Vinnan


Vinnan - 01.12.1943, Blaðsíða 22

Vinnan - 01.12.1943, Blaðsíða 22
við sem þar ynnum, gætum fengið sérsamninga um vinnutíma og jafnvel hærra kaup. En það voru einmitt menn úr þessum flokki, sem ákveðnastir voru í deil- unni, við þá dugðu hvorki hótanir, né tilboð um sér- stök fríðindi, um annað var ekki að ræða hjá þeim en heilbrigða, réttláta samninga. Enda var haft eftir danska verkfræðingnum, að í þessum flokki væru beztu menn- irnir, og þeir, sem hann sízt vildi missa úr vinnunni, þó að ómögulegt væri að láta að kröfum þeirra. Hinir fengu misjafna titla, sem ekki voru eftirsóknar verðir. Nokkrum vikum eftir að verkfallið var hafið, var Hermanni Daníelssyni sagt upp starfi sínu. Þótti hann sannur að sök um það, að hafa stutt okkur í deilunni, með því að reyna, svo sem fyrr var getið, að gera verk- fallsbrj ótana þreytta á vinnunni og sporna þannig við því, að þeir héldust þar við til lengdar. Hann var ein- lægur verkalýðsmaður, þó að hljótt hafi verið um nafn hans í sögu íslenzkrar verkalýðsbaráttu og drenglund hans í þessum efnum sé fáum kunn. Hann er nú látinn fyrir löngu. Þegar hér var komið málum, var orðið sýnilegt hvert stefndi. Melaflokkurinn hóf fyrstur vinnu, enda hafði þar gætt frá byrjun mestrar sundrungar í deilunni. Hinir flokkarnir hurfu svo smám saman til vinnu sinn- ar líka, töldu deiluna vonlausa, þar sem verkfallið hefði mistekizt. Eskihlíðarflokkurinn var sá eini, sem aldrei lét bugast. Aðeins örfáir menn úr þeim flokki hurfu aftur til vinnunnar, en þó ekki fyrr en löngu eftir að búið var að uppfylla kröfurnar, sem deilt hafði verið um. Þessir menn voru þó áreiðanlega ánægðastir með hlutskipti sitt. Verkamannablaðið, sem fyrr var getið, hóf göngu sína í maí, en þá var ljóst orðið fyrir löngu hvílík nauð- syn var á sérstöku málgagni í þjónustu þessa máls. Verkfallsnefndin hafði unnið að framgangi þess, ásamt ýmsum verkamönnum öðrum, áður en blaðið fór að koma út, en eftir það mátti heita að Dagsbrúnarstj órnin tæki framkvæmd þess í sínar hendur. Tel ég líklegt að félagið hafi með afstöðu sinni í þessu máli aukið drjúg- um við félagatölu sína og skapað sér félagslega betri aðstöðu en áður var. Hefur Dagsbrún síðan verið eitt af öruggustu verkalýðsfélögum landsins og staðið af sér flesta storma, sem á hafa dunið. í fyrsta tbl. Verkamannablaðsins er frá því skýrt, meðal annars, að reknir hafi verið úr Dagsbrún 22 félagsmenn vegna framkomu sinnar í þessari deilu. Hinn 11. júní varð hroðalegt slys við vinnuna í Eski- hlíð. Varð slysið með þeim hætti, að maður fór að bora upp holu, sem í var ósprungið „dynamit“. Fór borinn í gegnum manninn, sem lézt þegar. Er ekki ósennilegt að slys þetta hafi að einhverju leyti stafað af því, að óvanari menn voru komnir til vinnunnar en áður hafði verið. En það er táknrænt dæmi um ástandið, sem ríkti um þetta leyti í öryggismálum íslenzkra verkamanna, að tveim dögum eftir slysið var fellt í hafnarnefnd að láta fram fara lögreglurannsókn út af slysinu. Nokkru síðar flutti Sveinn Björnsson, núverandi ríkisstjóri, til- lögu í bæjarstjórn um rannsókn á slysinu, en ekki er mér kunnugt um að tillagan kæmi til framkvæmda. Fleiri slys urðu við vinnuna, sem kostuðu missi lima, ef ekki líf. Einn verkamaður missti t. d. báða fætur. Réttum tveim mánuðum eftir að verkfallið hófst, eða 28. júní, voru undirritaðir samningar um kaup og kjör við hafnarvinnuna, þar sem viðurkenndur var að fullu 10 stunda vinnudagur og sérstakt eftirvinnu- og helgi- dagakaup og vaktaskipti ákveðin með mismunandi kaupi. Með öðrum orðum sagt: Kröfurnar, sem verka- mennirnir höfðu upphaflega gert í apríl og ekki náðu þá fram að ganga af því að nokkrir þeirra brugðust, voru staðfestar og uppfylltar með þessum samningi, tveim mánuðum síðar. Var það vafalaust árangur af starfi þeirra manna, er baráttuna hófu og héldu henni áfram. Mönnum kann nú ef til vill að finnast fátt um þessar kröfur, en þær voru eðlilegar miðaðar við tímana, sem þá var um að ræða. Aðalstríðið var um að viðurkennd- ur yrði 10 stunda vinnudagur. Það var réttindamál, en ekki kaupdeila. En verkamennirnir, sem fyrir þessu stóðu, fengu litla uppreist. Þeir áttu að vísu að eiga afturkvæmt til starfs síns á ný, „eins og ekkert hefði í skorizt, ef fjölgað yrði í vinnunni, eða þeir, er nú stunda vinnuna, færu“, þ. e. þeir, sem tóku upp vinnuna í óþökk samtakanna. Þannig varð að semja, meðan samtökin voru veik. En það gerði ekkert til í þessu tilfelli, því að hér áttu þeir skapmenn í hlut, sem ekki leituðu aftur að náðardyrum Monberg- firmans. Þeir voru ánægðir með laun sín, sem voru fólgin í því, að réttur og góður málstaður hafði sigrað að lokum. En það voru líka í þá daga einu launin, sem forvígismenn verkalýðssamtakanna gátu gert sér vonir um að hljóta. Síldarverksmiðjurnar tapa máli gegn Þrótti á Siglufirði Fyrir nokkru síSan er fallinn dómur í máli, sem Síldarverk- smiðjur ríkisins höfSuðu gegn Verkamannafélaginu Þrótti á SiglufirSi. Deilan stóS um þaS, hvort greiSa skyldi mánaSarkaupsmönn- um og fastamönnum, sem störfuSu hjá verksmiðjunum, eftir- vinnukaup fyrir 5% tíma eSa aSeins 4'/2 tíma. Þróttur vann máliS, og verSa ríkisverksmiðjumar að greiða verkamönnum mikla fjárupphæð í viðhót við það, sem þær voru áður búnar aS greiða þeim. Lögfræðingur Alþýðusambandsins, Ragnar Olafsson, flutti málið fyrir Þrótt. 232 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.