Bæjarins besta - 02.11.2006, Síða 15
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 15
Rekstraraðili
Eyrarbót ehf., rekstraraðili Esso skálans
á Flateyri auglýsir eftir einstaklingi til að sjá
um rekstur fyrirtækisins. Viðkomandi þarf
að geta hafið störf í síðasta lagi 1. desem-
ber.
Allar nánari upplýsingar veitir Steinþór í
síma 896 0538.
Eyrarbót ehf., Flateyri.
Samgönguráðuneytið hefur
óskað eftir umsögnum vegna
nýrra draga að frumvarpi til
vegalaga, en meðal þess sem
lagt er til þar er að veghald
safnvega og hluta tengivega
verði flutt til sveitarfélaga. Að
því er fram kemur í tilkynn-
ingu felst megin breytingin í
því að lagður er til nýr veg-
flokkur, sveitarfélagsvegir, en
innan þess flokks eru vegir
sem ekki teljast þjóðvegir en
eru í umsjón sveitarfélaga, og
teljast til þeirra götur innan
þéttbýlis og héraðsvegir sem
er nýmæli.
Héraðsvegir eru vegir sem
í núgildandi lögum kallast
safnvegir eða í daglegu tali
afleggjarar heim að einstökum
bæjum ásamt hluta tengivega
en tengivegir eru t.d. hinir
dæmigerðu sveitavegir sem
tengja viðkomandi sveitir við
meginvegakerfið. Lagt til að
veghald þeirra vega verði
alfarið hjá sveitarfélögum og
gert er ráð fyrir að áfram verði
fjárframlag til þeirra ákvarðað
í vegáætlun með svipuðu sniði
og verið hefur en þó þannig
að lágmarksframlag til þeirra
verði tryggt sem 5% af mörk-
uðu tekjum vegamála.
Samkvæmt drögunum er
sveitarfélögum jafnframt tryggð
heimild til að leggja á sérstakt
vegtengigjald, nokkurs konar
gatnagerðargjald, til lagningar
héraðsvega fyrst og fremst
heim að nýjum íbúðum eða
býlum sem eru án tengingar í
dag fjarri meginvegakerfinu.
Í tilkynningu segir þá m.a.:
„Lagt er til að flokkun vega
endurspegli betur en nú þær
áherslur sem markaðar hafa
verið í samræmi við lög um
samgönguáætlun og endur-
spegla breyttar þarfir samfé-
lagsins.“ – eirikur@bb.is
Lagt til að veghald safnvega
verði flutt til sveitarfélaga
Vilja gera tvíhliðasamn-
ing við Kómedíuleikhúsið
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar,
Halldór Halldórsson, hefur
lagt til að gerður verði tvíhliða
samningur við Kómedíuleik-
húsið. Bæjarstjóra var nýlega
falið að taka saman yfirlit yfir
greiðslur Ísafjarðarbæjar til
Kómedíuleikhússins á árinu
2005 og það sem af er árinu
2006. Í yfirlitinu kemur fram
að greiðslur 2005 námu 592
þúsund krónum, og það sem
af er árinu í ár eru þær tæplega
732 þúsund krónur.
Þessar upphæðir hafa fyrst
og fremst verið veittar fyrir
vinnu Kómedíuleikhússins
fyrir Ísafjarðarbæ við hátíðar-
höld og sýningar í leik- og
grunnskólum. Í bréfi bæjar-
stjóra, sem lagt var fyrir bæj-
arráð í síðustu viku, kom fram
að hægt væri að byggja tví-
hliða samning á þeim greiðsl-
um sem inntar eru af hendi
vegna verkefna sem unnin eru
í dag að viðbættum styrk. „Það
skiptir miklu máli fyrir starf
Kómedíuleikhússins að vera
með samning til ákveðins tíma
sem tryggir ákveðna fjárhæð
til rekstrarins þann tíma.“
Tillaga bæjarstjóra er þrí-
skipt: 1. Að tvíhliðasamningur
verði gerður til 3. ára. 2. Að í
samningnum verði skilgreind
fjárhæð að upphæð 1 milljón
krónur vegna verkefna sem
unnin eru af Kómedíuleikhús-
inu við hátíðahöld og fram-
komu í leik- og grunnskólum.
3. Til viðbótar verði veittur
400 þúsund króna styrkur, og
menningarmálanefnd hafi
heimild til að fela Kómedíu-
leikhúsinu ákveðin verkefni
til að vinna fyrir þeim styrk.
Þá er lagt til að greiðslur
berist Kómedíuleikhúsinu í
samræmi við framlagða vinnu,
og að menningarmálanefnd
Ísafjarðarbæjar hafi umsjón
og eftirlit með samningnum
verði hann samþykktur af báð-
um aðilum. Kómedíuleik-
húsið er annað af tveimur at-
vinnuleikhúsum á landsbyggð-
inni, og það eina á Vestfjörð-
um.
– eirikur@bb.is
Húsgagnaloftið lokar eftir áramót
Húsgagnaloftinu í Ljóninu á Ísafirði verður lokað 1. febrúar og þar með hættir eina húsgagna-
verslunin á Vestfjörðum starfsemi. „Þannig er mál með vexti að fjárfestar keyptu TM húsgögn,
eiganda Húsgagnaloftsins, og gerðu úr því stórverslunina Heima. Þessi fjárfestar hafa nú ákveðið
loka Húsgagnaloftinu og horfa meira til framtíðar í Reykjavík“, segir Grétar Sigurðsson, verslunar-
stjóri. Vonir standa þó til að þetta verði ekki endalok verslunarinnar. „Ég er að leita eftir aðilum til
að opna aðra húsgagnaverslun og reyna að sporna gegn því að við missum einu húsgagnaverslun
Vestfirðinga. Ég hef verið að þreifa fyrir mér og fengið frekar jákvæð viðbrögð “, segir Grétar.
Skíðafélag Ísafjarðar og
Glitnir hafa skrifað undir
styrktarsamning til
tveggja ára. Glitnir banki
verður þar með aðalstyrkt-
araðili SFÍ og félagið flyt-
ur öll sín viðskipti til
Glitnis, þar með talið inn-
heimtu æfingagjalda.
Glitnir styrkir metnaðar-
fullt barna og unglinga-
starf í Ísafjarðarbæ og vill
styðja Skíðafélagið í því
markmiði sínu að rífa
skíðaíþróttina upp úr
þeirri lægð sem hún hefur
verið í eftir afleiðingar
snjóflóðanna 1994 og 1999.
Samningurinn gerir SFÍ
kleift að ráða tvo þjálfara í
fullt starf, Kristján Flosa-
son, íþróttafræðing, alpa-
greinaþjálfara og Åshild
Höva Sporsheim, göngu-
skíðaþjálfara. Undir samn-
inginn skrifuðu Hallgrím-
ur M. Sigurjónsson og
Gerður Eðvarðsdóttir,
fyrir hönd Glitnis og Mar-
grét Halldórsdóttir og
Friðgerður Ómarsdóttir,
fyrir hönd Skíðafélagsins.
Glitnir styrkir Skíðafélagið
Undir samninginn skrifuðu Hallgrímur M. Sigurjónsson og Gerður Eðvarðsdóttir, fyrir hönd
Glitnis og Margrét Halldórsdóttir og Friðgerður Ómarsdóttir, fyrir hönd Skíðafélagsins.
44.PM5 5.4.2017, 13:0315