Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2003, Page 44
GOMUL GULLKORN
Upplausnin veður yfir
„Ég tel að ósk samkynhneigðra sem fjallað er
um í þessum lögum og gengur mjög skammt,
að minnsta kosti að þeirra mati, sé krafa um
sérréttindi. Ef samkynhneigt fólk á að fá rétt-
indi til staðfestrar samvistar, eins konar vígslu
fram hjá kirkjunni, af hverju ættum við þá ekki
að leyfa fjölkvæni og barnagiftingar sem
tíðkast víða um heim. Upplausnin veður yfir
nútímaþjóðfélag, agaleysi, oft virðingarleysi,
og ég held að tilhliðrun í þessum efnum sem
hér um ræðir sé ekki af hinu góða."
Árni Johnsen á Alþingi 1996
Þegar lúðalubbar rengja tilfinningarnar
„Fyrir börnunum mínum er fullkomlega
eðlilegt ástand að eiga tvo pabba og hingað til
hafa ekki komið upp nein vandamál. Þau dvelja
mikið hjá okkur og vilja til að mynda halda
afmæli heima hjá okkur jafnt og hjá móður
sinni. Skólinn hefur einnig verið frábær í sam-
starfi og á hrós skilið. Það var einnig sérstaklega
gaman að sjá hversu áhugasöm börnin okkar
voru um staðfestingu sambúðar okkar og
höfðu þau sérstaklega gaman af að segja fólki
frá veislunni. Ég get því sagt að hræðsla fólks
við að börn, sem alist upp hjá samkyn-
hneigðum foreldrum, verði fyrir einhverjum
skaða eða aðkasti, er algjörlega ástæðulaus.
Fólk er alltaf hrætt við það sem ógnar þeim
veruleika sem það þekkir. Ég er orðinn þreyttur
á því að alltaf skuli vera dregnir upp einhverjir
lúðalubbar til að rengja tilfinningar mínar. Ég
get nefnilega alveg sagt ykkur sjálfur frá því
hvernig mér líður og engir ofstækismenn með
Biblíuna á lofti geta breytt því hver ég er."
Felix Bergsson i Vikunni 2000
FRÆÐSLA • MANNVERND • SÝNILEIKI
Ráðgjöf og stuðningur á vegum Samtakanna '78
Á vettvangi Samtakanna '78 býður ráðgjafi upp á einkaviðtöl. Þau eru einkum
ætluð lesbíum og hommum sem þarfnast aðstoðar til að ráða fram úr málum
sínum, hvort sem þau eru tilfinningalegs og félagslegs eðlis. Auk þess hafa
félagsráðgjafar, námsráðgjafar og sálfræðingar samband við ráðgjafann til þess
að fræðast um félagslega stöðu og tilfinningar lesbia og homma þegar slíkir
skjólstæðingar leita þeirra. Anni G. Haugen félagsráðgjafi sinnir þessu starfi á
vegum félagsins. Ýmsir leita til ráðgjafans um það bil sem þeir játa kynhneigð
stna fyrir sjálfum sér og heiminum. Hvað bíður mín þegar ég hef tekið þetta
skref? Hvernig á ég að segja mínum nánustu fréttirnar? í hvaða röð á ég að nálg-
ast þá sem ég segi þetta? Hvernig tek ég á höfnun? Get ég búið mig undir það
sem í vændum er með því að lesa mér til eða læra af öðrum? Oft leiða viðtölin
til þess að aðstandendur óska eftir að ræða við félagsráðgjafann því að þeir eru
oft og tíðum óviðbúnir tíðindunum og þurfa líka stuðning. Hægt er að panta við-
tal hjá ráðgjafanum með því að hringja á skrifstofu félagsins alla virka daga milli
kl. 14-16, sími 552 7878.
We welcome
to ourhotels
ICELANDAIR HOTELS
www.icehotel.is • Tel. 444 4000
FÖSTUDAGURINN 8. ÁGÚST STRÁKABALL
fabio White einn þekktasti plötuþeytir lundúnaborgar
FRIDAY 8 AUGUST BOYS ONLY DANCE WITH DJ FABIO WHITE FROM LONDON
Laugardagurinn 9. ÁGÚST Gay Pride ball nieð Fabio WHITE
Saturday 9 August Gay Pride Dance with DJ Fabio White
44