Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2008, Blaðsíða 62

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2008, Blaðsíða 62
Stjórn og samstarfsnefnd um Hinsegin daga í Reykjavík Þau eru fjölmörg sem leggja hönd á plóg til að gera hátíð Hinsegin daga að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó meira úthald en önnur við undirbúninginn og vinna hörðum höndum í stjórn og samstarfsnefnd árið um kring, áður en kemur að fjögurra daga stórhátíð: Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík árið 2008 sitja Þorvaldur Kristinsson, forseti, Kristín Sævarsdóttir, ritari, Þórarinn Þór, gjaldkeri, Katrín Jónsdóttir, erindreki, og Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri. Þeim til stuðnings, aðhalds og trausts starfar öflug samstarfsnefnd að verkefnum ársins. Allir sem þess óska geta tekið sæti í samstarfsnefnd, þar þarf ekkert til nema góðan vilja og samstarfshug. Þau sem einkum hafa komið að vinnu samstarfsnefndar síðastliðið ár eru: Anna Jonna Ármannsdóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Birna Hrönn Björnsdóttir, Erlingur Óttar Thoroddsen, Fríða Agnarsdóttir, Guðjón Ragnar Jónasson, Jón Sævar Baldvinsson, Matthías Matthíasson, Ragnar Ólason, Svavar G. Jónsson og Vallý Helgadóttir. Allt þetta fólk tekur síðan forystu í ýmsum „deildum“ hátíðarinnar og ábyrgist meðal annars sölumál, fánaborg- ir, öryggi hátíðargesta, fjáröflun og auglýsingar, stjórnun gleðigöngu, móttöku erlendra listamanna, ritstjórn útgáfu- efnis og rekstur þjónustumiðstöðvar svo fátt eitt sé nefnt. Þegar hátíðin nálgast kalla stjórn og samstarfsnefnd síðan á mikinn fjölda sjálfboðaliða sér til aðstoðar við að gera hátíðina sem glæsilegasta. H I N S E G I N F É L A G A S A M T Ö K Á Í S L A N D I Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride www.gaypride.is Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride eru sjálfboðaliðasamtök sem árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgi í ágúst. Hinsegin dagar eru sjálfstæð félagasamtök, en ýmis önnur félög og hreyfingar samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender-fólks eru félagar í Hinsegin dögum ásamt einstaklingum og standa þar saman að skipulagi hátíðarinnar. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar í ágúst geta gerst félagar í Hinsegin dögum og árgjaldið er 500 kr. Samtökin ´78 – félag lesbía og homma á Íslandi www.samtokin78.is / skrifstofa@samtokin78.is Samtökin ´78 eru elstu og stærstu samtök samkynhneigðra hér á landi. Þau voru stofnuð í maí 1978 og eru því 30 ára á þessu ári. Markmið félagsins eru tvíþætt: Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum lesbía og homma í því skyni að vinna þeim jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins, og að skapa félagslegan og menningarlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þeirra, samkennd og samstöðu um sérkenni sín. Mikill hluti af starfi félagsins snýst um réttindabaráttu á opinberum vettvangi og þar hafa unnist miklir sigrar. Árið 2006 náðust fram mikilvægar lagabætur sem eyða fyrri takmörkunum á lögum um staðfesta samvist og lúta að ættleiðingum og tæknifrjóvgunum. Einnig öðluðust samkynhneigð pör um leið rétt til að láta skrá óvígða sambúð sína á Hagstofu. Í miðstöð félagsins á Laugavegi 3 starfar fólk að fræðslu og félagsráðgjöf og veitir aðstoð og ráðgjöf um samkynhneigð málefni. Þar er einnig að finna vandað og glæsilegt almennings- bókasafn, eitt stærsta sinnar tegundar í Norður-Evrópu sem eingöngu safnar hinsegin efni, bókum, tímaritum og kvikmyndum. Trans-Ísland – félag transgender fólks á Íslandi http://groups.google.com/group/trans-is-frettabref / trans-is-frettabref@googlegroups.com Transgender