Bæjarins besta - 02.11.2006, Side 2
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 20062
Þennan dag árið1914 voru lög um notkun bifreiða stað-
fest. Enginn mátti stýra bifreið nema hann væri „fullra 21
árs að aldri“. Í þéttbýli mátti ökuhraði aldrei vera meira en
15 km á klukkustund en 35 km utan þéttbýlis.
Dagurinn í dag
2. nóvember 2006 – 308. dagur ársins
Atvinnuhúsnæði til
sölu – Silfurgata 1
Til sölu er Silfurgata 1, Ísafirði, jarðhæð og
kjallari, samtals 211,6m² verslunarhúsnæði
í hjarta miðbæjarins. Tilboð óskast.
Nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu
Vestfjarða, sími 456 3244, vefsíða: www.fsv.is,
netfang: eignir@fsv.is.
Skírteinið eins og það
lítur út eftir 13 ára sjóbað.
Mynd: www.bvg.is
Undar-
legur afli
Það var heldur sérstæð-
ur aflinn sem skipverjar á
Kleifabergi ÓF 2 fengu í
einu holinu á Halamiðum
í síðustu viku. Upp með
aflanum kom ökuskírteini
Ísfirðings sem gefið var
út fyrir 17 árum og er enn
í fullu gildi, en það rennur
út árið 2041. Skírteinið
var nokkuð velkt, undið
og snúið en samt ekki al-
veg ónýtt og vel hægt að
lesa á það. Eigandi þess
er Ólafur Helgi Ólafsson
á Ísafirði. Hann sagðist í
samtali við blaðið hafa
frétt af fundinum og fannst
ótrúlegt að skírteinið skyldi
hafa ratað í trollið á öllu
þessu hafsvæði.
„Það er að skila sér eftir
13 ár. Skírteinið var í
veski sem stolið var af
mér hér á Ísafirði. Það var
hér inni einhver grænn
togari frá Dalvík í brælu
og ég reddaði einum skip-
verjanna smá vökva sem
hann greiddi mér fyrir
með ávísun. Seinna um
kvöldið áttaði ég mig á
því að ávísunin var úr
mínu eigin ávísanahefti,“
sagði Ólafur Helgi.
Ólafur Helgi hafði ekki
haft neinar spurnir af
veskinu né innihaldi þess
síðan umrætt kvöld, málið
hefur aldrei verið upplýst
en skírteinisfundurinn
ætti að gefa einhverja
mynd af því hvað hefur
orðið um allavega hluta
af innihaldi veskisins.
Sagt var frá fundi skír-
teinisins á vefsíðunni bvg.is.
Söngvamessa verður
haldin í Suðureyrarkirkju
á sunnudag.
Þar mun Þorsteinn Hauk-
ur Þorsteinsson syngja
frumsamin lög og leika
undir á gítar.
Söngvamessa í
Suðureyrkirkju
Umhverfisnefnd Ísafjarðar-
bæjar hefur lagt til við bæjar-
stjórn að skólalóð Grunnskóla
Ísafjarðar, frá gatnamótum
Austurvegar og Norðurvegar,
verði lokuð fyrir allri umferð
nema umferð vegna fatlaðra
og vegna neyðarbíla frá 7.45
til 15 þá daga sem skólinn starf-
ar. Byggingarnefnd Grunn-
skólans á Ísafirði mætti á fund
umhverfisnefndar á dögunum
til viðræðna um breytingar á
umferð í nágrenni GÍ og var
þetta niðurstaða þeirra við-
ræðna.
Umferð um Austurveg hef-
ur verið bönnuð frá gatnamót-
um við Aðalstræti frá 8.15 til
15 um nokkurt skeið en upp á
síðkastið hefur verið nokkuð
rætt um að loka veginum með
slá, svo ekki sé hægt að brjóta
bannið nema með ærinni
fyrirhöfn. Þegar rætt var við
Skarphéðinn Jónsson, skóla-
stjóra fyrir nokkru, sagði hann
að lokun af þessu tagi yrði
mikið framfaraspor enda væri
ekki spurning um hvort heldur
hvenær slys bæri að höndum í
götunni ef ástandið héldist
óbreytt.
Bæði foreldrar og kennarar
hafa látið í ljós miklar áhyggj-
ur vegna umferðar í kringum
skólann. Umferð yfir götuna
hefur að mestu verið börn á
leið í sund eða leikfimi í Sund-
höllinni, en nú er heill árgang-
ur kominn með skólastofur í
Sundhöllinni sem eykur enn
frekar umferðina.
