Vinnan


Vinnan - 01.12.1943, Blaðsíða 10

Vinnan - 01.12.1943, Blaðsíða 10
menn um síðustu áramót, Félag bifvélavirkja, með 55 félagsmenn, og Félag blikksmiða, með 14 félagsmenn á sama tíma. 011 þessi félög hafa samninga um sama kaup og ekki verður séð, að séreinkenni félagsmanna þeirra séu svo mikil, að þeir geti ekki verið í einu fé- lagi allir. Pípulagningamenn eru einnig járniðnaðar- menn og virðast því eiga samleið með hinum félögun- um, en eins og stendur hafa þeir öðruvísi kaupsamn- inga og gæti það, ef til vill, torveldað sameiningu þeirra við hin félögin í bili. Prentarar og bókbindarar virðast vera svo atvinnu- lega tengdir hvorir öðrum, að vel færi á því, að félög þeirra væru sameinuð í eitt. Félag húsgagnabólstrara hafði um síðustu áramót 17 félagsmenn og félag húsgagnasmiða 55 félagsménn. Hvers vegna sameinast ekki þessi tvö félög, þar sem félagsmenn þeirra vinna allir við framleiðslu sömu vör- unnar og fyrir sömu launakjör? Tækjurst þær sameiningar, sem hér hafa verið nefnd- ar, má telja líklegt, að þau fáu smá-iðnfélög, sem þá stæðu fyrir utan stóru félögin, æsktu eftir að sameinast eða renna inn í stóru félögin, enda þótt félagsmenn þeirra störfuðu við óskildar iðngreinir, svo sem bakar- ar, klæðskerar, hárgreiðslustúlkur, rakarar o. fl., o. fl. Hagkvæmast væri að allt iðnaðarfólk væri í einu fé- lagi, sem starfaði í nokkrum deildum. Slíkt félag, eða félagasamsteypa, gæti haft starfandi skrifstofu með launuðum ráðsmanni eða ráðsmönnum, sem unnið gætu stéttinni og verkalýðshreyfingunni mik- ið gagn. Ennfremur myndi svo stórt félag iðnlærðra verkamanna hafa á hendi forustu í öllum málum iðn- aðarmanna og þjóðfélagsins í iðnaðarmálum. Auk þess gæti það rekið víðtæka upplýsinga- og menningarstarf- semi. Eðlilegast er að í Reykjavík séu félög óiðnlærðs verkafólks þrjú, sjómannafélag, verkamannafélag og verkakvennafélag. Svo var þetta í öndverðu og var mis- ráðið mjög að breyta út af því, þótt fólkinu fjölgaði og meiri margbreytni skapaðist í vinnu verkafólks. Sjómennirnir einir halda áfram að vera í einu félagi, og ekki virðist vera mikil hætta á að það félag klofni. I Sjómannafélagi Reykjavíkur eru eftirtaldar starfs- greinar m. a.: Stýrimenn, bátsmenn, matsveinar, háset- ar, kyndarar, vélstjórar með rninna prófi, lifrarbræðslu- menn á togurum, og samsvarandi menn á flutninga- og farskipum, hlutahásetar, mótoristar og stýrimenn af vél- skipum o. fl. Allar þessar starfsgreinar standa svo fast saman um heiður og hag stéttarinnar, að félag þeirra hefur náð betri árangri með baráttu sinni en nokkurt annað félag, eða félög, í landinu, eins og kunnugt er, og á hin órjúfanlega sameining stéttarinnar sinn þátt í því. Hagkvæmast er að allir verkamenn séu í einu félagi, Dagsbrún, án tillits til þess, hvort þeir vinna úti eða inni. Vera ófaglærðra iðnverkamanna í Iðju virðist vera mjög misráðin. í Dagsbrún eru nú mjög margar starfsgreinar ófaglærðra verkamanna, en þar eiga þeir allir að vera í framtíðinni. I öndverðu var Verkakvennafélagið Framsókn stofn- að af konum í fiskvinnu og eyrarvinnu, bæði þeim, sem unnu við blautan fisk og í þurrfiski, úti og inni. Á þeim tímum bauðst kvenfólki ekki önnur vinna utan heimilanna. Þegar fjölbreytnin' óx í verkakvennavinn- unni, samhliða því að eyrarvinna kvenna hvarf og fiskvinnan drógst saman, var horfið að því að stofna ný verkakvennafélög, í stað þess að láta allar verka- konur, við inni- og útistörf, vera áfram í sama verka- kvennafélaginu. Þannig voru stofnuð Starfsstúlknafé- lagið Sókn, Sjöfn, félag starfsstúlkna í veitingahúsum, A. S. B., félag afgreiðslustúlkna í brauðsölubúðum, Þvottakvennafélagið Freyja og Iðja, félag verksmiðju- fólks, sem að miklum meiri hluta stendur saman af verkakonum. 011 hafa þessi verkakvennafélög verið magnlítil, og að það er eðlilegt, sést brátt, ef félögin eru skoðuð nið- ur í kjölinn. Félagskonur eru flestar ungar, sumar ný-fermdar, er þær ganga inn í félögin og gera það af þægð, eða vegna þess að þær eru reknar til þess, en ekki af því að þær skilji eðli verkalýðshreyfingarinnar eða tilgang. Meiri hlutinn skiptir svo um atvinnu að litlum tíma liðnum og hverfur úr félaginu, margar án þess að hafa komið á fund í því, hvað þá heldur unnið neitt starf fyrir það. I félögunum eru engar reyndar, verkalýðssinnaðar konur, engum, eða fáum, endist starfsaldur til þess að verða það, lausung fjöldans verkar lamandi á þær fáu konur, sem hafa foringjahæfileika, eða með öðrum orðum, alla félagslega kjölfestu vantar í félögin. Sú kjölfesta fæst ekki nema á nokkuð löngum starfstíma og því aðeins að í félaginu sé að staðaldri nokkuð stór hópur félagsvanra meðlima, sem fara með málefni fé- lagsins. í gömlum félögum er alltaf nokkuð stór hópur af félagsvönu fólki, sem skapar ]>að félagslega öryggi og þá festu, sem dregur ungt, stéttvíst fólk að félögunum og laðar það til þess að keppa að því marki, að verða hlutgengir félagar og komast í trúnaðarstöður, en slíkt fólk yfirgefur ekki verkalýðshreyfinguna þótt bað skipti um atvinnu og að því ber að stefna. Þar sem ekki hentar að öllu leyti hið sama um rekst- ur verkalýðsfélaga í Reykjavík og í kaupstöðum og kauptúnum úti um land, verður í næsta blaði gerð grein fyrir því, frá sama sjónarmiði, hvernig réttast virðist vera að sameina verkalýðinn í félögum utan Reykja- víkur. 220 VIN.NAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.