Bæjarins besta - 02.11.2006, Side 16
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 200616
Storkurinn í heimsókn
Það er ekki á hverjum degi sem við sjáum storkinn færa barn til nýrra foreldra, en sú var nú raunin í síðustu viku.
Storkurinn settist á svalirnar að Seljalandsvegi 2 á Ísafirði, til þess að færa þeim Jóhönnu Fylkisdóttur og Samúel Orra
Stefánssyni son. BB sló á þráðinn til nýbakaðrar móður til að forvitnast um hvaðan storkurinn kom. „Foreldrar mínir
voru á ferðalagi úti í Hollandi og sáu svona stork, pabbi var svo hrifinn að hann reddaði sér skapalóninu.“ Eftir að
skapalónið var komið á staðinn smíðaði vinnufélagi Samúels hjá Ágústi og Flosa fuglinn og málaði. Jóhanna hafði ekki
hugmynd um storkinn áður en hún hélt á fæðingardeildina, Faðir hennar, Fylkir Ágústsson, kom bara með mynd af
skreytingunni á svölunum með sér þegar hann kom að skoða afastrák og tilkynnti að storkurinn væri kominn með barnið.
Upptökurnar verða geymdar í Safnahúsinu á Eyrartúni.
Ísafjarðarbæ barst á dögun-
um hljóðritun frá hátíðarfundi
bæjarstjórnar Ísafjarðarkaup-
staðar 26. janúar, 1966, á 100
ára afmæli Ísafjarðarkaup-
staðar, frá Baldri Ólafssyni á
Akranesi. Einnig er hljóðritun
af hátíðarsamkomu í Alþýðu-
húsinu á Ísafirði. Hátíðarfund-
ur bæjarstjórnar var haldinn á
sviði Góðtemplarahússins í
Sólgötu, og kemur fram í bréfi
Baldurs til bæjarins að til upp-
tökunnar hafi verið notaður
einn hljóðnemi sem staðsettur
var á miðju sviðinu.
„Að kvöldi afmælisdagsins
var haldin hátíðarsamkoma í
Alþýðuhúsinu. Þegar sam-
koman var byrjuð var hringt í
mig og ég beðinn að hljóðrita
það sem þar færi fram. Þess
vegna vantar það sem fram
fór fyrst á samkomunni“, segir
í bréfi Baldurs, og kemur fram
að upptakan hefjist á ræðu hr.
Ásgeirs Ásgeirssonar, þáver-
andi forseta Íslands, og nái til
loka samkomunnar.
Upptakan var hljóðrituð á
stórar spólur á Tandberg seg-
ulbandstæki, en nú í haust
færði Baldur þær á tvenns kon-
ar stafrænt form og brenndi á
geisladiska fyrir Ísafjarðarbæ
í tveimur eintökum. Bæjarráð
færði Baldri bestu þakkir fyrir
að hafa varðveitt upptökurnar
og fært þær bænum. Upptök-
urnar verða geymdar í Safna-
húsinu og verða þær þar að-
gengilegar almenningi.
Ísafjarðarbær fær upptökur frá 100
ára afmæli Ísafjarðarkaupstaðar að gjöf
Sigurjón ráðinn
fjármálastjóri OV
Sigurjón Kr. Sigurjóns-
son, viðskiptafræðingur
hefur verið ráðinn fjár-
mála- og skrifstofustjóri
hjá Orkubúi Vestfjarða.
Sigurjón er með próf í
viðskiptafræði frá Há-
skólanum á Akureyri en
lokaverkefni hans var ein-
mitt um gerð spálíkans til
að áætla orkunotkun og
raforkukaup fyrir Orkubú
Vestfjarða, auk þess sem
það fjallaði um nýju raf-
orkulögin. Sigurjón út-
skrifaðist síðastliðið vor en
hefur starfað hjá Löggilt-
um endurskoðendum síðan
árið 1993. „Hann er því
með mikla reynslu, þó ekki
sé langt liðið frá útskrift“,
segir Kristján Haraldsson,
orkubússtjóri. „Þá þekkir
hann þennan bransa vel,
því hann er rafvirkja-
meistari að auki“. Til
stendur að Sigurjón hefji
störf í byrjun desember.
