Vinnan - 01.12.1943, Blaðsíða 27
annaíélag
kaupstaðar
-1897
á sioínfundi þess 1894.
-*\
12. gr. Vinnutími félagsmanna skal fast ákveðinn 10 tímar á
sólarhring, og hefur enginn félagsmaður leyfi til að vinna leng-
ur, nema fyrir aukaborgun. Þó eru þeir, sem vinna að fiskveið-
um og heyskap, undanþegnir þessu ákvæði.
13. gr. A fyrsta fundi hvers ársfjórðungs skal ákveða upphæð
dagkaups og tímavinnu fyrir þann ársfjórðung, og skal þess ná-
kvæmlega gætt, að það sé sem sanngjarnast. Sé einhver félags-
maður ekki fullvinnandi, má hann vinna fyrir lægra kaup en
lögin ákveða, en þó skal hann ákveða það í samráði við stjórn
félagsins eða á fundi.
14. gr. Enginn félagsmaður hefur leyfi til að semja um út-
borgun kaups síns öðruvísi en eftirfarandi greinar ákveða:
A. Hann má heimta það allt í peningum, ef hann ekki skuld-
ar vinnuveitanda. Þó má hann taka vörur, ef hann fær þær með
sama verði og þar sem þær fást ódýrastar hér á staðnum gegn
peningum.
B. Ef hann skuldar vinnuveitanda, má hann heimta helming
kaupsins í peningum, en hinn helmingurinn gangi til lúkningar
skuldinni. — Þó má hann fá % útborgaða, ef vinnuveitandi góð-
fúslega vill. Aldrei má minna en % ganga til lúkningar skuld
hans. Vinni hann hjá öðrum en hann skuldar, gildir hin sama
regla með lúkning skuldarinnar.
C. Vilji vinnuveitandi ekki ganga að þessum kostum, en heimti
tafarlaust skuld sína útborgaða, verður viðkomandi félagsmaður
að snúa sér til félagsstjórnarinnar, er svo ræður fram úr, hvað
gera skuli, þangað til rætt verður um mál hans á fundi. — Þess-
um reglum er eigi skylt að beita, nema gegn vinnuveitendum
Akureyrarkaupstaðar.
15. gr. Komi atvinnubrestur, og vinnuveitendur vilji fá menn
til að vinna fyrir lægra kaup en ákveðið hefur verið fyrir þann
tíma, þá hefur félagið leyfi til að breyta þeim ákvæðum, ef
meiri hluti samþykkir það á fundi. Reglum fyrir greiðslu kaups-
ins má aldrei breyta.
16. gr. Félagið skal skyldugt til að standa í ábyrgð fyrir lán-
um, sem félagsmenn þurfa að taka, að svo miklu leyti sem það
er fært um.
17. gr. Enginn félagsmaður má taka lán upp á eigin ábyrgð með þeim. skuldbindingum, er
strítt geti móti lögum félagsins, eða geta verið hættuleg fyrir efnahag lians.
18. gr. Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og framlögð á fundi eða til stjórnarinnar, og skal hún
því aðeins tekin til greina, að hlutaðeigandi sé ekki brotlegur við lög félagsins og skuldi því ekki.
19. gr. Hver, sem brýtur lög þessi, skal sektum sæta allt að 5 kr., eftir því hve mikið og oft
hann brýtur. — Brjóti hann oft ákvæði 12. og 14. gr. skal hann rækur úr félaginu. Verði einhver
uppvís að því að vinna félaginu vísvitandi ógagn á einhvern hátt, skal hann einnig rækur úr félaginu.
20. gr. Lögum þessum má breyta hvenær sem vill, ef % félagsmanna samþykkja það á fundi,
að undanteknum ákvæðum um varasjóð.
21. gr. Leysist félagið upp, skulu þeir meðlimir, sem þá eru óbrotlegir við lög þess, skipta sjóð
þess og eignum milli sín. En varasjóður skal standa um aldur og ævi til styrktar fátækum verka-
mönnum bæjarins í sjúkdómstilfelli, og má aldrei nota hann til annars. — Skulu þeir, sem hafa verið
meðlimir verkamannafélagsins eða afkomendur þeirra ávallt ganga fyrir öðrum með þann styrk.
Sjóðurinn stendur undir umsjón bæjarstjórnarinnar, er þá semur skipulagsskrá fyrir notkun hans.
Ef að síðar myndast nýtt verkamannafélag í bænum, skal sjóðurinn ganga undir umsjón þess.
apríl 1897
Þorvaldur Helgason
Þorvaldur Guðnason
Jónatan Jósefsson
Einar Sveinsson
Sigurður Einarsson
Þorsteinn Jónsson
Magnús Jónsson
Ágúst Jónsson
Guðbrandur Guðmundsson
Jón Jónatansson
Sigurður Kristjánsson
Gunnlögur Gunnlögsson
Guðni Þorgrímsson
Sigurður Jónatansson
Þorleifur Jóelsson
Stefán Jónsson
Sigurður Jónsson
Olafur Jónatansson
Guðmundur Jónsson
Páll Ólafsson
Jón Steingrímsson
Páll Markússon
Gunnlögur Kristjánsson
Lárus Thorarensen
formaður 1896—97
Kristján Nikulásson
gjaldkeri 1896—97
SkuU Thoroddsen alþm. Flutti frv. um
greiðslu daglauna og verkakaups 1893
VINNAN
237