Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2008, Page 19

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2008, Page 19
Varla þarf að kynna Regínu ósk og Friðrik ómar eftir glæsilega ferð þeirra til Belgrad í vor á Eurovision-keppnina þar sem þau sungu af öryggi og sjarma sem fáum er gefinn. á örskömmum tíma hafa þau skipað sér í röð okkar fremstu dægurlagasöngvara, gefið út nokkrar vinsælar plötur og slegið í gegn í ótal sýningum á sviði. Regína ósk nam klassískan söng við Söngskólann í Reykjavík og djasssöng í Tónskóla FÍH. Hún hefur hljóðritað þrjár vinsælar sólóplötur. Friðrik ómar birtist dag nokkurn norðan af Dalvík og sá og sigraði höfuðborgina á undraskömmum tíma. Sína fyrstu sólóplötu gaf hann út á síðasta ári. Þá starfa þau saman í hljómsveitinni eurobandið sem notið hefur gríðarlegra vinsælda síðustu tvö ár og að sjálfsögðu mun bandið leggja þeim lið á Hinsegin dögum. Bandið skipa þeir Kristján Grétarsson, Benedikt Brynleifsson, Róbert Þórhallsson og Grétar Örvarsson. Friðrik ómar og Regína ósk komu fyrst fram á hátíð Hinsegin daga sumarið 2006, þó ekki saman heldur hvort í sínu lagi. Í ár munu þau leggja gleðigöng- unni lið á þann hátt sem þeim einum er laginn og syngja saman á útihátíðinni við Arnarhól laugardaginn 9. ágúst. A MAtCH MADe in eUROviSiOn HeAven With youthful charm, Friðrik Ómar and Regína Ósk represented iceland in Belgrad at the eurovision Song Contest 2008 with their catchy song, “this is my life”. those two rising stars owe their great popularity partly to various musical stage shows in Reykjavík and several well received albums, as well as their own Euroband, specializing in eurovision music. Friðrik Ómar, Regína Ósk and the euroband will give our Pride Parade their special touch of colour and perform as well at the Open Air Concert at Arnarhóll, 9 August. www.fridrikomar.is – www.reginaosk.is www.myspace.com/euroband – www.rigg.is FRIðRIk ómAR REGínA óSk OG 19

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.