Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Qupperneq 21
GOMUL GULLKORN
Óli Helgi hóf að iðka dragg í Laugarlækjaskóla árið 1994, þar sem hann
fór hamförum í gervi Lollu, og kom svo fjórum árum síðar aftur fram á
sjónarsviðið en hét þá Mary. Eftir það týndist kvenmaðurinn í Óla Helga
á meðan hann sinnti leiklist í sýningum Fjölbrautaskólans ( Breiðholti, Cry
Baby (2001) og ABBA-söngleiknum Thank you for the Music (2002).
Haustið 2002 fann pilturinn sitt sanna stolt í keppninni um titilinn
Draggdrottning íslands 2002 sem Lady Luber-Kate og hafnaði í 6. sæti. í
Thank you for the Music hlaut Óli Helgi nafnbótina Óli the Star sem
breyttist í Starinu í febrúar 2003 á gay-balli á litla sviðinu á Broadway.
„Vertu þú sjálf(ur)," segir Starina sem vissulega á til ýmsar hliðar.
Hingað til hefur hún þó bara sýnt sínar bestu hliðar og lætur því Ijós sitt
óspart skína.
"Be yourself!" is the motto of Starina, one of our outstanding drag
queens, who performs at the open air concert in Lækjargata 9 August.
Þú þvingar ekki hefðbundinni
hamingju upp á fólk
„Öll viljum við að börnin okkar verði ham-
ingjusamir einstaklingar, og við vitum að sá
sem víkur á afgerandi hátt frá því sem er
almennt viðurkennt og viðtekið getur átt
erfitt uppdráttar ( samfélaginu. Þetta er hin
klassíska saga um Ijóta andarungann. Þess
vegna fyllast foreldrar ótta gagnvart kyn-
hneigð barna sinna og óttinn verður þess
valdandi að þeir reyna að þvinga börn sín
undir viðtekið gildismat samfélagsins. En það
er ekki hægt að þvinga hefðbundinni ham-
ingju upp á fólk. Því aðeins getur einstakling-
urinn öðlast hamingju að hann fái að vera
maður sjálfur með fullum rétti og virðingu."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á Alþingi 1992
Ef Kristur kæmi aftur
„Það er sorglegt að æðsti maður kaþólsku
kirkjunnar sem er ein stærsta kirkja í heimi
skuli hafa svo fornaldarlega sýn á hlutina og
fordæma f raun og veru hluta sköpunarverks
þess Guðs sem hann segisttrúa á. Það virðist
skorta á að kirkjunnar menn velti þvf fyrir sér
hvort Kristur væri eins og þeir ef hann kæmi
aftur hingað eins og boðað er að hann muni
gera."
Heimir Már Pétursson IDV 2000
Tilvist okkar eykur fjölbreytnina
„Ég skil ekki hvernig hægt er að telja ást synd-
samlega, enda hef ég aldrei beðið Guð fyrir-
gefningar á því að vera lesbía. Ég er mann-
eskja og því margt fleira en lesbísk kona.
Ákveðinn hluti kvenna hefur þessar til-
finningar til annarra kvenna, við erum af-
sprengi þjóðfélagsins og að mínu mati eykur
tilvist okkar fjölbreytnina í því. Ég get illa svar-
að því hvað felst meira í því að vera lesbísk.
Svona eru mínar tilfinningar!"
Elisabet Þorgeirsdóttir i Mannlífi 1987
Hvaða flær eiga heima á rófunni?
„Það er mjög stór hópur af hommum og les-
bíum á Islandi sem er í felum. Það er ekkert
undarlegt. Ég veit um fólk sem hefur misst
bæði vinnu og húsnæði eingöngu af þessari
ástæðu. Sjálf hef ég misst húsnæði fyrir að
vera lesbísk. Þarna gjöldum við þess að vera
minnihlutahópur, á sama hátt og til dæmis
útlendingar, sérstaklega þeldökkir. Margir
samkynhneigðir hafa flúið land, Þeir eru
eiginlega sexúalpólitískirflóttamenn. Þetta er
skrýtið því að í rauninni er heimurinn eins og
hundur með flær; það þýðir lítið að fara að
flokka hvaða flær eigi heima á rófunni og
hvaða flær megi búa annars staðar á hund-
inum."
Guðrún Gfsladóttir ( Pressunni 1990