Tónamál - 01.11.1981, Side 4

Tónamál - 01.11.1981, Side 4
Tónlistarskóli F.I.H. Hinn ötuli yfirkennari, Vilhjálmur Guðjónsson. Fyrsti kennsludagur í Tónlistarskóla F.Í.H. var 6. október 1980. Klukkan 9 þennan mánudagsmorgun hóf fyrsti nemandinn nám sitt, starf kennarans var hafið og langþráður draumur stéttarfélags íslenzkra hljómlistarmanna var orðinn að vemleika. Þessi dagur er hinn eini og sanni afmælisdagur óskabarns- ins. Fæðingin var ekki kunngerð með skólasetning- arræðum og kampavínsgleði. Nú langar mig í stuttu máli að rekja sögu undir- búnings að skólahaldi Tónlistarskóla Félags ís- lenzkra hljómlistarmanna. Allt frá stofnun félagsins fyrir nær 50 árum hefur félagið látið sér annt um hæfni og menntun félagsmanna sinna. Þannig tíðkaðist það lengi framan af, að hver sá 4 sem hugði á inngöngu í félagið þurfti að gangast undir hæfnispróf. I lok fimmta áratugarins stofnaði félagið tónlist- arskóla, sem þó aðeins starfaði um eins árs skeið, enda fjárhagslegar forsendur fyrir slíku skólahaldi þa allt öðruvísi en þær, sem við eígum nú við að bua. Enginn vafi leikur á að Sverrir Garðarsson for- maður F.Í.H. er sá aðili, sem lengst hefur alið drauminn um Tónlistarskóla félagsins í brjósti. Það var á aðalfúndi 1978 að hann aflaði stjórninni um- boðs til að undirbúa stofnun skólans. Skólanefnd var sett á laggirnar og Gunnar Egilson skipaður formaður hennar. Aðrir í nefndinni eru félagsmennirnir Rut Ingólfsdóttir, Sverrir Garðars- TÓNAMÁL

x

Tónamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónamál
https://timarit.is/publication/1511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.