Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2008, Síða 62
Stjórn og samstarfsnefnd
um Hinsegin daga í Reykjavík
Þau eru fjölmörg sem leggja hönd á plóg til að gera hátíð
Hinsegin daga að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó meira
úthald en önnur við undirbúninginn og vinna hörðum höndum
í stjórn og samstarfsnefnd árið um kring, áður en kemur að
fjögurra daga stórhátíð:
Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2008 sitja
Þorvaldur Kristinsson, forseti, Kristín Sævarsdóttir, ritari,
Þórarinn Þór, gjaldkeri, Katrín Jónsdóttir, erindreki, og
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri.
Þeim til stuðnings, aðhalds og trausts starfar öflug
samstarfsnefnd að verkefnum ársins. Allir sem þess óska
geta tekið sæti í samstarfsnefnd, þar þarf ekkert til nema
góðan vilja og samstarfshug. Þau sem einkum hafa komið
að vinnu samstarfsnefndar síðastliðið ár eru: Anna Jonna
Ármannsdóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Birna Hrönn Björnsdóttir,
Erlingur Óttar Thoroddsen, Fríða Agnarsdóttir, Guðjón Ragnar
Jónasson, Jón Sævar Baldvinsson, Matthías Matthíasson,
Ragnar Ólason, Svavar G. Jónsson og Vallý Helgadóttir.
Allt þetta fólk tekur síðan forystu í ýmsum „deildum“
hátíðarinnar og ábyrgist meðal annars sölumál, fánaborg-
ir, öryggi hátíðargesta, fjáröflun og auglýsingar, stjórnun
gleðigöngu, móttöku erlendra listamanna, ritstjórn útgáfu-
efnis og rekstur þjónustumiðstöðvar svo fátt eitt sé nefnt.
Þegar hátíðin nálgast kalla stjórn og samstarfsnefnd síðan
á mikinn fjölda sjálfboðaliða sér til aðstoðar við að gera
hátíðina sem glæsilegasta.
H I N S E G I N F É L A G A S A M T Ö K Á Í S L A N D I
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride
www.gaypride.is
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride eru sjálfboðaliðasamtök sem
árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgi í ágúst.
Hinsegin dagar eru sjálfstæð félagasamtök, en ýmis önnur félög og
hreyfingar samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender-fólks eru
félagar í Hinsegin dögum ásamt einstaklingum og standa þar saman
að skipulagi hátíðarinnar. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar í
ágúst geta gerst félagar í Hinsegin dögum og árgjaldið er 500 kr.
Samtökin ´78 – félag lesbía og homma á Íslandi
www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is
Samtökin ´78 eru elstu og stærstu samtök samkynhneigðra hér á landi.
Þau voru stofnuð í maí 1978 og eru því 30 ára á þessu ári. Markmið
félagsins eru tvíþætt: Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum lesbía
og homma í því skyni að vinna þeim jafnrétti á við aðra á öllum sviðum
þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menningarlegan vettvang
til þess að styrkja sjálfsvitund þeirra, samkennd og samstöðu um
sérkenni sín. Mikill hluti af starfi félagsins snýst um réttindabaráttu á
opinberum vettvangi og þar hafa unnist miklir sigrar. Árið 2006 náðust
fram mikilvægar lagabætur sem eyða fyrri takmörkunum á lögum um
staðfesta samvist og lúta að ættleiðingum og tæknifrjóvgunum. Einnig
öðluðust samkynhneigð pör um leið rétt til að láta skrá óvígða sambúð
sína á Hagstofu. Í miðstöð félagsins á Laugavegi 3 starfar fólk að
fræðslu og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf um samkynhneigð
málefni. Þar er einnig að finna vandað og glæsilegt almennings-
bókasafn, eitt stærsta sinnar tegundar í Norður-Evrópu sem eingöngu
safnar hinsegin efni, bókum, tímaritum og kvikmyndum.
