Bæjarins besta - 02.11.2006, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 17
Náttfataball á Eyrarskjóli
Leikskólabörnin á Eyrarskjóli á Ísafirði gerðu sér dagamun á föstudag
með því að halda náttfataball. Börnin mættu í sínum fínustu náttfötum
og sungu og trölluðu auk þess sem þau gæddu sér á poppkorni. „Við
höldum alltaf náttfatadag á þeim föstudegi sem fellur næst fyrsta
vetrardegi, en við vorum á ráðstefnu fyrir viku og ákváðum því að fresta
deginum um viku. Þetta er allt mikið stuð og mjög gaman“, segir Jóna
Lind Karlsdóttir, leikskólastjóri.
Enn hefur ekki verið skrifað
undir samninga við Mýflug
varðandi sjúkraflug á Ísafirði,
en samkvæmt upplýsingum
frá heilbrigðisráðuneytinu er
unnið að undirbúningi undir-
skriftarinnar. Um miðjan sept-
ember tilkynnti heilbrigðis-
ráðherra að sjúkraflugvél myndi
hafa heimahöfn á Ísafirði í
vetur en tvísýnt var um það
um tíma.
Sjúkraflugi til Vestfjarða
átti samkvæmt nýju fyrir-
komulagi að vera sinnt frá
Akureyri og hefur það vakið
reiði margra Vestfirðinga sem
telja að með því sé verið að
minnka öryggi íbúa fjórð-
ungsins. Að lokum fékkst það
í gegn að vélin yrði staðsett á
Ísafirði en margir flugmenn
höfðu lýst yfir efasemdum
með þá tilhögun að vélin yrði
staðsett á Akureyri, bæði flug-
menn Mýflugs sem sér um
sjúkraflugið og aðrir reyndir
kappar í sjúkraflugi á Vest-
fjörðum.
– thelma@bb.is
Ekki búið að skrifa undir
samninga um sjúkraflug
Flugvöllurinn á Ísafirði.
Fjölmennt fyrirtækjamót í boccia
Lið Skattstofu Vestfjarðaumdæmis og Vátryggingafélags Íslands háðu harða keppni.
Þrjátíu og sjö lið kepptu á
fimmta fyrirtækjamóti íþrótta-
félagsins Ívars í boccia sem
haldið var í íþróttahúsinu á
Torfnesi á sunnudag. „Þetta
var næst besta þátttakan til
þessa en 40 lið kepptu í fyrra.
Við erum mjög ánægð með
mótið og þetta er ein stærsta
fjáröflun félagsins. Bæjarbúar
virðast hafa gaman af þessu
og eru um leið að styrkja gott
málefni“, segir Gylfi Þór
Gíslason, einn skipuleggjanda
mótsins. Keppt var í 7 riðlum
og sigurvegarar í hverjum riðli
kepptu til undanúrslita. Úrslit
í sumum riðlunum réðust á
stigatölu leikjanna.
Mótinu lauk með úrslita-
keppni á milli HÍ- rannsókn á
móti HÍ-hjúkkum sem bæði
eru lið skipuð starfsfólki Heil-
brigðisstofnunar Ísafjarðar-
bæjar. Það var síðan HÍ-rann-
sókn sem bar sigur úr bítum í
keppninni. Ýmsar aðrar viður-
kenningar voru veittar á mót-
inu; liðið HÍ-öldrun vann
keppnina um skemmtilegustu
búningana og HÍ-rannsókn
fékk viðurkenningu fyrir
bestu liðsheildina. Lið Skatt-
stofu Vestfjarðaumdæmis
fékk viðurkenningu fyrir besta
stuðningsliðið. Héðinn Ólafs-
son fékk viðurkenningu fyrir
bestu tilþrifin á mótinu.
„Stjórn íþróttafélagsins
Lið HÍ-rannsókn sem skipað var þeim Önnu Kristínu
Ásgeirsdóttur og Sigrúnu Sigvaldadóttur sigraði á
mótinu. Á milli þeirra stendur Sigríður Jóhannsdóttir.
Ívars vill þakka öllum þeim
fyrirtækjum og stofnunum
sem styrktu félagið á einn og
annan hátt með mótinu fyrir
stuðninginn. Sérstakar þakkir
til Glitnis sem studdi dóm-
gæslu mótsins“, segir í til-
kynningu. – thelma@bb.is
Mikil spenna ríkti á meðal áhorfenda.
44.PM5 5.4.2017, 13:0317