Eins og sagt hefur verið
frá sóttu alls ellefu manns
um stöðuna, og aðspurður
segir Kristján að ekki
verði gefið upp hverjir
hinir tíu eru. „Sumir um-
sækjendur óskuðu sérstak-
lega eftir nafnleynd, og við
féllumst á það“, segir
Kristján Haraldsson.
– eirikur@bb.is
Sigurjón Kr. Sigurjónsson.
Uppsveifla á fasteigna-
markaðnum á Suðureyri
Fasteignamarkaðurinn á
Suðureyri hefur tekið mik-
inn kipp og er eftirspurn
orðin meiri en framboð
bæði hvað varðar kaup á
húsnæði eða leigu. Um
12% íbúða á Suðureyri
hafa skipt um eigendur á
undanförnum mánuðum.
Að því er fram kemur á
vef Suðureyrar er ekki
vitað um eina íbúð sem er
hægt að fá til leigu og ekki
er nema ein fasteign á
söluskrá hjá Fasteignasölu
Vestfjarða.
Samfara þessari upp-
sveiflu standa nú yfir tölu-
verðar framkvæmdir við
endurbætur á eldra hús-
næði í þorpinu. Einstakl-
ingar hafa verið duglegir
að endurbæta hús sín og
nú standa einnig yfir
endurbætur á 13 íbúðum í
eigu Hvíldarkletts ehf. Þar
að auki eru ungir bændur
að byggja nýtt einbýlishús
í Botni en ekki hefur verið
byggt nýtt einbýlishús frá
grunni í firðinum síðan
árið 1981.
Magnús Stefánsson, heil-
brigðisráðherra, og Laufey
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra, hafa skrifað undir samn-
ing varðandi aukna þjónustu
við geðfatlaða í Ísafjarðarbæ.
„Með þessu tekst okkur að
leysa úr þjónustu við sex
manns sem búa við mikla
geðfötlun varðandi búsetu og
stuðning við búsetu og koma
á stofn dagþjónustu og starfs-
endurhæfingu fyrir fólk með
geðraskanir. Þetta er heilmikil
bylting og kemur vonandi í
veg fyrir að fólk sé sent til
höfuðborgarinnar af því að
þjónustan er ekki til staðar“,
segir Laufey. Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri Ísafjarð-
arbæjar vottaði samninginn en
sveitarfélagið mun útvega ein-
staklingunum húsnæði til
leigu.
„Einnig er verið að efla
samstarf félagsþjónustunnar
og heilbrigðisþjónustu í Ísa-
fjarðarbæ sem er grundvallar-
forsenda fyrir því að þetta
gangi“ segir Laufey. Samn-
ingurinn er liður í átaki félags-
málaráðuneytisins í málefnum
fólks með geðfötlun. Í kjölfar
könnunar sem verkefnahópur
á Vestfjörðum, sem saman-
stóð af fulltrúum frá Svæðis-
skrifstofu Vestfjarða, Skóla-
og fjölskylduskrifsstofu Ísa-
fjarðarbæjar og Heilbrigðis-
stofnunar Ísafjarðarbæjar,
gerði á stöðu fólks á svæðinu
var lagt til að komið yrði á fót
búsetuþjónustu fyrir sex ein-
staklinga og dagþjónustu og/
eða starfsendurhæfingu fyrir
fólk með geðfötlun. Tillög-
urnar voru sendar til félags-
málaráðuneytis.
Þann 9. október, daginn
fyrir hinn alþjóðlega geðheil-
brigðisdag, var tilkynnt að
fjárveiting fyrir uppbygging-
unni yrði veitt, en eins og
kunnugt er hafði ríkisstjórnin
tekið ákvörðun um að verja
einum milljarði af söluand-
virði Símans og hálfum millj-
arði betur úr Framkvæmda-
sjóði fatlaðra til stofnkostn-
aðar vegna búsetu- og stoð-
þjónustu við fólk með geð-
fötlun á árunum 2006-2010.
– thelma@bb.is
Bylting í þjónustu við
geðfatlaða á Vestfjörðum
Magnús Stefánsson, heilbrigðisráðherra, og Laufey Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra, skrifuðu undir samning varðandi aukna þjónustu við geðfatlaða í Ísafjarðarbæ
og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar vottaði hann.
44.PM5 5.4.2017, 13:0316