Tónamál - 01.11.1981, Page 5
J upphaft hljómleikanna var leikiS sorgarlag í minningu Gunnars Ormslev. Allir á myndinni nutu tilsagnar hans. Stjómandi Reynir Sigurðsson.
son og Reynir Sigurðsson, svo og Lárus Guðjónsson
frá Menningar- og fræðslusambandi alþýðu og Stefán
Edelstein, skólastjóri Tónmenntaskóla Reykjavíkur.
Undirritaður var síðan ráðinn framkvæmdastjóri
nefndarinnar. A aðalfundinum 1980 bættist Karl
Sighvatsson í hópinn.
I júnímánuði 1979 var samkvæmt lögum formleg
beiðni um stofun skólans lögð inn hjá forseta borg-
arstjórnar. Þessi beiðni var síðan ítrekuð í ágúst sama
ár. Samtöl við borgarfulltrúa og starfsmenn í
Menntamálaráðuneytinu fylgdu í kjölfarið. I byrjun
ársins 1980 var neikvæðri ályktun Borgarráðs svarað
tneð „skyndiárás" á borgarfulltrúa, þar sem þeir
voru að ganga til fundar í borgarstjórn. Var þeim
TÓNAMÁL
afhent ýtarlega rökstutt bréf, þar sem sýnt var fram
á óréttmæti afgreiðslu ráðamanna á málaleitan
félagsins. Vissulega var félagið með landslög sín
megin, en rimman hélt áfram.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborg-
ar þann 17. apríl var samþykktur þriggja milljón
króna styrkur til starfsemi skólans fyrir árið 1980.
Ollum má vera ljóst að fyrir þessa upphæð er ekki
hægt að reka tónlistarskóla, enda var styrkveitingin
hugsuð sem viðurkenning á tilvist skólans. Þessi
viðurkenning þýddi það, að frá og með áramótunum
1981 nyti skólinn réttinda á við aðrar skyldar stofn-
anir í landinu.
Með hliðsjón af þessu hefði e. t. v. legið beinast
5