með fulltrúum frá kirkjum Porvoo kirknasambandsins.
Þar er meðai annars fjallað um afstöðu kristinna ein-
staklinga í samskipum við fólk af öðrum trúarbrögðum
hvað snertir fjölskyldumál, hjónabrögð fólks af ólíkum
trúarbrögðum, sameiginlegra helgiathafna og fleira.
Skjalið er hugsað sem umræðugrunnur og til aðlögun-
ar í mismunandi aðstæðum.
Sams konar viðburður hefur raunar ekki orðið síðan Biblí-
an kom út árið 1912. Jafnframt hefur hann í för með sér
einstakt tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi Biblíunnar
jafnt fyrir einstaklinga sem þjóðina alla. Til að það takist
þarf að ná til þess stóra hóps fólks sem lítið þekkir til henn-
ar. Biblíufélagið er ekki í stakk búið til að sinna þessu verk-
efni án þess að gera verulegar breytingar á starfsemi sinni.
Stjórnin stóð þannig frammi fyrir þeirri spurningu hvernig
félagið gæti best náð því markmiði sínu að koma Biblíunni
og boðskap hennar til landsmanna.
Niðurstaða hennar varð sú, að það væri vænlegra til ár-
angurs að semja við JPV útgáfu þar sem þegar væri til
staðar öll sú sérstaka þekking og reynsla sem nauðsynleg
er til að valda slíku verkefni, heldur en að félagið stæði
sjálft að útgáfunni.
Á stjórnarfundi Biblíufélagsins lýsti stjórn þess ánægju
sinni yfir brennandi áhuga forsvarsmanna JPV útgáfu á að
taka þetta verkefni að sér og bað fyrir áframhaldandi góðu
samstarfi og óskaði þess að Guðs blessun myndi hvíla yfir
því starfi sem framundan er.“
Steinunn A. Björnsdóttir
Jákvætt
hj ónanámskeið
I Hafnarfjarðarkirkju eru í vetur haldin svoköiluð já-
kvæð hjónanámskeið níunda veturinn í röð. Upphaf-
lega áttu þau aðeins að vera tvö að tölu en nú í vor
höfðu 6.500 manns sótt þessi námskeið frá upphafi.
Hjónanámskeiðin hafa nú í nokkur ár verið haldin í
samvinnu við Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar og
Fræðslusvið Biskupsstofu víða um land, m.a. ( Kefla-
vík, Þorlákshöfn, á Selfossi, Borgarfirði, Suðureyri,
Akranesi og í Reykjavík svo fáeinir staðir séu nefndir.
Einnig hefur námskeiðið verið haldið í Osló auk þess
sem starfsmannafélög, stofnanir og skólar hafa boðið
starfsfólki sínu upp á slíkt námskeið.
Efni námskeiðanna hefur breyst og þróast í gegnum
tíðina en megininnihald þeirra er sambúð og samskipti
í víðum skilningi. Farið er í gegnum gildrur sambúðar-
innar og fjallað um væntingar, vonir og vonbrigði þeirra
sem tilheyra fjölskyldunni. Fyrst og fremst er þó talað
um þær leiðir sem hægt er að fara til að styrkja innviði
fjölskyldunnar.
Leiðtogi á námskeiðunum hefur frá upphafi verið sr.
Þórhallur Heimisson prestur í Hafnarfjarðarkirkju en í
haust er ætlunin að gefa út í hans samantekt efni nám-
skeiðsins. Það verkefni er unnið á vegum Fræðslusviðs
Biskupsstofu í samstarfi við Leikmannaskólann og
Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir