Bæjarins besta - 02.11.2006, Page 14
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 200614
Batman frá Holti sést á ný á Kanarí
Sandlóukarl frá Holti í Önundarfirði sást á Lanzarote á Kanaríeyjum 11. október sl.,
en sami fugl sást á eyjunum í desember á síðasta ári. Um er að ræða karlfugl sem var á
sínum tíma nefndur Batman. Hann var merktur á Holtsodda sumarið 2005 og sást
aftur í sumar á sama stað. Hann reyndi nokkrum sinnum að koma upp ungum í sumar
en það misfórst alltaf. Síðast sást hann í lok júlí í Dýrafirði og svo núna á Kanarí. Það
var breskur fuglaskoðari að nafni Gareth sem sá fuglinn. Gareth hefur tekið þátt í að
athuga dreifingu á litmerktum íslenskum jaðrökum í Portúgal.
Ruslatunna fyrir unglinga á lóðaríi
Ruslatunnan er einföld og hentug.
Ný gerð ruslatunnu var
tekin í notkun við Ísafjarðar-
höfn í síðustu viku, en hún er
fyrsta sinnar tegundar hér á
landi. „Fólk getur keyrt upp
að tunnunni, rúllað niður
gluggann og fleygt rusli án
þess að þurfa stíga út úr bíln-
um“, segir Guðmundur M.
Kristjánsson, hafnarstjóri.
„Þetta er aðallega ætlað fyrir
unglinga sem hanga þarna
tímunum saman á lóðaríi og
er tilvalin fyrir pappírsrusl og
gosflöskur sem aðallega er
verið að kasta á þessu svæði.“
Hönnuður ruslafötunnar er
Magni Guðmundsson hjá
Fjarðarneti hf. á Ísafirði.
Þrátt fyrir að til staðar séu
tvær ruslatunnur hefur rusl á
þessu svæði verið mikið
vandamál að sögn Hjalta
Þórarinssonar hafnarvarðar
sem hefur að mestu leiti séð
um þrif á höfninni. „Ég hef
séð unglinga koma og henda
rusli út um gluggann beint á
götuna, sem má alls ekki. Það
er alltaf mikið um rusl á göt-
unni hér.“
Standa vonir til að nýja
ruslafatan muni bæta úr þess-
um vanda fyrir utan að auka
þægindi vegfarenda sem geta
nú hreinsað rusl úr bifreiðum
sínum án þess að stíga út.
„Þetta er þó ekki ætlað fyrir
ösku og sígarettustubba úr
öskubökkum og er fólk vin-
samlegast beðið að losa þá í
ruslatunnurnar sem hengdar
eru upp á staur á svæðinu“,
segir Guðmundur.
Eins og sjá má á meðfylgj-
andi myndum er ruslatunnan
einföld í hönnun en afar hent-
ug og e.t.v. verða fleiri slíkar
settar upp ef sú fyrsta reynist
vel. – thelma@bb.is
Hjalti Þórarinsson við nýju ruslafötuna.
Gunnar Hólm sestur við trommusettið.
Kristín Kolbeinsdóttir (Gína), eiginkona Gunnars, tekur lagið fyrir bóndann ásamt skyldfólki sínu.
Gunnar Hólm áttræður
Gunnar Hólm Sumarliðason, málari
og tónlistarmaður með meiru varð
áttræður 30. október. Af því tilefni bauð
hann ættingjum og vinum til veislu í
Guðmundarbúð og mættu á milli 70 og
80 manns til veislunnar. „Þetta var allt
alveg afskaplega vel heppnað,“ segir
Gunnar. „Það kom til að mynda eitt
barnabarn mitt frá Danmörku mér að
óvörum, sem var mjög gleðilegt.“Mikið
var um tónlist og söng í veislunni en
bæði barnabörn og barnabarnabörnin
sungu og spiluðu sem gladdi Gunnar
mjög. Ekki nóg með það heldur steig
afmælisbarnið sjálft á stokk. „Ég meira
að segja náði því að taka nokkur lög
með Óla Kitt, Villa og Magnúsi Reyni,“
sagði Gunnar alsæll með vel heppnaða
afmælisveislu. „Ég vil endilega nota
tækifærið og þakka kærlega fyrir mig.“
Gunnar Hólm ásamt spilafélögum sínum til margra ára, Ólafi
Kristjánssyni, Magnúsi Reyni Guðmundssyni og Vilberg Vilbergssyni.
44.PM5 5.4.2017, 13:0314