Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Síða 42
Árið 1978 hannaði og saumaði San Francisco-búinn Gilbert Baker fána með röndum regnbogans. Litirnir áttu að tákna
samfélag samkynhneigðra. Á tuttugu árum hefur fáninn orðið þekktari sem tákn þeirra en bleiki þríhyrningurinn sem um
langt skeið hefur verið notaður í réttindabaráttunni. Sögu bleika þríhyrningsins má rekja til Þýskalands nasismans þegar
hommar voru látnir bera merki með bleikum þríhyrningi í fangabúðum nasista. Árið 1989 vakti regnbogafáninn
þjóðarathygli í Bandaríkjunum þegar leigjandi vann mál gegn leigusala sem hafði bannað honum að flagga fánanum af
svölum íbúðar sinnar í Vestur-Hollywood. Nú er regnbogafáninn viðurkenndur af Alðjóðlegu fánanefndinni og blaktir við
hún á hátíðisdögum samkynhneigðra um allan heim.
REG BOGAF NINN
Litir hafa löngum verið mikilvægir í sögu lesbia og homma. Á Viktoríutímanum í Englandi var græni liturinn tengdur við
samkynhneigð. Fjólublár varð tákn fyrir baráttu samkynhneigðra seint á sjöunda áratugnum og vinsælt slagorð þeirra tíma
var „Purple Power". Bleikt er eins og áður var nefnt liturinn í bleika þríhyrningnum og hefur líka á ýmsum tlmum átt sam-
leið með samkynhneigðum. Gilbert Baker notaði upphaflega átta liti í fánann sinn: bleikan, rauðan, appelsínugulan, gulan,
grænan, bláan, indigo og fjólubláan. Baker sagði þessa liti tákna kynhneigð, líf, lækningu, sól, náttúru, list, jafnvægi og
anda, og að þeir vísuðu í landið handan regnbogans í Galdrakarlinum í Oz. Þegar Baker hélt af stað með fyrsta fánann
sem hann hafði saumað og litað í höndunum í fánaverksmiðju til þess að láta fjöldaframleiða hann, reyndist liturinn „hot
pink" ekki vera fáanlegur. Fyrsta útgáfa fánans var því með sjö röndum.
Þegar Harvey Milk, hommi og borgarstjóri í San Francisco, var myrtur í nóvember 1978 skyldi nýi fáninn prýða göngu
sem samtök samkynhneigðra stóðu fyrir eftir harmleikinn. Þá var indigo-liturinn fjarlægður svo að tala randanna yrði jöfn
því að þrír litir fánans skyldu fylgja annarri hlið göngunnar og þrír litir hinni. Þar með voru rendur fánans orðnar sex, jafn-
margar og þær eru í dag.
Hinn upphaflegi sjö lita regnbogafáni Gilberts Baker á aldarfjórðungsafmæli á þessu ári. Að því tilefni hefur InterPride
látið gera grtðarlangan fána og bútar úr honum ferðast nú um heiminn. Von er á nokkrum metrum af þessum afmælis-
fána til íslands á hátíðahöldum Hinsegin daga í ágúst.