Bæjarins besta - 02.11.2006, Page 20
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn
Vestfirðingar eru 7.405
samkvæmt áætlun Hagstofu
Íslands um mannfjölda 1.
október, og hefur því fækkað
nokkuð frá 1. júlí en sam-
kvæmt tölum um miðársmann-
fjölda voru Vestfirðingar þá
7.518. Fækkunin nemur 1,5%.
Ef litið er til einstakra sveitar-
félaga fækkar Bolvíkingum
um 3,9% á tímabilinu, úr 907
í 872. Íbúum Ísafjarðarbæjar
fækkar um 0,9%, úr 4.103 í
4.066. Íbúum Reykhólahrepps
fækkaði um 6, úr 245 í 239,
sem jafngildir 2,4% fækkun.
Í Tálknafjarðarhreppi fækk-
ar íbúum um sex manns, úr
245 í 239, eða um 2,3%. Íbú-
um Vesturbyggðar fækkar um
20 manns, úr 956 í 936, og
jafngildir það 2,1% fækkun.
Íbúum í Súðavíkurhreppi
fækkar um sjö manns, úr 242
í 235, og gerir það 2,9% fækk-
un. Íbúar Árneshrepps voru
og eru 50 talsins, en íbúum
Kaldrananeshrepps hefur fækk-
að um 8 manns, úr 110 í 102
sem jafngildir 7,3% fækkun.
Íbúum Bæjarhrepps hefur
fækkað um 6 manns, úr 107 í
101, og jafngildir það 5,6%
fækkun. Samkvæmt miðárs-
mannfjölda voru íbúar Brodda-
neshrepps 52 og íbúar Hólma-
víkurhrepps 447, en þessi tvö
sveitarfélög voru sameinuð í
Strandabyggð, sem nú telur
507 manns. Hefur íbúum því
fjölgað úr 499, um átta manns,
og jafngildir það 1,6% fjölg-
un. Rétt er að árétta að tölur
fyrir 1. október byggjast á
áætlun. – eirikur@bb.is Íbúum Bolungarvík fækkar mest af stóru sveitarfélögunum, um 3,9%.
Vestfirðingum fækkaði um 1,5% á þremur mánuðum
Aðfaranótt laugardags
hafði lögreglan á Ísafirði af-
skipti af ungmenni sem
hafði ekki leyfi til að vera
inni á vínveitingahúsi á Ísa-
firði. Ungmenningu var vís-
að út af staðnum og ábyrgð-
armönnum staðarins kynnt
afskiptin.
Síðdegis á laugardag fram-
kvæmdi lögreglan húsleit á
heimili einu í Ísafjarðarbæ
þar sem fannst lítilræði af
kannabisefnum sem og tvær
ætlaðar kannabisplöntur
sem virtust vera í ræktun
hjá húsráðendum. Einn
maður var handtekinn vegna
rannsóknar málsins og hefur
honum verið sleppt.
Fíkniefni fundust
við húsleit lögreglu
Þrjár skólastofur í Grunn-
skólanum á Ísafirði hafa
verið án neyðarútgangs frá
því skólahald hófst í haust,
vegna framkvæmda.
„Brunaútgangur lá frá
tölvustofunni út á þak á
tengibygginguna en þegar
hún var rifin fór útgangurinn
um leið. Við höfum verið
að ræða ýmsar leiðir til að
bæta úr þessu, en það er
bara um tvennt að ræða: Að
finna stiga til að setja upp til
bráðabirgða eða að bíða eftir
að platan á nýju millibygg-
ingunni verður steypt og þá
mun hún nýtast sem út-
gönguleið. Að mér skilst á
að steypa hana um miðjan
nóvember“, segir Skarphéð-
inn Jónsson, skólastjóri.
Um er að ræða heima-
stofur 9. og 10. bekkjar og
tölvustofu sem allir árgang-
ar nýta. Málið var rætt á
fundi umhverfisnefndar og
samkvæmt upplýsingum
blaðsins var slökkviliðs-
stjóra falið að leita úrlausna.
Þá ganga framkvæmdir við
skólann vel og segir Skarp-
héðinn að ónæðið af þeim
sé mun minna en menn áttu
von á. „Auðvitað er ónæði
en það truflar okkur furðu-
lega lítið að það sé verið að
hamra og negla samhliða
okkur. Menn sætta sig við
þetta og lifa í sátt og sam-
lyndi.“
– thelma@bb.is
Þrjár skólastofur
án neyðarútgangs
Grunnskólinn á Ísafirði
Stórgrýtið skemmdi vegrið við veginn.
Stórgrýti féll á Óshlíðarveg
Mikið grjóthrun varð á Óshlíð, við
Sporhamar innan Óshólavita, síðdeg-
is á föstudag og fram eftir kvöldi. Að
sögn Geirs Sigurðssonar, rekstrar-
stjóra Vegagerðarinnar á Ísafirði
kom stórt grjót niður og fór yfir veg-
inn og skemmdi m.a. vegrið. Þá lokað-
ist önnur akgreinin, vegurinn allur
lokaðist aldrei alveg. Mjög bratt er
fyrir ofan veginn þar sem hrunið varð
og er því ekki hægt að koma þar fyrir
netgirðingum. Vegagerðin hafði var-
að ökumenn við að vera á ferð um
Óshlíð að ástæðulausu enda höfðu
miklar rigningar verið hér vestra. Á
föstudag mældist úrkoman 24 mm í
Bolungarvík.
Vegurinn um Óshlíð er stórhættu-
legur við aðstæður sem þessar og bíða
því Bolvíkingar og nágrannar spennt-
ir eftir því að hafist verði handa við
gerð jarðganga undir Óshlíð. Ekki
hefði þurft að spyrja að leikslokum ef
bifreið hefði orðið fyrir stórgrýtinu.
– thelma@bb.is Eins og sjá má er grjótið engin smásmíði.
44.PM5 5.4.2017, 13:0320