Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2008, Side 6
Carole Pope er goðsögn í lifanda lífi. Barn að aldri fluttist hún frá
Englandi til Kanada þar sem hún nýtur gríðarlegra vinsælda fyrir
tónlist sína. Hún varð fyrst fræg í samvinnu við Kevan Staples í
Toronto, en samstarf þeirra þróaðist yfir í hljómsveitina O, síðan
The Bullwhip Brothers og að lokum The Rough Trade, sem átti eftir
að ná miklum vinsældum um allan heim.
Hún var ein fyrsta rokkstjarnan sem gekkst opinberlega við til-
finningum sínum sem lesbía og fléttaði þá reynslu inn í texta sína
og tónlist, því að hún syngur berort og fumlaust um ástir kvenna.
Oft hafa íhaldsöfl af ýmsu tagi misst andann yfir list hennar og
hrópað hástöfum gegn henni í fjölmiðlum. En umfram allt er hún
okkar kona, stundum villt og tryllt, en umfram allt öflugur liðsmaður
í leitinni að betra lífi.
Þrívegis hefur Carole Pope hlotið Juno-verðlaunin í Kanada, en
þau svara til Grammy-verðlaunanna í Bandaríkjunum, og enn kepp-
ist heimurinn við að hylla hana og verðlauna. Hún hefur slegið ótal
sölumet í Kanada og hlotið fjöldann allan af gull- og platinumplöt-
um. Þá hefur hún m.a. samið tónlist við sjónvarpsþættina L-Word
og Queer as Folk.
Árið 2000 gaf Carole Pope út sjálfsævisögu sína, Anti-Diva,
þar sem hún fjallaði m.a. opinskátt um ástarsamband sitt við hina
heimsfrægu Dusty Springfield, en allt sitt frægðarlíf bjó hún í
skápnum, sem í senn var þröngur og víður, og átti alla tíð í fjörlegum
ástarsamböndum við ýmsar konur uns hún lést um aldur fram.
CAROLE
POPE
6
Carole Pope er enginn venjulegur gestur á Hinsegin dögum, því hún
er sennilega skærasta erlenda stjarna sem þar hefur komið fram.
Hún skemmtir á tónleikum á Organ föstudaginn 8. ágúst kl. 21 og
kemur fram á útihátíðinni við Arnarhól laugardaginn 9. ágúst.
www.carolepope.com / www.myspace.com/carole pope
A n t i - D i v A
Controversial and world famous rocker Carol Pope is one
of the star artists at Reykjavík Gay Pride 2008. Pope, whose
wide and and piercing blue eyes smoldered out from album
covers in the 1970s and 80s, broke taboos and laid paths
where no bands had gone before as half of the early punk
duo Rough Trade. Her provocative blend of hard-edged new
Wave rock with explicit homoerotic and BDSM-themed lyr-
ics made her one of the first openly lesbian pop stars in the
world and a triple winner of the Canadian Juno Award.
Carole Pope has earned numerous gold and platinum
records for her artistic achievements as well as producing
music for world famous television series like The L-Word
and the US version of Queer as Folk.
We welcome Ms. Pope to Reykjavík Gay Pride where she
will be performing at Club Organ, Friday, 8 August at 9 p.m.,
and at the Open Air Concert at Arnarhóll Saturday, 9 August.
G O ð S ö G n ú R
h E I m I S A m k y n h n E I G ð R A
á h á t í ð h I n S E G I n d A G A