– eirikur@bb.is Algengt hefur verið að bílstjórar hunsi umferðarbann um Austurveg á skólatíma.
Lagt til að Austur-
vegi verði lokað
Guðmundur Hall-
dórsson, smábátasjó-
maður frá Bolungar-
vík, var gerður að heið-
ursfélaga Landssam-
bands smábátaeigenda
á landsfundi samband-
sins í síðustu viku.
Arthur Bogason, for-
maður sambandsins
tilkynnti um þetta í
setningarræðu sinni og
sagði m.a.:
„Hér í salnum er
einn okkar sem hefur
að öllum ólöstuðum skrifað talsvert umfram
meðaltal og vakið landsathygli fyrir einurð og
djörfung í framgöngu og málflutningi. Þetta er
faðir línuívilnunarinnar og skipuleggjandi stær-
stu funda hérlendis um málefni og framtíð
strandveiðanna og strandveiðisamfélaganna. Ég
er hér að tala um strigakjaftinn, kempuna og
vin minn Guðmund Halldórsson frá Bolungar-
vík. Ég ætla ekki að hafa langa tölu um þennan
73 ára gamla ungling, flestir vita hver hann er
og fyrir hvað hann stendur. Í dag gerum við
Guðmund Halldórsson að heiðursfélaga
Landssambands smábátaeigenda.“
Guðmundur er fyrrverandi formaður Eld-
ingar, félags smábátamanna á norðanverðum
Vestfjörðum.
– eirikur@bb.is
Guðmundur
gerður að
heiðursfélaga
Íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar telur
að endurskoða þurfi starf leikhópsins Morrans, enda
hafi störf og starfstími breyst verulega frá því starf-
semi hófst. Segir meðal annars í tillögu nefndarinnar
að kostnaður við starfsemina hafi aukist talsvert og
brýnt sé að fá fleiri að rekstrinum. Nefndin leggur
til að skipaður verði starfshópur til þess að ræða
nýtt hlutverk Morrans. Í nefndinni verði fulltrúi frá
vinnuskólanum, íþrótta- og tómstundanefnd, at-
vinnumálanefnd, hafnarstjórn, menningarmálanefnd
og frá safninu í Neðstakaupstað.
Jafnframt verði óskað eftir aðkomu fulltrúa Vest-
urferða að starfinu, enda Vesturferðir stór hags-
munaaðili í umræddu máli. Hópurinn ljúki starfi
sínu fyrir miðjan nóvember í ár. Eins og sagt hefur
verið frá skrifuðu aðstandendur Vesturferða bæjar-
yfirvöldum bréf á dögunum þar sem farið var fram
á að starf hópsins yrði eflt, og að fyrirkomulag og
uppbygging starfsins sé úr sér gengið.
Sagði einnig að kröfur verði æ háværari um að
Ísafjarðarbær geri eilítið stálpaðri unglingum, 16
ára og eldri, kleift að vinna að list sinni á launum. Þá
voru viðraðar hugmyndir um að safnið í Neðstakaup-
stað, sem fær umtalsverðar tekjur af móttöku
skemmtiferðaskipa greiði fyrir þjónustu Morrans
og gefi þannig Vinnuskólanum sértekjur.
Segja brýnt að fleiri aðilar
komi að rekstri Morrans
Krakkarnir í Morranum skemmtu gestum Ísafjarðar í sumar, líkt og fyrri sumur.
Ný starfsmannastefna í Bolungarvík
Ný starfsmannastefna fyrir Bolungarvík hefur verið samþykkt. „Markmiðið með henni er að Bol-
ungarvíkurkaupstaður hafi alltaf á að skipa hæfum og áhugasömum starfsmönnum sem geta tryggt
nauðsynlegt frumkvæði í störfum og veitt góða þjónustu og brugðist við síbreytilegum þörfum
sveitarfélagsins. Starfsmannastefnan á að tryggja starfsmönnum ákveðin starfsskilyrði og möguleika á
að vaxa og dafna í starfi“, segir á vef Bolungarvíkur. Á móti gerir sveitarfélagið kröfur til starfs-
manna að þeir virði samstarfsmenn sína, séu viðbúnir þróun og breytingum og taki þátt í þeim,
viðhaldi þekkingu sinni og auki við hana, sinni starfi sínu af trúmennsku og metnaði og sýni ábyrgð.
44.PM5 5.4.2017, 13:032