Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Side 4

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Side 4
InterFYkte Heimssamtök hinsegin hálíða þinga í Reykjavík 2004 Hinsegin dagar í Reykjavík eru aðilar að heimssamtökunum InterPride sem eru samtök skipuleggjenda hinsegin hátíða eða Gay Pride. Yfir 100 hátíðir í 24 löndum og sex heimsálfum eiga aðild að InterPride. Aðaltilgangur sam- takanna er að kynna hugmyndina um Gay Pride, stolt samkynhneigðra, tvíkyn- hneigðra og kynskiptinga á alþjóða- vettvangi, stuðla að samskiptum á milli skipuleggjenda og hvetja til þess að Pride-hátíðir séu haldnar. Yfir 20 milljónir manna sækja árlega hátlðir skipuleggj- enda sem eiga aðild að InterPride. InterPride heldur heimsráðstefnu í október á hverju ári. Ráðstefnurnar eru haldnar á ýmsum stöðum. Á heims- þinginu í San Francisco, í október 2002, sóttu Hinsegin dagar um að fá að halda ráðstefnuna árið 2004. Berlín og St. Louis sóttust einnig eftir því að halda hana, en ( San Francisco voru greidd atkvæði um tilboð Reykjavíkur og St. Louis. Reykjavík varð fyrir valinu með miklum meirihluta atkvæða. Þar af leiðandi munu um 250 fulltrúar koma til íslands I október á næsta ári. Á InterPride-ráðstefnum eru haldnar vinnustofur um ólíkustu málefni sem tengjast því að halda hinsegin hátíðir, allt frá því hvernig á að skipuleggja gleðigöngur (parade), hvernig er best að haga samskiptum við stuðnings- aðila, málefni lesbía, homma og kyn- skiptinga og fleira. InterPride er stjórnað af níu manna framkvæmdastjórn. Hana skipa tveir forsetar, karl og kona, fjórir varaforsetar, ritari og gjaldkeri. Þegar einn af vara- forsetum samtakanna sagði af sér í mars af heilsufarsástæðum, skipaði stjórnin Heimi Má Pétursson, framkvæmdastjóra Hinsegin daga, í embætti varaforseta og hvatti hann einnig til að bjóða sig formlega fram til embættisins á næsta InterPride þingi í Montreal í Kanada í október næstkom- andi. InterPride World Conference in Reykjavfk 2004 The Reykjavík Gay Pride has been a member of InterPride since 1999. InterPride is a non-profit organization, incorporated in the United States, whose members include over 100 pride organizations, representing 24 countries from six continents. The pur- pose of InterPride is to promote les- bian, gay, bisexual and transgender pride on an international level, increase networking and communica- tion among pride groups, encourage diverse communities to hold pride events and act as a resource. GLBT pride events annually attract, world- wide, over 20 million people. Heimir Már Pétursson, the executive director of Reykjavik Pride, was appointed Inter- Pride Vice-President in March 2003. InterPride holds an annual confer- ence in October each year. At the world conference in San Francisco, in October 2002, the delegates voted for Reykjavik Pride hosting its annual con- ference in October 2004. About 250 delegates will therefore be coming to Reykjavik next year for workshops on pride issues and planning future expansion of the Pride agenda in the world. In InterPride the new can learn from the older ones how to organize a Pride event. The members represent small prides and big prides and every- thing there in between. To learn more about InterPride, see www.interpride.org 4

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.