Trans-Ísland – félag transgender fólks á Íslandi
http://groups.google.com/group/trans-is-frettabref /
trans-is-frettabref@googlegroups.com
Transgender fólk er hinsegin að því leyti, að það breytir kynhlut-
verki sínu meira eða minna, og skiptir jafnvel alveg um kynhlutverk,
tímabundið eða varanlega. Transgender fólk getur verið gagnkyn-
hneigt, samkynhneigt og allt þar á milli. Trans-Ísland var stofnað árið
2007. Félagið hefur að markmiði sínu að skapa transgender fólki og
fjölskyldum þeirra menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfs-
vitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu til fagfólks
og eiga samstarf við sambærileg samtök, hópa og áhugafólk hérlendis
og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar, stendur Trans-Ísland
fyrir fundum í húsnæði Samtakanna ’78 og eru nýir félagar velkomnir.
Félagið er aðili að Samtökunum ’78, Hinsegin dögum í Reykjavík og
Transgender Europe, Network and Council.
KMK – Konur með konum / www.kmk.is / kmk@kmk.is
Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía fyrir
rúmum áratug og hefur starfað síðan með nokkrum hléum. Vorið
2000 var starfið endurvakið en tilgangur hreyfingarinnar er ekki síst
að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim tækifæri
til að skemmta sér á eigin forsendum og kynnast öðrum í hópnum.
Stúlkurnar í KMK stunda íþróttir, einkum blak, af kappi og hafa keppt
á ýmsum alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumarhátíðir og bregða
sér sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar. Á vefsíðu KMK er
að finna líflega umræðu sem átt hefur drjúgan þátt í að efla styrk
hreyfingarinnar.
MSC Ísland www.msc.is / msc@msc.is
MSC Ísland var stofnað árið 1985. Klúbburinn hefur sínar klæðareglur,
leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að
félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt
í þá áttina en hina. MSC Ísland hefur ferðamennsku og fyrirgreiðslu
við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og félagið var
ekki síst stofnað til þess að Íslendingar gætu orðið formlegur aðili
að Evrópusamtökum slíkra klúbba, ECMC. Þau samtök hafa verið ein
virkustu alþjóðasamtök samkynhneigðra um áratugi og lagt mikið af
mörkum til baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð.
Q – Félag hinsegin stúdenta
Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999 af einum 20 stú-
dentum við Háskóla Íslands. Brátt var hópurinn orðinn um 150 manns
og hefur félagið haldið uppi blómlegu félagsstarfi síðan. Markmið
félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi
og í forsvari þar þegar málefni samkynhneigðra ber á góma. Félagið
tekur virkan þátt í samtökum ungs hinsegin fólks í Evrópu, IGLYO,
og ANSO sem eru samtök hinsegin stúdenta á Norðurlöndum. Um
þessar mundir vinnur félagið að nýrri vefsíðu og öðru kynningarefni
sem lítur vefsins ljós í sumar. Í ágúst, rétt fyrir Hinsegin daga, mun
Q halda ráðstefnu í samstarfi við ANSO undir yfirskriftinni „A Queer
Wonderland“.
thanks to the queer community
The queer comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay
Pride 2008 with festivities in Reykjavík during the second weekend in
August. We would like to thank five organizations and activity groups:
the Icelandic Organization of Lesbians and Gay Men, Samtökin ’78;
Queer University Student Union, Q; the women’s group Women with
Women, KMK; the transgender association Trans-Iceland, and the
leather club MSC Iceland.
útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride
Laugavegi 3 – 101 Reykjavík
www.gaypride.is
ábyrgðarmaður: Heimir Már Pétursson.
Hönnun: Tómas Hjálmarsson.
Merki Hinsegin daga: Kristinn Gunnar Atlason.
Ritstjórnarvinna: Þorvaldur Kristinsson, Erlingur Óttar Thoroddsen,
Heimir Már Pétursson og Veturliði Guðnason.
ljósmyndir: Bára, Geir Ragnarsson og fleiri.
Auglýsingar: Heimir Már Pétursson, Guðjón R. Jónasson,
Jón Sævar Baldvinsson, Vallý Helgadóttir og Þorvaldur Kristinsson.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja hf.