fólk er hinsegin að því leyti, að það breytir kynhlut- verki sínu meira eða minna, og skiptir jafnvel alveg um kynhlutverk, tímabundið eða varanlega. Transgender fólk getur verið gagnkyn- hneigt, samkynhneigt og allt þar á milli. Trans-Ísland var stofnað árið 2007. Félagið hefur að markmiði sínu að skapa transgender fólki og fjölskyldum þeirra menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfs- vitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu til fagfólks og eiga samstarf við sambærileg samtök, hópa og áhugafólk hérlendis og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar, stendur Trans-Ísland fyrir fundum í húsnæði Samtakanna ’78 og eru nýir félagar velkomnir. Félagið er aðili að Samtökunum ’78, Hinsegin dögum í Reykjavík og Transgender Europe, Network and Council. KMK – Konur með konum / www.kmk.is / kmk@kmk.is Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía fyrir rúmum áratug og hefur starfað síðan með nokkrum hléum. Vorið 2000 var starfið endurvakið en tilgangur hreyfingarinnar er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og kynnast öðrum í hópnum. Stúlkurnar í KMK stunda íþróttir, einkum blak, af kappi og hafa keppt á ýmsum alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumarhátíðir og bregða sér sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar. Á vefsíðu KMK er að finna líflega umræðu sem átt hefur drjúgan þátt í að efla styrk hreyfingarinnar. MSC Ísland www.msc.is / msc@msc.is MSC Ísland var stofnað árið 1985. Klúbburinn hefur sínar klæðareglur, leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. MSC Ísland hefur ferðamennsku og fyrirgreiðslu við erlenda ferðamenn beinlínis á stefnuskrá sinni og félagið var ekki síst stofnað til þess að Íslendingar gætu orðið formlegur aðili að Evrópusamtökum slíkra klúbba, ECMC. Þau samtök hafa verið ein virkustu alþjóðasamtök samkynhneigðra um áratugi og lagt mikið af mörkum til baráttunnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð. Q – Félag hinsegin stúdenta Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999 af einum 20 stú- dentum við Háskóla Íslands. Brátt var hópurinn orðinn um 150 manns og hefur félagið haldið uppi blómlegu félagsstarfi síðan. Markmið félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari þar þegar málefni samkynhneigðra ber á góma. Félagið tekur virkan þátt í samtökum ungs hinsegin fólks í Evrópu, IGLYO, og ANSO sem eru samtök hinsegin stúdenta á Norðurlöndum. Um þessar mundir vinnur félagið að nýrri vefsíðu og öðru kynningarefni sem lítur vefsins ljós í sumar. Í ágúst, rétt fyrir Hinsegin daga, mun Q halda ráðstefnu í samstarfi við ANSO undir yfirskriftinni „A Queer Wonderland“. thanks to the queer community The queer comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay Pride 2008 with festivities in Reykjavík during the second weekend in August. We would like to thank five organizations and activity groups: the Icelandic Organization of Lesbians and Gay Men, Samtökin ’78; Queer University Student Union, Q; the women’s group Women with Women, KMK; the transgender association Trans-Iceland, and the leather club MSC Iceland. útgefandi: Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride Laugavegi 3 – 101 Reykjavík www.gaypride.is ábyrgðarmaður: Heimir Már Pétursson. Hönnun: Tómas Hjálmarsson. Merki Hinsegin daga: Kristinn Gunnar Atlason. Ritstjórnarvinna: Þorvaldur Kristinsson, Erlingur Óttar Thoroddsen, Heimir Már Pétursson og Veturliði Guðnason. ljósmyndir: Bára, Geir Ragnarsson og fleiri. Auglýsingar: Heimir Már Pétursson, Guðjón R. Jónasson, Jón Sævar Baldvinsson, Vallý Helgadóttir og Þorvaldur Kristinsson. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.