Vinnan


Vinnan - 01.12.1943, Blaðsíða 30

Vinnan - 01.12.1943, Blaðsíða 30
HjartaS lyftir við hvert slag 1400 gr. 10 cm. í loft upp. Hjartað slœr að jafnaði 81 slag á mínútu og lyftir við hvert slag 1400 gr. 10 cm. í loft upp. Þetta samsvar- ar því á sólarhring, að lyft hafi ver- ið járnbrautarvagni, sem vegur 9525 kg. 1 mtr. frá jörðu. ÓTRÚLEGT en satt Æskan er kappgjörn. Þeir sem ungir eru og hraustir, og hafa ánægju af að nevta krafta sinna, gæta ekki ávallt að því sem skyldi, hvílík hætta getur af því stafað fyrir ííkamlega heilbrigði þeirra, að ofreynd séu einstök líffæri. Vio gerum okklit ekki almennt grein fyrir því, hvílíkt starf það er, sem daglega er framkvæmt af einstökum líf- færum okkar, svo sem lungum og hjörtum, svo að nefnd séu nokkur dæmi. Þetta starf er háð í kyrrþey, án þess að almennt sé tekið eftir því, og einmitt þess vegna er svo hætt við að hin viðkvæmnu Iíffæri, sem leysa það af hendi, séu þreytt úr hófi fram. Myndir þær, sem hér eru birtar, ættu að gefa nokkra hugmynd um þessa duldu starfsemi. Og virðingin fyrir þeirri vinnu, sem þar er leyst af hendi, ætti jafnframt að hvetja okkur til að unna þessum líffærum þeirrar hvíldar og endurnæringar, sem unnt er að veita þeim með heil- brigðu líferni. Með líkamlegri vinnu, í hollu og hreinu lofti, djúpum andardrætti og hóflegum íþróttaiðkunum styrkjum við þau og aukum starfshæfni þeirra. En sé þeim ofþjakað á einhvern hátt, í íþróttakappleikjum, við ógætilegar hjólreiðar, knattspyrnu o. fl. þessháttar, getur afleiðingin orðið sú, að starfshæfni þeirra lamist og þau verði óhæfari en áður til þess að leysa af hendi störf sín. Blóðmagn líkamans er 5 Itr. Hjart- að rúmar alls um 150 cm3 og sé reíknað með að slög þess séu 81 á mínútu, nemur blóðrásin í gegn um hjartað 16.920 lítrum á sólarhring. Lungun rúma samtals 4—5 lítra af lofti, en við öndum ekki að okkur að jafnaði nema >/2 Itr. í einu. Sé reiknað með því að við öndum að okkur 16 sinnum á mínútu, nemur það samtals á sólarhring 10 þús. Itr. dóttur, ættaðri úr Kræklingahlíð. Eignuðust þau 8 börr , Kristján andaðist 17. janúar 1917. Skal nú staðar numið í þetta sinn, en ég vonast til að geta síðar minnst sem flestra meðlima þessa gamla verkamannafélags. Þeir eiga það skilið, að þeirra sé minnzt. Þeir hófu fyrstir merki baráttunnar gegn skulda- þrælkun íslenzkra verkamanna, gegn okrinu og kaup- kúguninni, gegn ótakmörkuðum vinnutíma, baráttuna fyrir frelsi „umkomuminnstu og fátækustu“ stéttarinn- ar á íslandi, verkamannastéttarinnar, sem ekki gat orð- ið frjáls, nema allar aðrar stéttir yrðu það líka. Þeir sýndu í baráttu sinni svo ríkan skilning á nauðsyn sam- heldninnar, slíka samúð hver í annars garð, — eins og félagslög þeirra bera vott um, — að til fyrirmyndar er. í litla, skammlífa verkamannafélaginu þeirra á Ak- ureyri rétti hann fyrst úr sér, hinn fátæki verkamaður íslands, rétti bakið, sem bogið var af þrældómi aldanna, 240 bogið af kúgun kaupmanna, atvinnurekenda, embættis- manna og harðstjóra ár eftir ár og öld fram af öld. Þeir fundu fyrstir íslenzkra verkamanna máttinn, sem býr í margnum, og sýndu í lögunum, sem þeir settu sér, hvers þeir mátu skyldur sínar við heildina, en uppfylling þeirra skyldna er skilyrðið til að geta sigrað. Þeir hófu merki verkalýðssamtakanna á Islandi/merki þeirrar hreyfingar, sem berjast mun fyrir málstað lítilmagnans, unz allir menn á Islandi eru orðnir frjáls- ir. Sumir þeirra börðust fyrir sigri þessarar hreyfing- ar sem launþegar alla ævi sína, aðrir hafa unnið sitt lífsstarf á öðrum sviðum þjóðfélagsins. Þökk sé þeim öllum fyrir þeirra starf — langt eða skammt. Beztu þakkirnar, sem þeir þeirra fá, er lifað hafa fram á hin síðustu ár, eða lifa enn, eru samt vafa- laust þær, að sjá merkið, sem þeir hófu, blakta nú voldugra og fegurra en þeir nokkru sinni höfðu gert sér vonir um, í broddi þeirrar fylkingar hinna vinn- andi stétta íslands, er nú sækir fram til sigurs fyrir hugsjónir frelsis, öryggis og jafnréttis allra manna. VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.