Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2014, Blaðsíða 44

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2014, Blaðsíða 44
43ÞORPIÐ Í VIÐEY með uppgrefti á öskuhaugum gefur svo enn annað sjónarhorn, t.d. inn í neyslu, mataræði, efnismenningu og daglegt líf. En safnið má einnig nota til að fá nýtt sjónarhorn á málefni sem eiga sér mun víðari skírskotun í Íslandssögunni s.s. iðnvæðingu og þéttbýlismyndun eða um innflutning og nýlendustefnu. Frekari rannsóknir í Þorpinu ásamt samanburði á gripum frá öðrum uppgraftarstöðum frá sama skeiði gætu hæglega varpa betra ljósi á þær miklu samfélagsbreytingar sem áttu sér stað hér á landi á síðari hluta 19. aldar og fram eftir 20. öld og endurspeglast m.a. í breyttu búsetu- og neyslumynstri. Þótt ekki sé liðinn langur tími frá því að Þorpið fór í eyði er stór hluti af þeirri efnismenningu sem myndaði Þorpið horfinn. Efnismenning Þorpsins dreifðist með fyrrum íbúum þess, var endurnýttur, skemmdist, var hent, eða glataðist með öðrum hætti. Eftir standa nokkrir valdir kjörgripir hjá brottfluttum þorpsbúum, hlutar íbúðarhúsa sem voru endurbyggðir í Reykjavík og víðar og svo rústir og önnur ummerki í eyjunni ofan jarðar og neðan. Leifar af Þorpinu hafa eyðst hratt eins og oft virðist reyndar raunin með ungar minjar. Ungum rústum virðist nefnilega oft jafnvel enn meiri hætta búin en „hefðbundnari“ og eldri rústum. Ástæðan er e.t.v. sú að þær eru einfaldlega of nýlegar eða ungar til að það sé almennt viðurkennt að varðveisla þeirra sé mikilvæg og gripið sé til aðgerða til að verja þær. Innan fornleifafræði eru rannsóknir á nýliðinni tíð stundum litnar hornauga og jafnvel álitnar sérviskuleg hliðargrein. Lagaumhverfi greinarinnar rammar inn þessa hugsun þar sem aðeins þær minjar sem náð hafa 100 ára aldri teljast til fornleifa. Þorpið í Viðey telst því ekki til lögmætra fornleifa ennþá, nema að litlu leyti. En hvað veldur því að fornleifarannsóknir á nýliðinni tíð þykja eins léttvægar og raun ber vitni? Það er vert að benda á að sagnfræðingar setja sér engin slík tímamörk á viðfangsefnum sínum og saga 20. aldar er þeim jafn mikilvæg og annarra alda, fjarlægari í tíma. Það er áhugavert að velta því fyrir sér hvers vegna slíkur munur er á sjónarhorni sagnfræðinga og fornleifafræðinga. Munurinn virðist liggja í efniviðnum sjálfum, þ.e. tengjast eðli rústanna sjálfra. Það virðist eðlilegt og sjálfsagt að kanna skjöl og munnlega sögu frá nýliðinni fortíð en ekki efnislegar leifar frá sama skeiði. Rústir frá nýliðinni tíð eru í eðli sínu áþreifanlegur minnisvarði um hrörnun og endalok, á tímabili sem er óþægilega nærri okkur í tíma, á annan hátt en t.d. skjöl eða annars konar efniviður getur orðið það. Rústirnar af Þorpinu í Viðey, og aðrar sambærilegar rústir, eru ekki einungis minnisvarði um fortíð sem er fyrir mörgum gleymd eða að gleymast, þær geta komið okkur til að endurskoða viðteknar hugmyndir um fortíð og nútíma. Það er ekki síst þess vegna sem varðveisla og rannsóknir á þeim eru mikilvægar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226
Blaðsíða 227
Blaðsíða 228
Blaðsíða 229
Blaðsíða 230
Blaðsíða 231
Blaðsíða 232
Blaðsíða 233
Blaðsíða 234
Blaðsíða 235
Blaðsíða 236
Blaðsíða 237
Blaðsíða 238

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.