Bæjarins besta - 02.11.2006, Síða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
Fimmtudagur 2. nóvember 2006 · 44. tbl. · 23. árg.
Guðbjartur Hannesson,
skólastjóri á Akranesi sigraði
í prófkjöri Samfylkingarinnar
í NV-kjördæmi sem haldið var
um helgina. Sr. Karl Valgarð-
ur Matthíasson, fyrrv. alþing-
ismaður varð í öðru sæti, Anna
Kristín Gunnarsdóttir, alþing-
iskona varð í þriðja sæti og
Sigurður Pétursson, bæjarfull-
trúi í Ísafjarðarbæ varð í fjórða
sæti. Guðbjartur hlaut 477 at-
kvæði í fyrsta sætið, Karl fékk
552 atkvæði í 1.-2. sætið,
Anna Kristín fékk 582 í 1.-3.
sæti og Sigurður fékk 790 at-
kvæði í 1.-4. sæti. 1668
greiddu atkvæði og voru 69
seðlar auðir og ógildir.
Sigurður Pétursson segist
vel mega una við úrslit próf-
kjörsins. „Ég má vel við una,
ég náði einu af þeim fjórum
sætum sem ég bauð mig fram
í“, segir Sigurður. „Þá er ég
ánægður með að prófkjörið
hafi farið vel fram, og hvað
þátttakan var góð. Ég er þakk-
látur fyrir þann stuðning sem
ég fékk alls staðar að úr kjör-
dæminu og vil óska þeim sem
enduðu ofar á lista en ég til
hamingju með árangurinn. Ég
trúi því að Samfylkingin muni
ná góðum árangri í kosning-
unum í vor.“
„Ég er mjög glaður og
þakklátur fyrir það traust sem
mér hefur verið sýnt,“ segir
Karl V. Matthíasson sem
hafnaði í öðru sæti í prófkjör-
inu. Aðspurður um hvort hann
hefði átt von á þessu góða
gengi segir Karl: „Ég lagði af
stað í þetta með von um að
þessi árangur myndi nást, ég
hefði ekki farið af stað nema
eiga þá von. Ég vissi að þetta
hefði getað farið á alla vegu
þar sem í prófkjörinu var mik-
ið af góðu fólki.“
Í síðustu kosningum kom-
ust þau sem vermdu fyrstu
tvo sæti Samfylkingarinnar
inn á Alþingi, ef sú verður
raunin nú hvaða verkefni eru
það þá helst sem Karl vill helst
berjast fyrir. „Það eru mörg
verkefni sem þarf að fara í en
byggðamál og forvarnarmál
eru mér sértaklega hugleikin,
einnig eru samgöngumál af-
skaplega áríðandi, samgöngur
í á Vestfjörðum verða að vera
greiðari. Það verður að rétta
hag byggðanna og bæta at-
vinnuástandið og almanna-
tryggingakerfið þarf að kom-
ast í réttan farveg.“
–annaska@bb.is
Guðbjartur Hannesson sigraði
í prófkjöri Samfylkingarinnar
Fyrirhuguð brú
yfir Mjóafjörð.
Þverun
Mjóafjarðar
boðin út
Vegagerðin hefur óskað
eftir tilboðum í byggingu
14,5 km kafla Djúpvegar,
frá Rauðagarði á Reykja-
nesi að Hörtná vestan
Mjóafjarðar. Innifalið í
verkinu er meðal annars
að gera fyllingu á Mjóa-
fjörð og Reykjafjörð og
byggja þrjár brýr, 130 m
stálbogabrú á Mjóafjörð,
60 m spennta bitabrú á
Reykjafjörð og 10 m steypta
plötubrú á Vatnsfjarðarós.
Útboðsgögn verða seld
hjá Vegagerðinni, Dag-
verðardal á Ísafirði og í
móttökunni í Borgartúni
7 í Reykjavík frá og með
þriðjudeginum 31. októ-
ber 2006.
– annska@bb.is
Gunnar Hólm Sumarliðason, málari og tónlistarmaður með meiru varð áttræður 30. október sl. Af því tilefni bauð
hann ættingjum og vinum til veislu þar sem mætti fjölmenni. Að sjálfsögðu var mikið um tónlist í veislunni, enda
starfaði Gunnar í hljómsveitum um áratuga skeið. Barnabörn hans og barnabarnabörn spiluðu og sungu og gladdi það
afmælisbarnið mjög. „Ég meira að segja náði að taka nokkur lög með Óla Kitt, Villa Valla og Magnúsi Reyni,“ sagði
Gunnar alsæll í samtali við blaðið. Fleiri myndir úr afmælinu er að finna á bls. 14 sem og í svipmyndum á bb.is.
44.PM5 5.4.2017, 13:031